Vikan


Vikan - 29.06.1961, Síða 20

Vikan - 29.06.1961, Síða 20
FYRIRM YND ARSTÚLK A Framhald af bls. 7. — Ef hann sér þessa mynd, kemur hann ekki aftur, og fer kannski enn þá lengra í burtu, sagði Jack. Hann kemur í næstu viku, sagði ég stúrin. — Við getum ekki beðið svo lengi, sagði Peter. — Við verðum að taka nýja mynd í dag. Hann leiddi mig inn á ljósmyndastofuna. Þar var plötuspilari, sem var hafður til að hjálpa upp á sakirnar, þegar draum- lyndið var af skornum skammti á morgnana. Ég var að leita að viðeig- andi plötu, en allt í einu tók Peter mig í fang sér. — Svo man ég ekki annað en það, að tilbúnu eplagrein- unum var raðað í kringum mig, og alilr sögðu, að myndin hefði heppn- azt mjög vel. -— Ég skal ná í leigubíl handa þér, sagði Peter, þegar við gengum — eða öllu heldur svifum út. —- Það eru margir kilómetrar til Bronx, sagði ég. — Ég fer úr á leiðinni, sagði hann og settist við hliðina á mér En hann fylgdi mér alla leið heim að húsdyr- um og bað bilstjórann að bíða, meðan hann fylgdi mér upp. -— Þetta var reglulega skemmtilegt, sagði hann. — Ég vona, að þér sofið vel og yður dreymi um Oscar. Morguninn eftir fór ég beint inn í básinn til Jacks Browns. — Það kemur ekki til mála, að ég giftist Oscari, sagði ég. — Hvað ertu að segja? Nei, því ræður þú auðvitað sjálf ... En góða min, þú átt þó ekki við, að þú viljir ekki giftast honum Oscari okkar? En Janie, þú verður að giftast honum. — Ég er ekki ástfangin af Oscari, sagði ég. Nú kom Bill Jones aðvífandi, og klapp hans átti víst að lýsa föður- legri umhyggju. — Jæja, þarna er þá fyrirmyndarstúlkan ljóslifandi. Nú fer Oscar að koma heim, svo að við getum farið að taka myndir af brúð- kaupsundirbúningi og þess háttar . .. — Mér geðjast ekki einu sinni vel að honum, greip ég fram í. — Hverjum, mér? hrópaði Bill furðu lostinn. — Hún er ekki ástfangin af Oscari. Jack horfði ásakandi á mig. — Hún vill ekki giftast honum. Hún getur í rauninni alls ekki þolað hann. — Það er ekki heiðarlegt gagnvart Oscari að halda þessum skrípaleik áfram, sagði ég. Heiðarlegt gagnvart Oscari? Hver kærir sig um Oscar? E’n hvernig fer fyrir okkur, og Hamingjusama heim- ilinu? Allt í einu var básinn orðinn fullur af fólki, sem ruddist hvert um annað og talaði hvert í kapp við ann- að. — Það er bezt að leyfa stelpunni að giftast hverjum, sem hún vill, jafn- vel þótt það væri Farúk konungur, sagði Jack að lokum. Við höldum á- fram með greinarnar, en strikum yfir Oscar. Það tekur sjálfsagt enginn eftir því, hvort sem er. — Ég tek eftir því, andmælti ég. — Oscar tekur eftir því. Þetta er ekkert annað en heimskulegur skrípa- leikur, sem eyðileggur líf okkar. Þetta er hreint og beint hlægilegt, ekkert nema eintómt fjas. Verst af öllu er þó þessi kjánalega grein eftir Jack, þar sem hann talar um að svífa á ljós- rauðum skýjum og falla í öngvit af hamingju. Að svo mæltu rigsaði ég út og hafði á tilfinningunni, að ég líktist einna helzt Bette Davis í á- takanlegu hlutverki. Eftir nákvæmlega stundarfjórðung kom Peter inn til mín og tók í hönd mér. — Komdu, vina