Veðrið - 01.09.1964, Blaðsíða 24
unni og fram til 22. var rakin sunnan átt meí! stórrigningu vestan lands og
einnig úrkoma á Suðurlandi og vestanverðu Norðurlandi. L Kvígindisdal mæld-
ist 89 mm sólarhringsúrkoma og er það meir en nokkru sinni síðan athuganir
hófust þar 1927. Næstu þrjá daga var áttin ýmist austan eða suðvestan og vætu-
tíð nema á Norðausturlandi. Þar var dagana 18.—25. mjög hlýtt og góður
þurrkur.
Þann 26. var svo norðvestan kalsarigning vestan lands og norðan en slydda á
annesjum og til fjalla. Var vindur við norðrið og kalt næstu tvo daga, en batn-
aði síðan.
Júli. Veðráttan í júlí var óstöðug og crfið til heyskapar sunnan lands og
vestan og það svo, að þetta mun sums staðar hafa verið versti júlí frá 1955.
Mikið betra veður var á norðaustanverðu landinu. Einkum voru jrar dagarnir
16—23. góðir. Þá var suðlæg átt með miklum hita og þurrki. í lok mánaðarins
var víða fullhirt á Jressum slóðum, en á Suður- og Vesturlandi var varla jmrrk-
uð tugga nema súgþurrkun kæmi til. Víða var næturfrost norðan lands jrann 10.
og rétt fyrir mánaðarlokin einnig á Vesturlandi. Sums staðar skemmdist kartöflu-
gras strax jiessa daga.
Ágúst. Framan af var hæg austan og norðaustan átt algengust. Þá var sól-
ríkt og þurrviðrasamt á Vesturlandi og góð heyskapartíð, en ekki eins góð á
suðurströndinni. Aftur var þurrviðrasamt á Austfjörðum og í A.-Skaftafells-
sýslu. Norðan lands var sæmilega hlýtt og fremur úrkomulítið, en ekki hey-
þurrkur. Upp úr miðjum rnánuði og til 28. var sífelkl norðanátt. Fyrir norðan
og á Vestfjörðum var oltast rigning á láglendi, en snjókoma eða slydda til
fjalla. Vestan lands og með suðurströndinni til Austfjarða var hins vegar jrurrt,
en kalt og oft talsverður strekkingur.
Svo mikill snjór var í sveitum nyrðra, að sums staðar hafði ekki sézt annað
eins í ágústmánuði í tugi ára. Mikil næturfrost voru síðari hluta mánaðarins
og kolféll þá allt kartöflugras, en á síldarmiðunum fyrir austan land var stöðug
bræla.
Hiti, 0 C.
(í svigum fyrir neðan meðallagið 1931 — 1960)
Apríl Maí Júní Júlí Ágúst
Reykjavík 4,4 7,9 9,5 10,3 9,8
(8.1) (6,9) (9,5) (H.2) (10,8)
Akureyri 3,1 6,6 8,5 11,0 8,2
(1-7) (6,3) (9.3) (10,9) (10,3)
Hólar 4,4 7,0 9,6 10,3 9,7
(3,0) (6,5) (9,3) (10,9) (10.4)
64 --- VEÐRIÐ