Vikan - 15.06.1961, Blaðsíða 14
Gunnar Thoroddsen, fjármálaráðherra, Óli J. Ólason, skókaupmaður og
Hans kaupmaður Þórðarson í Electric.
ÞEIR STOFMÐU
Allar meginstarfsgreinar þjóðfélagsins hafa nú sína eigin banka:
Otgerðarmenn hafa Útvegsbanka, iðnaðarmenn Iðnaðarbanka, bænd-
ur Búnaðarbanka og öll þjóðin Landsbanka. Verzlunarmenn hafa að
visu haft sparisjóð niðri í Hafnarstræti, sem gat sér gott orð og
dafnaði ve’l. Hins vegar vita fjármálamenn, að banki veitir meiri
þjónustu en sparisjóður getur gert, og þess vegna gerðu forráðamenn
verzlunarstéttarinnar sér lítið fyrir og stofnuðu verzlunarbanka.
Þessi nýi banki er til húsa í sjálfu Bankastræti og hefur fengið til
umráða afburðafallegt húsnæði þar sem áður var skóverzlun Lárusar
Bankastjórar ganga í salinn: Guðmundur Ólafs, bankastjóri í Iðnaðar-
bankanum á undan og Jóhannes Nordal, bankastjóri í Landsbankanum.
Árni sparisjóðsstjóri á Akranesi heilsar Sigurbirni Sigtryggssyni, úti-
bússtjóra Landsbankans við Laugaveg. Á milli þeirra er Guðmundur
sparisjóðsstjóri í Keflavík og lengst að baki Höskuldur bankastjóri
Verzlunarbankans og Matthías Mathiesen, sparisjóðsstj., Hafnarfirði.
Sveinn Guðmundsson í Héðni hellir í bollann hjá Sigurbirni Sigtryggs-
syni, útjbússtjóra Landsbankans á Laugavegi. Á milli þeirra sést Ás-
mundur Guðmundsson í Stálsmiðjunni. Til hægri við Sigurbjörn er
Mekkinó Björnsson, kaupm. og V. H. Vilhjálmsson, stórkaupm., en að
baki þeirra Matthías Mathiesen, alþm. og Magnús frá Mel, bankastjóri
Búnaðarbankans.
Frá vinstri: Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, Egill Guttormsson,
stórkaupm., Þorvaldur Guðmundsson, veitingamaður, Jónas Haralz,
ráðuneytisstjóri, Höskuldur Ólafsson, bankastjóri í hinum nýja Verzl-
unarbanka, Magnús Jónsson frá Mel, bankastjóri Búnaðarbankans og
Sigurður Óli Ólafsson, kaupm. á Selfossi og alþingismaður.
Síðasti aðalfundur Verzlunarspari-
sjóðsins. Við borðið næst á mynd-
inni, talið frá vinstri: Daníel kaup-
maður í verzl. Daníel, Sigurður
Halldórsson, verzlm., Magnús Víg-
lundsson konsúll og stórkaupm. og
Björgvin Þorbjörnsson, verzlunarm.
<]
r>
Kollegar takast í hendur: Höskuld-
ur, bankastjóri hins nýja banka
heilsar Pétri Benediktssyni, banka-
stjóra í Landsbankanum. Á milli
þeirra sést Pétur Sæmundsen, fram-
kvæmdastj. Fél. ísl. iðnrekenda, en
til hægri er próf. Ármann Snævarr,
rektor Háskólans.
14 VIKAN