mín, sagði hann, við skulum ræða saman dálitla stund. Það ganga ýmsar einkennilegar sög- ur um þig. — Og um Oscar, sagði ég dauflega. — Um Oscar, sagði hann með al- vörusvip. — Ég get sagt þér, að und- anfarið hefur það verið viðkvæðið hjá rúmlega sex þúsund manns, að ég sé eingingjarn ónytjungur og engin stúlka með réttu ráði ætti að láta sér detta í hug að snúa baki við heið- arlegum manni mín vegna, og mann- kynið færi ekki mikils á mis, þó að ég hrykki upp af, svo að þú skilur auðvitað, að ég get alls ekki látið það viðgangast, að svona yndisleg stúlka eins og þú verði óhamingjusöm mín vegna. Brúðkaup þitt er fyrir löngu ákveðið. Þarna gefst mér þó einu sinni tækifæri til að gera góðverk. Leyfðu mér að sjá um, að brúðkaup ykkar Oscar fari ekki út um þúfur. — Og svo kemur grein um mig í blaðinu, þar sem ég verð kölluð yndis- leg, þæg litil stúlka, sagði ég gröm. — Nú fer ég og tala við ritstjórn- ina. Hann fylgdi mér að lyftunni og reyndi að róa mig Síðdegis sama dag kom Oscar heim. Ég tók á móti honum í forstofunni, og áður en honum gafst tími til að segja nokkuð, spurði ég hann, hvort við ættum ekki að ganga saman dálítinn spöl. — Hefurðu týnt hringnum? var hið fyrsta, sem hann spurði mig um. Mér fannst þvi vera tímabært að segja honum sannleikann. —- Þú ert þó ekki drukkin, Janie? spurði Oscar. *— Er blaðamennska þín kannski aðallega fólgin í því að sitja og þjóra með hinum blaðamönnunum allan daginn? —■ Já, sagði ég og rétti honum hringinn. — Þú ert víst orðin ein af þessum tilfinningalausu, harðgeðja konum, sem ganga alveg upp í starfinu og kæra sig ekkert um að eignast heimili, eiginmann og börn ... — né dem- antshringa, bætti ég við. — Það er vist ekkert við þessu að gera, sagði hann hnugginn. — Þú verður að ráða þessu sjálf. Morguninn eftir mætti ég Jack í dyrunum. — Líttu á myndina á skrifborðinu þínu, Jamie, sagði hann. — Athugaðu hana vel. Ég leit á myndina. Hún var af mér, og samt var eins og ég kannaðist ekki við þessa stúlku. Hún var svo dreymin og ástfangin á svipinn, að — já, það var engu líkara en hún svifi á ljósrauðum skýjum. — Hún er fram úr skarandi góð, finnst þér það ekki? spurði jack með eftirvæntingu. — Þú getur ekki bannað okkur að birta hana. Þetta er síðasta hálmstrá Hamingjusama heimilisins, Janie. -—• 1 sama bili kom Peter. Hann leit á hönd mína, og ég vissi, að hann tók eftir því, að demantshringurinn var horfinn. Ég minntist greinarinnar, sem Jack hafði skrifað um „Hvernig það er að vera trúlofuð," og nú vissi ég, að hvert einasta orð gat staðizt. Auðvitað vil ég ekki beinlínis ráð- leggja neinni ungri stúlku að láta starfsbróður sinn kyssa sig og hvísla viðkvæmum ástarorðum í eyra hans á skrifstofunni klukkan tíu fyrir há- degi, —■ einkanlega ef um yfirmann er að ræða, þvi að þá getur hún átt á hættu að missa atvinnuna. En þetta var samt einmitt það, sem ég gerði. Og þegar Peter loksins sleppti mér, var ég dálitla stund að átta mig, — því að mér fannst alveg eins og ég svifi um á Ijósrauðum skýjum. Nú er ykkúr auðvitað fyrir löngu orðið það