Vikan


Vikan - 05.05.1960, Side 31

Vikan - 05.05.1960, Side 31
LUBITEL ER FERMINGARGJÖFIN Fæst hjá: Focus Gevafoto Týli h.f. Hans Petersen og hjá 60 verzlunum um land allt. RÚSSNESKAR LJÓSMYNDAVÉLAR ERU SPÚTNIKAR í LJÓSMYNDAHEIMINUM. Einkaumboð á fslandi fyrir Rússneskar ljósmyndavörur: EIRÍKUR KETILSSON Vesturveri 6. h. — Simi: 19155. — BOX 1316. Yorn Adam og liva risar Framhald af bls. 9. setningum, er sýna, að hann hlýtur aS vera minnst 18.000 ára gamall. I'essi almanakssteinn og aðrir álíka, er fundizt hafa bæði í Mið-Ameríku og Mexíkó, hafa veitt fornfræðingum nútimans ómetanlega innsýn í þekk- ingarheim hinna indiánsku menn ingarþjóða. Á því var heldur engin vanþörf, svo lítið sem okkur allt til þessa hefur verið kunnugt um ríki Azteka, Inka og Maya. Þegar hinir gullþyrstu Spánverjar sigruðu Indíána með svikum í byrjun sextándu aldar, hófu þeir þegar skipulagða eyðilegg- ingu á hvers konar menningarminjum. 1 nafni Drottins voru musteri og bóka- söfn, sem auðvitað voru „heiðin", brennd upp til agna, en guðamyndir úr gulli brotnar eða bræddar. En af almanakssteinum hefur það sézt og sannazt, að Indiánar hafa um þúsundir ára hlotið að stunda út- reikninga á gangi himintungla og samningu á nákvæmum almanökum, svo ófullkomin áhöld sem þeir hafa haft til þeirra iðkana. Árið 1937 tókst Þjóðverjanum Kiss að þýða letrið á almanakssteinunum, bæði tölur og annað. Komst hann við það að þeirri niðurstöðu, að í þann tíð hefði árið verið 290 dagar, og kemur það heim við útreikninga Hörbigers yfir það tímabil, er Saurat prófessor telur, að Tiahuanaco hafi verið grundvölluð. iSíðar á árum hafa aðrir kunnir vísindamenn staðfest kenningar Kiss og þýðingar. Af almanakssteininum má sjá, að árinu hefur verið skipt í fjórar árstiðir, er miðaðar hafa verið við sólstöður, sólhvörf og jafndægri á haust og vor. Mánuðir ársins höfðu 24 daga, en á þeim tíma gekk tungl tertier-aldarinnar 37 sinnum umhverf- is jörðina. E’r þetta allt saman höggv- ið i steininn. EFTIR að hið þriðja jarðtungl eyði- lagðist, gekk jörð vor mánalaus um- hverfis sól sína í meir en tvær þús- undir ára. Þá kom lítil reikistjarna svo nærri jörðu, að aðdráttarafl sólar á hana hvarf fyrir áhrif þyngdarafls jarðar. Hóf hún því hringferð um- hverfis hnött vorn og varð að núver- andi tungli. Staðhæfa þessir vísinda- menn, að þetta hafi gerzt fyrir tólf til fimmtán þúsundum ára og jafn- framt valdið ofsalegum byltingum á yfirborði jarðar. Fyrst í stað var braut tunglsins sporbaugslöguð. Hvert sinn, er það kom næst jörðu, þrýsti aðdráttarafl þess gufuhvolfinu, vötnum hafanna og meira að segja hluta af sjálfri jarðskorpunni saman milli hvarfbauganna. Allt loft og allt vatn dróst frá norður- og suður- hluta hnattarins, en safnaðist saman við miðjarðarlínu og út frá henni. Yfir þá hluta jarðarinnar, er þá stóðu ber- ir eftir, safnaðist skjótlega þykkt lag af isi. Þúsundum ára síðar finna visinda- menn í Síberíu mammútsdýr með grasviskar í munni, er geymzt hafa óskemmd í breðanum allt frá þessum tíma. En jökulþunginn breytti hita- beltisgróðrinum í kolalög á Svalbarða og Grænlandi. Helkuldi íssins greip hin miklu dýr. Hefði loftslagsbreytingin orðið smátt og smátt, hefðu þessi dýr áreiðanlega verið svo viti borin að leita til heit- ari landssvæða. En eftir öllum sólar- ~mrkjum að dæma hafa Þau jafnvel aiepizt í miðri