Vikan - 21.05.1959, Blaðsíða 25
ef til vill tuttugu og eins eða tveggja,
a. m. k. sex fet á hæð og eitt hundr-
að kíló að þyngd.
EG geng yfir götuna og kíki dá-
lítið betur á hann. Ég sá strax,
að hann er ekki þaðan úr bæn-
um, af því að hann gengur með
slitna derhúfu og er með kaðal utan
um sig og trúnaðartraustið skein úr
augum hans. Hann stendur og gónir
á anddyrið á sjúkrahúsinu, og er ég
hef litið dálítið betur á hann, geng
ég til hans og gef mig á tal við hann.
„Ungi maður,“ spyr ég kurteis-
lega, „hvað eruð þér að gera hér?“
„Ég stend hér og er að biða eftir
unnustu minni, ungfrú Babs Koogle.
Hún er hjúkrunarkona þarna inni,“
segir hann.
„Hún hefur fallegt nafn, unnustan
þín,“ segi ég.
„Hún er lika alveg dásamleg
stúlka," segir hann. „Hún er úr
heimabæ mínum, Pottsville í Louis-
iana og við höfum þekkst frá því að
við vorum börn. Við ætlum að gifta
okku strax og mér hefur tekist að
næla mér í tvö hundruð dollara.
„Það er ágæt hugmynd," segi ég.
„Þegar maður er ástfanginn, á mað-
ur að gifta sig. Hvað heitið þér ann-
ars og hvað gerið þér?“
„Ég heiti Cashwell Fish og ég er
þjónn í kaffihúsi, þegar ég hef eitt-
hvað að gera. En ég hefi hugsað mér
að setja upp matsölustað heima í
Pottsville," segir hann. „Ég vil vinna
mér inn peninga."
„Ungi maður," segi ég, „þér eruð
ekki þjónn lengur. Nú eruð þér
hnefaleikakappi, og þér heitið
Louisiana-hlébarðinn, af því að eitt-
hvað af villidýrinu hlýtur að vera í
yður.“
Cashwell verður talsvert órólegur
við þetta og fer að ganga niður göt-
una, en ég geng samsíða honum og
segi honum, að hann geti unnið sér
inn tvö hundruð dollara með því einu,
að láta Chester Nubbs dangla svo-
lítið i sig í hringnum og þá skuli
hann vera rólegur í einar litlar tíu
sekúndur. Ég segi honum auðvitað
ekki, að Chester muni að öllum lík-
indum gefa honum einu sinni hraust-
lega á hann til þess að vera viss um,
að í fysta lagi hafi hann aldrei
fengist neitt við hnefaleik og í öðru
lagi sé hann á þeirri skoðun, að
hnefaleikar séu ljót og mannskemm-
andi íþrótt, en að lokum segi ég
honum, að hann geti ef til vill unnið
sér inn tvö hundruð og fimmtíu doll-
ara, ef hann vilji gera þetta, og þá
fór hann að hafa áhuga á þessu. Það
kæmi honum einkar vel að vinna sér
inn slíka upphæð, segir hann, en svo
kemur hik á hann aftur, af því að
unnustu hans muni áreiðanlega vera
meinilla við þetta.
Ég læt hann svo hringja til sjúkra-
semi, að engin lög séu fyrir þvi, að
hann þurfi að segja unnustu sinni
frá þessu og ég espa hann með því, að
unnusta hans verði stórhrifin, er
hann sýni henni peningana á eftir og
svo segir Chashwell, að hann sjái,
að þetta sé ágætis hugmynd, og að
síðustu fæ ég talið hann á að verða
Louisiana-hlébarðinn.
SJÖTTA daginn, sem við vorum
þarna útfrá, kemur mnboðs-
maður Chesters, Jack Keegan,
tii þess að líta á Louisiana-hlébarð-
ann og er hann mjög ánægður með
hann, og þá segir Jack mér, að
Chester fáist eklci til að æfa eina
einustu minútu fyrir leikinn. „Hann
er ástfanginn," segir Jack, „og hann
vill kvænast, og þetta er allt saman
þér að kenna."
„Mér að kenna," segi ég. „Hvað
áttu við?“
„Af því að þú komst með Pigs-
foot hingað með botnlangabólguna.
