Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 58

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 58
2 matur Jólin eru tími hefða. Hvort sem hefðin snýr að mat, skrauti eða athöfn-um er einna víst að einhverjar slíkar er að finna á öllum heimilum. Á mínu heimili eru til dæmis engin jól án jólabúðingsins gómsæta sem ég hlakka til að borða allt árið. Búðingur þessi, sem er í raun frómas og jafnvel upphaflega fínasta triffli, á sér langa sögu innan fjölskyldunnar. Upphafið má rekja til þess þegar Salóme, amma mín, fór ung að aldri í vist til fínnar frúar á Stokks- eyri en sjálf var amma mín formannsdóttir úr Vestmannaeyjum. Fína frúin kenndi henni ýmislegt varðandi heimilishald en þó lagði hún mesta áherslu á eldhússtörfin. Til dæmis kenndi hún ömmu að gera „heimsins bestu súpu“ og var amma ævinlega stolt af því að vera hálfgerður súpu- gerðarmeistari, útskrifuð úr eldhúsi frúarinnar á Stokkseyri. Súputækn- in týndist þó með láti ömmu en trifflið sem hún lærði einnig að gera frá grunni lifir enn góðu lífi í örlítið breyttri mynd. Amma átti aðeins einn son, föður minn, og hún var af þeirri kynslóð sem stjanaði í kringum karlmennina og fékk sting í hjartað ef þeir ætl- uðu sér svo mikið sem ganga frá disknum sínum eftir matinn. Það kom því í hlut móður minnar að læra búðingsgerðina á áttunda áratugnum. Á þeim tíma hafði uppskriftin breyst nokkuð enda matarlím orðið algengt í verslunum sem gerði allt umstangið auðveldara. Þó getur matarlímið verið til ófriðs ef það er of heitt eða of kalt þegar því er hrært út í graut- inn. Það getur móðir mín staðfest. Í fyrsta sinn sem hún bjó til búðing- inn sjálf klúðraðist matarlímið og búðingurinn varð svo kekkjóttur að nauðsynlegt reyndist að tyggja hann. Amma var hins vegar svo glöð yfir að þurfa ekki að elda sjálf, auk þess sem hún kunni sannarlega að hrósa, jafnt sjálfri sér sem öðrum, að hún hrósaði tengdadóttur sinni í hástert og átti ekki til orð yfir gæðum búðingsins. Hún hefði bara aldrei smakk- að hann betri. Mamma varð því lítið bangin að gera aðra tilraun að ári því hún vissi að búðingurinn gat ekki orðið verri. Ég tók síðan sjálf við keflinu fyrir þremur árum þegar ég hélt í fyrsta sinn mín eigin jól. Stressið var mikið. Skyldi búðingurinn kekkjast? Ég var með móður mína í símanum og hún leiðbeindi mér skref fyrir skref hvernig ég ætti að bera mig að. Og viti menn, allt tókst með einstakri prýði. Mér til mikillar furðu voru stjúpdæturnar ekki jafn himinlifandi yfir búðingnum góða, þær voru vanar að fá ís … Jólabúðingurinn góði 6 egg 10-12 msk. sykur 12-14 stk. matarlímsblöð 750 ml rjómi jarðarberjasafi makkarónukökur sérrí súkkulaðirasp Þeytið rjóma og geymið í ísskáp. Þeytið egg og sykur út í hið óendanlega. Setjið matarlím í kalt vatn í u.þ.b. 6 mín. Vindið blöðin og hitið yfir gufu ásamt jarðarberjasafa. Blandið rjóma og eggja- blöndu saman. Hellið volgu matarlími í mjórri bunu í blönduna og hrærið varlega í á meðan. Bætið súkkulaði út í. Makkarónukökurnar eru muldar og settar í botn á skál. Jarðarberjasafa og smá sérrí bætt út í og látið bíða smá stund. Rjómablöndunni er síðan hellt ofan á. Búðingurinn er skreyttur með rjóma og jarðarberjum áður en hann er borinn fram. JÓLATRIFFLI FÍNU FRÚARINNAR Sólveig Gísladóttir skrifar SKÝRINGAR Á UPPSKRIFTATÁKNUM: matur kemur út mánaðarlega með laugardagsblaði Fréttablaðsins. Ritstjórn: Roald Eyvindsson og Sólveig Gísladóttir Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Forsíðumynd: Gunnnar V. Andrésson Pennar: Gunnþóra Gunnarsdóttir, Roald Viðar Eyvindsson, Sólveig Gísladóttir, Vera Einarsdóttir og Unnur H. Jóhannsdóttir. Ljósmyndir: Fréttablaðið Auglýsingar: Bjarni Þór Sigurðsson bjarnithor@365.is Ha n n a seg-ist hlakka til jólanna og börnin hennar, Mar- grét Birta og Ólafur, taka svo sannarlega undir það. Þau hlakka þó mest til að fá pakkana. „Mér finnst aðvent- an skemmtilegur tími og ég nýt þess að skreyta og fegra heimilið. Bökunarilmurinn setur punktinn yfir i-ið.