máltíð. Á belti, s(m lá milli 40. og 60. gráðu norðlægrar breiddar, fossaði óhemju-vatnsflaumur yfir láglendið. Segir Þá Platón hinn gríski satt, er hann skýrir frá eyðileggingu ríkisins Atlantis? Óneitanlegt er, að hinar YIKAN fjölmörgu fornsagnir um ægilegt syndaflóð hljóta að styðja þessa kenn- ingu. Enskur fornfræðingur og trú- málakönnuður, að nafni sir J. G. Frazer, hefur safnað mörg hundruð sögnum um syndaflóð hvaðanæva af hnettinum. Lifandi verur varðveitt- ust aðeins þar, sem hæstu fjöll stóðu upp úr hafinu, og eftir þúsundir ára, þegar braut tunglsins var orðin hring- mynduð og sjávarföll orðin reglu- legri, komu þessir menn niður á lág- lendið að nýju og lögðu undir sig jörðina. EN svo framarlega sem þessar kenn- ingar þeirra Hörbigers og Saurats eiga að geta talizt sennilegar, verða t. d. rústaborgir Maya i Mexíkó að geta lagt fram einhverjar sannanir fyrir afleiðingum af komu hins nýja tungls. Annar eins viðburður og slík gerbylting hlýtur að hafa verið ætti að hafa skilið einhver merki eftir sig í sögnum og þjóðtrú, sem ævinlega er spunnin utan um einhvern sann- leikskjarna. Segja má, að slíkt merki sé að finna í frásögn um sköpun heimsins, er spænsku sigurvegararnir heyrðu hjá Aztekum. Hún er á þessa leið: Jörðin varð til í fjórum lotum. 1 upphafi var sól vatnsins. Næst kom sól jarðarinnar. Hin þriðja var sól vindsins. Og heimurinn mun farast með þeirri fjórðu, sem er sól eldsins. Söguna ber að skilja þannig: Heim- urinn var skapaður af vatninu og eyðilagðist af eldingum og flóðum. Næsta tímabil, sól jarðarinnar, var timi risaþjóðarinnar og endaði. þegar himinninn féll niður á jörð og drap nærfellt alla jötna. Þar næst hófst tímabil vindsins, er ekkert tungl fylgdi jörðinni. Á þeim öldum voru Olmekar uppi, en þeir útrýmdu jötnum. Jarðfræðilegar uppgötvanir hafa leitt að því sterkar líkur, að Olmekar hljóti að hafa verið elzta menningar- þjóð Mið-Ameríku. Við uppgröft hafa komið fram í dagsljósið risavaxin höfuð úr blágrýti. Eru þau allt að þriggja metra há og sjö metrar að ummáli. Voru þau ef til vill sett hjá musterunum til þess að minna á öld jötnanna? fremur, að einn þeirra jötna, er lifðu flóðin af, Quetzalcoatl að nafni, hafi komið niður af fjallstindi einum til þess að kenna mönnum hagleik og góða háttu. E'n er menn vildu ekki hlíta ráðum hans, hvarf hann aftur á braut, en spáði Því áður, að heim- urinn mundi farast. Þegar líður að sögulokum, verður frásögnin nákvæmari. Er þá minnzt á uppreisn í loftinu og björg, er slöngvist til jarðar. Og í 25 ár grúfði niðamyrkur yfir jörðinni. Þá kom nýfædd sól í Ijós, og við þann dag miða Aztekar tímatal sitt. Vel getur sögn þessi verið reist á minningum um ógurlega jarðskjálfta og myndanir nýrra fjallgarða um það leyti, sem jörðin fékk hið fjórða tungl sitt. Við mót þessara tveggja hnatta í himingeimnum hefur móðir jörð áreiðanlega skolfið á öllum sínum beinum. Margir vísindamenn hafa á ýmsum tímum leitazt við að leysa gátuna um uppruna hinna elztu menningarþjóða í Mexíkó, hagleik þeirra. snilli og stjarnfræðilega þekkingu. Vilja sum- ir telja, að flóttamenn frá hinu sokkna Atlantis hafi komizt hingað. Aðrir nefna þann möguleika, að einhver egypzkur faraó kunni að hafa sent leiðangur suður um odda Afríku og alla leið til Mexíkó, en margt bendir þó til, að þessi menningarríki séu langtum eldri. Við