Vikan - 05.05.1960, Síða 29
SKÁKÞÁTTUR
Snrmma varð mönnum ljós sú
hætta, sem var þvi samfara, ef
menn „lögðust í skák“, eins og það
var knllað — sbr. að leggjast í óreglu
— og urðu beinlínis þrætar skákar-
innar. En svo eru aðrir, og það eru
sem betur fer flestir, sem ltta á skák-
ina sem þægilegt tómstundagainan
og margir frægir menn hafa notað
hana sem meðal til að livíla augun
frá öðru. Þekkt enskt skáld, Thomas
Avery sagði svo um skákina um
1900: „Skák er kennari æskulýðs-
ins, liuggun hins miðaldra og unun
ellinnar. En látið hana ekki ná of
miklum tökum, þvi ég þekki þess
dæmi, að við það hafa tapazt eignir.
Skák • veitir skemmtun, unun og
fræðslu, en það er ekkert Iifsstarf“.
Hinn frægi heimsspekingur, Jean
Jacqes Rousseau, sem var uppi
1712—1778, notaði einmitt skákina
a þennan hátt, þ. e. sem afþreying-
armeðal, en var samt ágætur tafl-
maður. Eftirfarandi skák er tefld
af honum og góðvini hans, Prins
Conti i Louis — Montmarency 1759.
Hvítt: J. J. Rousseau.
Svart: Prins Conti.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4.
c3 De7 5. 0—0 d6 6. d4 Bb6 7. Bg5
f6 8. Bh4 g5 (Heimsspekingurinn
hefur á kænlegan hátt narrað fram
peð prinsins og kemur nú á óvænt
með mjög djúphugsaða riddarafórn
og i kjölfar hennar koma fleiri fórn-
ir, hver annarri glæsilegri). 9.
Rxg5H fxg5 10. Dh5t Kf8 11. Bxg5
Dg7 12. f4 exd4 13. f5H d4xc3t 14.
Khl cxb2 15. BxRg8! b2xalD 16. f6!
og prinsinn gafst upp, þrátt fyrir
sinar tvær drottningar, þvi þær
koma að litlu haldi við að bjarga
mati.
Ííg vcit ekki hvað varð af þessum unga manni,
sem kom að finna hana Jósafinu. —
SINALCO
SÓDAVATN
APPELSÍN
GRAPE FRUIT
KJARNADRYKKIR
H.F. ÖLGERÐIM
Egill Skallagrímsson
Eitthvað fyrir alla
•
PILSNER
MALTÖL
HVÍTÖL
SPUR COLA
GINGER ALE
HI-SPOT
LÍMONAÐI
QUININE WATER
ANANAS
VIKAN
29