ljóst, hvers vegna ég vinn ekki lengur hjá Hamingjusama heim- ilinu. Ég er nú gift Peter Durk yngri og hef eignazt mitt eigið hamingju- heimili, svo að ég var þrátt fyrir allt ekki orðin nein harðgeðja blaðakona. Ágústblaðið vakti mikla athygli og seldist upp á svipstundu, og nú er ritstjórinn ekki lengur í fjárþröng. Auglýsingadeildin er nú á höttunum eftir fyrirmyndarhúsmóðurinni, því að Bill Jones segir, að þessar trúlof- uðu, ungu stúlkur séu svo óútreikn- anlegar, að ógerlegt sé að vinna með þeim. Jón Sigurðsson og José Marcelo. Nú munu utanfarir vera komn- ar í algleyming og íslendingar þeysa hver um annan þveran til annarra landa. Hér áður fyrr þótti það gott ferðalag að halda til Kaupmannahafnar og heim aftur á hálfum mánuði til þrem vikum. Nú er Kaupmannahöfn varla ann- að en viðkomustaður á langri leið. Einnig hefur sá tími lengzt, sem menn eru erlendis, en það er víst lágmark þrjár vikur nú orðið. Að- allega halda menn til hinna suð- rænni landa, svo sem til Spánar og Ítalíu. Enda er það engin furða, þar sem t. d. Spánn er með ódýr- ustu ferðamannalöndum, sem við eigum kost á í Evrópu. Þeir, sem fara til Spánar, eiga þess kost að verða þjónustu Islendings aðnjót- andi, þvi að i þorpinu Tossa de Mar á Bravaströnd (Costa Brava) hafa tveir menn með höndum nokkra fyrirgreiðslu og túlkun fyrir ferða- menn. E’r annar þeirra þrítugur Islendingur, Jón Sigurðsson að nafni frá Isafirði og hinn José Marcelo frá Chile. Þeir tala samtals ellefu tungumál og ættu þvi að geta orðið ferðamönnum að nokkru liði. E'ins og að líkum lætur, annast Jón alla ferðamenn frá Norðurlöndum, þar sem hann talar öll Norðurlandamálin auk ensku, þýzku og ítölsku'. José ann- ast hina. Það vill svo til að Jón er vel að sér i sögu Suður-Ameríku allt írá því áður en Columbus kom þangað fram á okkar daga, en José hins vegar vel að sér um víkingatimann. Þeir félagarnir hafa hugsað sér að vera þarna á Spáni að minnsta kosti næsta ára- tuginn, og er pldrei ag vita að þeir verði þar ævilangt. + Lýst eftir maraþonhlaupara Jón Guðlaugsson, maraþonhlaupari hefur komið að máli við blaðið, og farið þess á leit, að það auglýsi eftir maraþonhlaupara til þess að hlaupa með sér í sumar. Jón hefur einu sinni gert löggilda tilraun til að tryggja sér Islandsmetið í þessari einstöku iþróttagrein fyrir þolin- móðar sjálfspiningarhetjur. Það misheppnaðist af góðum og gildum or- sökum; Jón endaði skeiðið á Melavellinum eftir rúmlega þriggja klukku- stunda hlaup austan af Hellisheiði, — síðari hluta leiðarinnar í myrkri og kulda. Nú ætlar Jón að gera aðra tilraun í sumar og gæti. farið svo, að hún yrði gerð einhvers staðar á Suðurlandsundirlendinu. Þeir eru fáir hér á Islandi, sem leggja stund á maraþonhlaup, — sem betur fer, liggur mér við að segja, en Jóni leiðist að hlaupa einsamall. Það er svo notalegt fyrir hlaupara að vita af öðrum á eftir sér. Þess vegna auglýsir Jón eftir hlaupurum til þess að skokka með sér, en býst þó ekki við, að þeir muni lengi halda í við sig. 20 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.