Veðrið - 01.09.1964, Qupperneq 26
Stundum er reynt aÖ gera sér grein fyrir þeim liitamun, sem hæðarmunur-
inn veldur, með því að rannsaka háloftaathuganir. Samkvæmt liáloftaathug-
nnum frá Keflavík má gera ráð fyrir, að loftið kólni um 0,6° á sumrin fyrir
hverja 100 m. sem ofar dregur, og af töflunni um frávik hitans á Hveravöllum
og í Jökulheimum frá Reykjavík má sjá, að við hefðum þurft að fara upp í
720—850 m. hæð yfir Reykjavík til þess að finna sama liita og á miðhálendinu.
En þess her að geta við allan samanburð af þessu tagi, að ekki má gera ráð
fyrir, að hitinn breytist á sama hátt upp eftir fjallshlíðum og hann gerir í sjálfu
lofthafinu.
Háloftaathuganir geta þannig aldrei jafngilt eða komið í staðinn fyrir at-
htiganir á jörðu niðri í fjalllendi.
Það reynist því í raun erfitt að rekja sundur þá Jjætti, sem valda hitamis-
mun láglendisstöðva út við strendur og liálendisstöðva inni í fandi.
Þáttur fjarlægðarinnar frá sjó endurSpeglast í því, að munurinn á hita Reykja-
víkur og fjallastöðvanna virðist aukast, jægar dregur frá liásumri. Inni í landinu
verður sem kunnugt er meiri munur á sumri og vetri, og við getum fengið
nokkra hugmynd um stærð ]>essa munar norðaustan lands með ]jví að líta annars
vegar á árssveiflu iiitans á Raufarliöfn árin 1931—1960, sem reyndist 10,8°, og
hins vegar á árssveiflu sama tímabils í Möðrudal, sem var 15,2°. Möðrudalur er
í 450 m. hæð og tæpa 70 km. frá sjó. í júlí reyndist sem næst sami meðalltiti á
Möðrudal og Raularhöfn eða um 9°, en í febrúar, sent varð kaldasti mánuður árs-
ins norðanlands og austan, jturfum við að fara 940 m. upp yfir Raufarhöfn til
jjess að komast í þann kulda sem ríkir í Möðrudal. Er |já reiknað með, að loft-
liaíið hér um slóðir kólni um 0,5° fyrir liverja liundrað metra upp á við að
vetrarlagi, en til Jjess benda háloltaathuganir ylir Keflavík.
Það væri óneitanlega mjög fróðlegt að fá einnig hitamælingar og aðrar veð-
urathuganir á mið- og suðurhálendinu að vetri til auk þess sem jiað getur liaft
verulegt hagnýtt gildi vegna vírkjana, samgangna og veðurspádóma. Ef til vil
verður þess ekki svo langt að bíða, að athugunarstöð starfi árið um kring inni
á hálendinu, en Veðurstofan vinnu nú að ]jví að svo megi verða.
Jökulheimar 1964
llæð 670 m yfir sjávarmál
Hveravellir 1964
Iíæð 620 m ylir sjávarmál
Hiti Vik frá IJrkoma
C° hitaíRvík mm
Júní 4.8 -4.7 47.7
Júlí 6.0 -4.3 121.6
'Agúst 5.0 -4.8 16.1
Sept. — — —
Júní
5-31 Júlí 6.1 -4.3 76.8
Ágúst 5.0 -4.8 13.4
1-16 sept. 2.6 -5.1 31.0
Hiti Vik frá Úrkonta
C° hitaíRvík nnn
/lilrlii fíúra Sigfúsdótlir
66 --- VEÐRIÐ