Vikan


Vikan - 07.04.1960, Blaðsíða 2

Vikan - 07.04.1960, Blaðsíða 2
♦ Til sagnargreiðvikni við kvenfólkið. ♦ Hláturinn lengir lífið. 4 Hjúskaparmiðlun. 4 Hneykslanleg ummæli. ♦ Marilyn gift Shakespeare? KÚNSTIN AÐ HALDA í KARLINN SINN. Kæra Vika. Hvernig stendur á jiví, að alltaf er verið að veita kvenfólkinu tilsogn um Iþað, hvernig það eigi að haga sér svo karlmönnum líki, og gefa eiginkonunum margvísleg heillaráð til þess að þær geti haldið í eiginmann sinn, og að hann fái ekki leiða á lienni og hlaupist á brott? Mér fyrir mitt leyti dettúr alls ekki i liug að fara að gera mig uppvísa að þeirri minnimáttar- kennd, að ég fari að leggja mig í líma til að þóknast eiginmanni mfnum á allan hátt. Nei, ef hann vill mig ekki eins og ég er og guð hefur skapað mig, þá má hann sannarlega fara sina leið. Mætti ekki alveg eins veita eiginmannin- um nokkra tilsögn í þeirri list að haga sér þannig gagnvart eiginkonunni, að liann eigi ekki á hættu að hún hlaupist á brott frá honum? Virðingarfyllst. Þrítug húsmóðir. Satt segirðu þrítug, og sannar bréf þitt ó- véfengjanlega, að ekki er það eingöngu ald- urinn, sem gerir fólk skyggnt á vandamál lífsins. Að vísu hef ég ekki athugað það neitt sjálfur hvernig standa muni á þessari til- sagnargreiðvikni við kvenfólkið, en mér detta í hug tvær orsakir. Önnur er sú, að þetta sé lymskulegt bragð af hálfu karl- mannanna til þess að reyna að gera kon- urnar eins og þeir vilja helzt hafa þær, og séu það þá einkum þeir, sem að þessum skrifum standa. Hin er sú, að það séu kon- ur, sem þarna eru að verki, og telji þær þá ekki ómaksins vert að veita karlmönnum nokkra tilsögn, þar sem það sé þýðingarlaust með öllu, þeim verði með öðrum orðum ekki breytt. Láta karlinn róa, ef ... jú, það er líka sjónarmið ... „KARIKATÚR“. Kæra Vika. Mig langar til að fræðast um hvort nokkur markaður muni vera hér fyrir „karikatúr“- teikningar eða skrýtlumyndir; hvaða skilyrði séu sett, t. d. um stærð myndanna, og hvert sé vænlegast að snúa sér. Um Vikuna hef ég það að segja, að mér finnst efnið ágætt yfirleitt. Krossgátan er afar vinsælt viðfangsefni — og sízt of stór. Þættirnir, t. d. „í aldarspegli", njóta og mikilla vinsælda. En skrítlurnar mættu vera fleiri. Ekki veitir af í skammdeginu — og hláturinn lengir lifið. Beztu kveðjur. Ánægður. — Þetta má nú kalla að hafa öll þægindi.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.