“ Hanna er með uppskrift að súkkulaðibiscotti sem er tilval- ið með jólakaffinu eða sérrítári. „Ég fékk uppskriftina hjá einum kennara mínum í Myndlistaskól- anum í Reykjavík,” segir Hanna sem finnst gaman að gefa óvæntar gjafir. „Á aðventunni pakka ég oft nokkrum biscottistöngum fallega inn og gef öðrum. Það vekur iðulega lukku þótt lítið sé.“ Enn er ónefnd sú ástríða Hönnu að leggja á borð. „Japanir segja að maður borði tvisvar, fyrst með augunum og svo með munninum. Fallega framreiddur matur geymir þannig minninguna um góða mál- tíð. Ég legg því mikið upp úr matar- stelli og skreytingum við hátíðlegt borðhald. Oft nota ég hluti sem ég hef gert sjálf og í skreytingum leyfi ég hugmyndafluginu og inn- blæstri þá stundina að ráða og nota jafnvel eitthvað úr leikfangakassa barnanna,“ segir Hanna, sem einn- ig er mikið fyrir kertaljós. „Þá má ekki gleyma kertum og blómum. Kerti lýsa upp skammdegið, gefa notalega og sérstaka birtu og eru nauðsynlegur staðalbúnaður í góðu boði.“ - uhj Kökur sem kæta Hanna Margrét með börnum sínum sem hlakka til að gæða sér á gotterínu. 100 g smjör, mjúkt 190 g sykur 2 stór egg 280 g hveiti 1 tsk. matarsódi ¼ tsk. salt 1 dl kakó 100 g pistasíu- eða heslihnetur 50 g súkkulaði, saxað Hitið ofn í 200° C. Hrærið saman smjör og sykur þar til blanda verð- ur létt og ljós. Bætið eggjum við einu í einu og hrærið vel á milli. Setjið hveiti, matarsóda, salt og kakó út í og hnoðið. Hnoðið hnet- um og súkkulaði saman við. Mótið tvo hleifa úr deigi, ca. 7x30 cm, og setjið á ofnplötu þakta bökunar- pappír. Bakið í 25 mín. og kælið í 20. Skerið hleifa í 1 cm þykk- ar sneiðar, raðið á plötu og bakið aftur í ca. 10-15 mín. Seinni bökun- artími fer eftir kökuþykkt. SÚKKULAÐI-BISCOTTI 40–60 kökur Hann leikur í höndunum á henni, baksturinn, ekkert síður en keramikið. Hanna Margrét Einarsdóttir, kennari og hönnunarnemi, segir að ekki sé svo ólíkt að móta hluti í leir og að baka. Þeir sem vinna í keramiki kannist vel við þessi tengsl. Biscotti bætir, hressir og kætir. Bollarnir eru úr keramik og eftir Hönnu Margréti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08 MUFFIN BAKERY „Við erum hér með alls kyns gerð- ir, einar sjö til átta tegundir á hverjum degi og meira að segja eina í piparkökustíl fyrir jól,“ segir Jón Gunnarsson, eigandi kaffi- og veitingahússins Muffin Bakery, við Hamraborg 3 í Kópa- vogi, en staðurinn gefur sig út fyrir að vera sá eini á landinu sem sérhæfir sig í múffubakstri. Þótt múffurnar sem þar fást séu af ýmsum gerðum eiga þær allar það sameiginlegt að vera mun stærri en menn eiga að venjast. „Með því móti tekst okkur að halda þeim mjúkum, matarmiklum og betri en almennt gerist,“ útskýrir Jón og bætir við að Íslendingar hafi tekið vel í framtakið. Til marks um það hafa um 30.000 múffur selst á staðnum frá því hann var opnaður fyrir ári. Fleira er þó þar á boð- stólum, til dæmis salöt, súpur, ristaðar samlokur, pastaréttir, fiskur og réttur dagsins. Jón hvetur sem flesta að kíkja í heimsókn og tekur fram að þar rúmist vel allt að 15 til 20 manna hópar. Betri en almennt gerist FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Gott á jólunum! Til hátíða- brigða Hvunndags/til hátíðabrigða KökurE Eftir- réttur Sætindi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.