Veðrið - 01.09.1964, Blaðsíða 9

Veðrið - 01.09.1964, Blaðsíða 9
íslands, og þá ekki heldur það, sem því fylgdi. íumt beygði vestur í haf, svo að þar hefur mergð fiðrilda farizt, en sumt beygði til austurs, áður en það næði hér landi, og hafnaði í Noregi. Þar hefur bví án efa orðið vart við aðmíráls- fiðrildi fyrstu dagana í september. Dagana næst á undan 29. ágúst og eftir 1. september lágu loftstraumar alls ekki hingað til lands frá Bretlandseyjum eða öðrum löndum Evrópu Samkvæmt áðursögðu hlýtur því koma fiðrilda- göngunnar hingað til lands að takmarkast við dagana tvo sinn hvorum megin við mánaðamótin. Fyrstu fiðrildin, sem náðust, hafa því verið þreytt eftir langa ferð, hvort heldur þau hafa þá verið nýkomin frá írlandi eða beina leið frá Frakklandi kvöldið og nóttina áður. Meðfylgjandi kort sýnir, hvernig veðri og vindum var háttað á hádegi 31. ágúst, en þá hefur fiðrildasveimurinn annað hvort xeyifS kominn hálfa leið áleiðis frá Frakklandi eða um það bil að leggja af stað frá sunnanverðum Bret- landseyjum. Er eðlilegt, að fiðrildin hefji langflug um hádaginn, eins og áður er vikið að. Á veðurkortið er dregin leiðin, sem lægi frá suðvesturodda írlands. Veðrið á þessum slóðum var gott, og er fyrst og fremst því að þakka, hve þum Ioftið var. Næst frlandi var heiðskírt, en smám saman óx skýjahulan, og þegar kom á móts við veðurskipið India var oröíð nær alskýjað. Við strönd íslands er komið mistur í loft og sums staðar þoka, en þurrt að mestu. Úrkoma hefur því ekki orðið fiðrildunum til trafala, en hætt er við, að regn og skúrir hefðu með tímanum þreytt þessar viðkvæmu flugverur og dregið þær niður í hafið. Af því, sem hér hefur verið sagt, er Ijóst, að fiðrildagangan í haust hefur komið með vindinum frá Norðvestur-Frakklandi eða sunnanverðum Bretlands- eyjum dagan 31. ágúst og 1. september. F’lugskilyrði voru óvenju góö, og pess vegna heíur jafn mikið magn og raun ber vitni komizt alla leið. í öðru lagi kemur fram, að þessi fiðrildi leggja á opið haf í góðu skyggni, en villast ekki þangað í dimmviðri. Þau hafa þol til að vera á lofti eða fljúga í heilan sólar- hring eða jafnvel lengur í þurru veðri. Þrátt fyrir þetta mikla þrek hljóta þau að farast hrönnum saman í hafi árlega, þegar loftið, sem þau berast til hafs í kemur ekki nálægt landi fyrr en að nokkrum dögum liðnum. En af nógu er að taka. Og á meðan veðurfarið á Norður-Atlantshafi ekki breytist frá sínum sífellda síbreytileik, munu þessir fögru gestir halda áfram að heimsækja okkur öðru hverju á vori og hausti. Nýr hö)undur í þetta hefti skrifar Ásgeir Sigurðsson fróðlega grein urn öndvegisveturinn 1963/64 og bendir á nærtækustu orsakir hins milda tíðarfars. Ásgeir er fæddur í Reykjavík 6. apríl 1937, en ólst upp hjá foreldrum sínum, Sigurði Ásgeirssyni og Valgerði Magnúsdóttur, að Reykjum í Lundarreykjadal. Hann tók landspróf í Reykholti 1953, stúdentspróf á Laugarvatni 1957, fyrri- hlutapróf í verkfræði við Háskóla íslands 1960, en hóf nám í veðurfræði við háskólann í Kaupmannahöfn 1961 og mun ljúka þar meistaraprófi í fræðigrein sinni á næsta ári. VEÐRIÐ — 49

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.