Veðrið - 01.09.1964, Side 17

Veðrið - 01.09.1964, Side 17
þó langalgengast og þrálátast við norðanverðar vesturstrendur meginlandanna. Að vísu eyðast lilýju hæðirnar smám saman vegna hitaútgeislunar og blöndunar við kaldari loftmassa, og samsvarandi gerist hjá köldu lægðunum. En áður en það er skeð rís nýr bylgjuhryggur yfir Atlantshafinu og klýfur frá sér nýjan hvirfil af hlýju lofti jafnframt því að kaldur hvirfill klofnar frá lægðardraginu (bylgjudalnum) yfir austanverðri Ameríku og fer suðaustur á bóginn. Enda þótt þetta fari fram á dálítið mismunandi liátt, getur ástandið í stórum drátt- um haldizt ólneytt vikum saman. Hvernig veðurfarið er á Islandi, þegar svona stendur á, fer mikið eftir því, itvar hæðin heldur sig á hverjum tíma og hversu langt norðan og vestan við land lægðirnar fara jtar af leiðandi. Þegar hæðin er nálægt landinu eins og á 4. mynd fara lægðirnar nokkuð langt frá iandinu og hlýir, suðrænir loftstraumar leika oftast um jtað. Hér hefur kalt loft aðeins náð inn yfir landið norðanvert, en er strax á undanhaldi aftur (hitaskil á norðurlcið). Ef hæðin væri mun austar eða sunnar, mundu lægðirnar fara nær landinu eða yfir jrað og út- synningur eða norðanátt láta nokkuð að sér kveða í kjölfar þeirra. Það væri köll- uð umhleypingasöm tíð. Ef aftur á móti hæðin liggur alveg upp að landinu eða yfir því, verður veður stilt, þurrt og oft léttskýjað. Heldur er Jaá kaldara en í hinum tilfellunum, — án jaess Jtó að um neinar hörkur sé að ræða. Kortið frá 30. janúar sýnir svo gerólíkt veðurfar, sem að vísu hélzt ekki lengi. Straumurinn í 500 mb er frá vestri til austurs (há mælitala), Azoreyjahæð- in, sem er nokkuð fast einkenni á yfirborðskortinu, er á sínum stað og í stærra lagi. Djúp lægð fyrir norðaustan land hefur valdið norðanátt, sem þó er að ganga niður, en önnur lægð er á leiðinni frá Nýfundnalandi. í Jtessu yfirliti hefur visulega aðeins að litlu leyti verið leyst það verkefni að gera grein fyrir baksviði hlýindanna hér á landi síðastliðinn vetur. Hér hefur hvorki verið kannað sambandið milli liins afbrigðilega veðurfars yfir Norður- Atlantshafi og veðurfarsins annars staðar á hnettinum né hinar upprunalegu or- sakir Jtess. Orka sú, sem knýr hreyfingar lofthjúpsins, er upprunalega komin sem geislaorka frá sólinni. Mörgum hefur Jtótl eðlilegt að setja frávik frá hinni vcnjulegu hringrás í samband við afbrigðilega útgeislun sólar. Samband milli veðurfars á vissum stöðum og sólbletta má heita fullsannað. Einnig ber að hafa í huga, að vissar aðstæður við yfirborð jarðar, eins og t. d. snjóalög og hafísar, geta verið orsakir veðurfarsins eigi siður en afleiðingar. En hér verður ekki reynt að rekja orsakakeðjuna svo langt til baka. VEÐRIÐ 57

x

Veðrið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.