samanburð á fornminjafund- um kemur sem sé í Ijós, að jafnvel Olmekar, sem hingað til hafa verið taldir elztir menningarþjóða, hafa haft til að bera víðtæka þekkingu á náttúruöflunum og himingeimnum. Þeir höfðu komið sér upp fullkomnu tímatalskerfi og áttu fullvel nothæft myndletur. Tímatalið út af fyrir sig hlýtur að hafa átt að baki sér ótelj- andi stjarnfræðilegar athuganir, er framkvæmdar hafa verið áriþúsund- um saman. Saurat leitast við að skýra gátuna á þá leið, að jötunmenni þau, er lifðu af hamfarirnar við komu tungls hins síðasta, hafi ’átið hinu nýja mannkyni þekkingu sína í té. Og austurríski fornfræðingurinn Heine- Geldern er þeirrar skoðunar, að upp- haflega hafi allir kynflokkar Indíána átt heima á svæðinu, sem nú tak- markast af Kína, Indlandi og Mongól- íu, og er Missulega margt, sem mælir með því. Fyrir nokkrum árum fann leið- angur bandariskra vísindamanna ýmsa merkilega muni fyrir sunnan hafnar- borgina Vera Cruz. Voru þar litlir toppstrendingar, grafir og steinaxir, en auk þess nokkur risavaxin manns- höfuð og litlar styttur úr jarðsteini. Tekizt hefur að þýða nokkuð af leturtáknunum, og benda þau til tímatals, er sýnir með vissu, að Olmekar hafa verið búsettir í Mexíkó löngu á undan öðrum menn- ingarþjóðum og studdu mjög að blómgun Maya-menningarinnar. EN hvaðan eru Olmekar komnir? Þeir koma allt í einu út úr myrkri fornaldarinnar . . . birtast allt í einu. Og þó ber allt með sér, að þeir eigi að baki sér þúsunda ára þróun, svo að þeir hljóta að vera einhvers stað- ar aðkomnir. En hvaðan? Ýmsar að- stæður benda til þess, að þeir hafi komið af þafi. Á öllum listaverkum, er Þeir hafa gert af sjálfum sér, sjást þéttvaxnir menn, kringluleitir með flatt nef og skásett augu. Þeir eru afar höfuðstórir og andlitsfallið ein- kennilega líkt Mongólum. Olmekar hafa verið meistarar í að smíða úr jaðisteini. Og hann er frá Mið-Asíu og hefur frá ómunatið gætt afar mikið i kinverskum listiðnaði. Musteri Maya eru byggð að miklu leyti í sama stíl sem hin gömlu guðs- hús Hindúa. I Mayaborginni Sjikken Itsa hefur fundizt múrskreyting með fiskum og vatnaliljum . .. næstum hvert einasta smáatriði myndarinnar er að finna í Búddhamusteri í Amara- vati á Indlandi. Eru allar þessar hlið- stæður einber tilviljun? Öldum saman fyrir tímatal vort var þróun í siglingum raunverulega komin á það stig, að liægt hefði verið að sigla frá Asíu til Mið-Ameríku, en hins vegar skortir óhrekjandi sann- anir fyrir því, að slíkt hafi verið gert, og því verður að láta sér nægja mis- jafnlega sennilegar tilgátur. Allmikill fjöldi vísindamanna neitar að taka möguleikann til greina og bindur sig af þrákelkni við það við- horf, að hver einstök þjóðmenning hafi skapazt á sínum stað. Telja þeir hliðstæðurnar aðeins tilviljun, og að einu leyti hafa skoðanir þeirra við rök að styðjast: Svo langt sem menn- ing Indíána var komin í þróun tækn- inna'r, — þá þekktu þeir ekki hjóliö. Svo mikilsverða og einfalda upp- götvun með jafn-bersýnilega hagnýtt gildi hlutu innflytjendur að hafa tekið með sér. Indíánar notuðu ekki held- ur nein af strengjahljóðfærum þeim, er Indverjar og Kínverjar höfðu fundið upp, löngu áður en tímatal vort hefst. Komið geta þó í ljós nýjar og at- hyglisverðar uppgötvanir, hvenær sem er, er megna að samræma hinar ó- 31

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.