Chester fer á sjúkahúsið á hverjum
degi og situr í einn klukkutíma hjá
honum og þar hittir hann stúlkuna,
sem heitir Babs Koogle. Hún er
hjúkrunarkona Pigsfoots. Það er hún,
sem hann er ástfanginn af og vill
kvænast."
„Koogle," segi ég við Keegan.
„Uss, uss talaðu ekki svona hátt!
Hún er nefnilega gleym-mér-ei Louis-
iana-hlébarðans,“ segi ég, „ef hlé-
barðinn kemst á snoðir um þetta, þá
höfum við, sjáðu til, engan hlébarða
lengur. Er ungfrú Koogle einnig ást-
fangin af Chester?"
„Ég geri ráð fyrir því,“ segir
Keegan. „Mér þætti gaman að sjá
framan í þá telpu, sem getur staðist
jafn glæsilegan náunga og Chester,
sem brátt á að verða heimsmeistari.
Ég vona, að Chester viti ekkert um,
að það er keppinautur hans í ástum,
sem hann á að berjast við, þvi að þá
lemur hann hlébarðann sundur og
saman og ég vil helzt ekki hafa morð
á samvizkunni. Þetta er þokkalegt
allt saman."
Já, þetta voru ljótu vandræðin.
Það var þannig, að ég þurfti að
skreppa í bæinn og inn í sjúkrahús-
ið, til þess að sjá hvernig Pigsfoot
hefði það, hvernig allt gekk til. Hann
hafði þá þegar fengið leyfi að fara
á fætur og ég hitti hann, þar sem
hann var að spjalla við hjúkrunar-
konu — ekki ungfrú Koogle — held-
ur einhverja aðra, sem var næstum
því jafn yndisleg.
„Þetta er ungfrú Kitty Kronin,"
segir Pigsfoot. „Hún er vinkona ung-
frú Koogle. Reglulega falleg stúlka.'
Það gat ég séð sjálfur. Það hefði
Pigsfoot ekki þurft að segja mér, en
ég bað ungfrú Kronin að lofa okkur
að vera einum um stund á meðan ég
talaði við Pigsfoot og þá spurði ég
hann, hvort nokkuð væri á milli
Chester Nubbs og ungfrú Babs
Koogle.
„Það er svo sem ekki hægt að álasa
Chester fyrir það,“ segir Pigsfoot.
„Ungfrú Koogle er falleg stúlka. Hún
er ekki fyrir mig, en lagleg er hún.
En heyrðu nú, hver er þessi Louisi-
ana-hlébarði, sem ég heyri að eigi að
berjast i minn stað gegn Chester?
Er það einhver, sem ég þekki?"
Er ungfrú Koogle ástfanginn af
Chester?" spyr ég án þess að virða
hann svars.
„Það er ekki gott að segja," svar-
ar Pigsfoot. „Chester er heillandi
maður, einkum er hann gefur á hann
með vinstri hendinni. Það getur eng-
ir. stúlka staðist. Persónulega er ég
glaður yfir, að það skuli ekki vera ég,
sem á að slást við Chester, af þvi að
þetta kvöld mun hann rota ógurlega
með vinstri hendinni til þess að ganga
í augun á ungfrú Koogle. En hef-
urðu tekið eftir ungfrú Kronin?
Það er nú kvenmaður í lagi!"
Og satt að segja hafði ég aldeilis
tckið eftir því og er náungi í hvít-
um einkennisbúning kom inn og
sagði, að Pigsfoot ætti að leggjast
fyrir og hvila sig, komum við ungfrú
Kronin okkur saman um stefnumót,
og snæddum við miðdegisverð sam-
an, og mér fannst hún svo yndisleg,
að ég gleymdi hér um bil að snúa
aftur til Cashwells.
Mér þótti að sjálfsögðu gott að
heyra, að ungfrú Koogle ætlaði að
horfa á kappleikinn, því að ég sá í
hendi mér, að það gæti leitt til vand-
ræða, en ég hugsa sem svo: Koma
t-ímar, koma ráð, og ég held áfram
að þjálfa Cashwell.
Ég lagði við hlustirnar og upp-
götvaði strax, að þetta væri alltof
dýrt og þá þegar hafði ég lagt gíf-
urlegt fé í þetta fyrirtæki. Ég náði
mér í joðflösku í staðinn og smurði
heilu lagi af joði yfir allan líkama
hans og hætti ekki fyrr en hann
gljáði eins og eirstytta. En líklega
hef ég borið nokkuð mikið af joði á
hann, af því að Cashwell fór að
kvarta undan því, að það brenndi
sig, já, það var hræðilegt, og síðan
æpti hann af kvölum og kallaði mig
öllum illum nöfnum, sem ég alls ekki
bjóst við, að þeir í Pottsville þekktu,
og þá var ekki annað að gera fyrir
mig en ráðast á hann og með sápu
og bursta til þess að ná joðinu af.'
En það er sama hve mikið ég
bursta og skrúbba, mér er lífsins
ómögulegt að ná öllu af, og árangur-
inn er sá, að Cashwell stendur loks
með brúnar skellur út um allan lík-
amann. En þá er verkurinn horfinn
og Cashwell segir, að sér sé alveg
sama, hvernig hann líti út.
Svo líður að kvöldi hins mikla
dags og er ég hitti Cashwell, eru á-
horfendapallarnir alveg fullir og fólk
snýr frá þúsundum saman, af því að
mislingum
20
ekki er nóg rúm fyrir allan fjöldann.
STRAX eftir að ég hef fylgt Chash-
well niður í búningsherbergið,
fer ég upp aftur og leita að
ungfrú Babs Koogle og viti menn,
þarna sat hún í þriðju röð. Ég geng
til hennar, sezt á stólkoll við hliðina
á henni og segi við hana: „Heyrið þér,
ungfrú." segi ég, „nú megið þér ekki
láta andstæðing Chester Nubbs koma
yður svo mjög á óvart, og þér megið
engin læti eða hávaða hafa í frammi
— þvi að það er enginn annar en
Cashwell Fish.“
„Cashwell Fish er uppi í Pocono-
fjöllunum," segir ungfrú Koogle.
„Nei, hann er hérna niðri í bún-
ingsherberginu," segi ég. „Eftir dá-
litla stund sjáið þér hann þarna í
hringnum sem Louisiana-hlébarðann,
og skelfist ekki yfir útliti hans. Hann
er með nokkra bletti á kroppnum,
þar sem ég ekki gat náð joðinu af,
en það er allt í lagi. Hann er heil-
brigður og hraustur, og ekkert mun
koma fyrir hann.“
„Hvers vegna hafið þér klínt á
hann joði“ ?
Ég útskýrði fyrir henni, hvernig
ég hefði reynt að brúna hann og
einnig, að i kvöld myndi hann vinna
sér inn tvö hundruð og fimmtíu doll-
ara til þess að þau gætu gifzt, en
ungfrú Koogle er ekki við mælandi
og loks segir hún:
„Já, en Chester drepur hann. Hann
sagði við mig seinnipartinn í dag, að
hann ætlaði að berja andstæðing sinn
mikið og illa til þess að sýna mér,
hve góður hann sé. Ég hafði náttúr-
lega ekki minnstu hugmynd um, að
það var Cashwell og ég vil ekki láta
rota hann,“ segir hún. „Ég verð að
ná í Chester og segja, að hann megi
ekki fremja rnorð."
„Elskan mín,“ segi ég. „Það er
það langversta, sem þér gætuð gei’t,
ef þér viljið hjálpa Caswhell. Þegar
Chester segir, að hann ætli að drepa
einhvei-n, segir hann það bara að
gamni sínu. En ef Chester heldur, að
þér hafið einhvern áhuga á Cashwell,
verður hann óður, því að ég veit, að
Chester er ástfanginn af yðui', og
hann er ekki sá maður, sem lætur
keppinautinn sleppa lifandi."
Ungfrú Babs Koogle fer að gráta,
en ég klappa henni á öxlina og segi
við hana: „Kæra ungfrú," segi ég,
,-,þér skuluð bara láta bardagann
hafa sinn gang. Cashwell mun ekki
fá svo mikið sem blóðnasir, ef honum
aðeins heppnast að detta fyrr en
Chester getur slegið og það getið þér
verið vissar um. Viljið þér nú ekki
lofa mér að hafa hægt um yður?
Mér leiðast læti.“
Hún lítur á mig með tárin í aug-
unum og kinkar kolli, og ég flýti
mér niður í búningsherbergið til
Cashwells og fer með hann upp í
hringinn í baðkápu og set hann á stól-
inn í horninu, og ég er alveg stein-
hissa á, hve rólegur hann er. Hann
situr þai’na með yfirlætissvip og lít-
ur í kringum sig.
Ég hugsa um, hvað hann muni
segja, er hann kemur auga á Babs
Koogle, en hann virðist ekki hafa
uppgötvað nærveru hennar og svo
kemur Chester Nubbs eftir gangin-
um og honum er fagnað með geysi-
legu lófataki.
„Jæja, dengur minn," segi ég við
Cashwell, „eftir nokkrar mínútur
hefst það og þá verðið þér að standa
á eigin fótum. Gangið aðeins fram
með hendurnar upp, svona, eins og
ég hef sýnt yður og er þér finnið, að
þér hafið fengið högg, látið yður falla
og liggið kyrr, þangað til ég kem
og hjálpa yður á fætur."
„Spider McCoy,“ segir þá Cashwell
við mig, „ég hef i hyggju að gefa
Chester Nubbs duglega ráðningu. Ég
ætla að verjast eftir beztu getu. Ég
ætla ekki að sýnast huglaus í augsýn
Uvendis eins og ungfrú Babs Koogle.“
„Einmitt það,“ segi ég. „Þér hafið
þá séð hana?“
„Já,“ segir Cashwell. „Ég fór að
hugsa dálítið um þetta allt saman
daginn sem Jack Keegan sagði yður,
að Chester Nubbs væri ástfanginn
af henni og vildi kvænast henni og
núna fyrir lítilli stundu sá ég, að hún
er einnig ástfangin af honum. Ég
sá hana stinga að honum bréfi, er
hann gekk framhjá henni í gangin-
um. Ég er viss um, að það var ást-
arbréf, af því að mér hefir hún ekki
gefið neitt bi’éf. En ég skal hefna
mín á honum, ég skal!“
„Heyi’ið þér, Cashwell," segi ég,“
þegar þér eruð orðinn jafn gamall
mér, mun yður hafa skilist, að allar
konur eru undirförular og engin
þeiri-a er þess virði að láta slá sig í
rot.“
En Cashwell hristir bara höfuðið
og svo er ekki tími til frekari um-
ræðna, því að dómarinn kallar Chest-
er og Cashwell inn í miðjan hringinn
til þess að gefa þeim fyrirskipanir,
og ég fylgi Cashwell þangað.
Ég tek baðkápuna af honum og
hann stendur þarna baðaður ljósum
með brúnu blettina út um allan
kroppinn og lítur allskuggalega út.
Fólk heldur, að vegna þessara bletta
sé hann kallaður Louisiana-hlébarð-
inn, og nokkrir byrja að hlæja og
gera grín að þessu.
EN þegar bjöllunni var hringt og
Cashwell dansar fram hring-
inn, hugrakkur sem ljón, sé
ég mér til mikillar undi’unar, að
Chester læðist meðfram köðlunum í
hringnum og heldur sig í sem allra
mestri fjai’lægð frá Cashwell í stað
þess að ganga fram og gefa honum
einn hressilegan í magann eins og
allir búast við. Næst sé ég, að Cash-
well hleypur á eftir Chester, en
Chester hleypur undan eins og skelk-
uð kanína. Hann lætur Cashwell
aldrei komast nálægt sér. Ég veit
ekki, hvað ég á að hugsa eða halda,
en áhorfendur héldu bersýnilega, að
Chester væri að sýna, hvei’nig bæri
að halda andstæðingnum frá sér, að
minnsta kosti er honum óspart klapp-
að lof í lófa.
Jack Keegan var einnig alveg
ruglaður, er Chester heldur áfram
uppteknum hætti i hverri lotunni á
fætur annarri. Svona gengur þetta
sex lotur í röð og ekki tekst að koma
Framhald á bls. 26.
Hann hafði beyg af
FRAMHALD AF BL5
VIKAN
25