Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 2

Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 2
2 12. desember 2009 LAUGARDAGUR STJÓRNMÁL Reykjavíkurborg hefur ákveðið að fatlaðir nemendur fái ekki lengur frítt í strætó. Í greinargerð sem lögð var fyrir velferðarráð borgarinnar og síðar borgarráð segir að undanfarna tvo vetur hafi fötluðum framhalds- og háskólanemum staðið til boða að fá ókeypis í strætó eins og ófötluðum. „Í kjölfar þeirra breytinga að ófatl- aðir framhalds- og háskólanemar þurfa nú að greiða fyrir nemakort í strætó veturinn 2009-2010, þykir ástæða til að skoða hvort ekki er eðlilegt að fatlaðir framhalds- og háskólanemar greiði fyrir þjón- ustuna,“ segir í greinargerð- inni. Gert er ráð fyrir því að fatl- aðir nemar sem einnig nýta Ferðaþjónustu fatlaðra geti valið úr tveimur möguleik- um varðandi greiðslu fyrir strætóferðir. Annars vegar að þeir greiði sjötíu krónur fyrir hverja ferð með strætó. Áætlað er að þetta gæti skilað tæplega 1,5 milljón- um króna á ári. Hinn möguleikinn er sá að fatlaðir nemar kaupi sér- stök nemakort sem til eru í tveimur útfærslum. Þar er um að ræða haustkort á 8.000 krónur og vetrarkort sem kostar fimmtán þús- und krónur. „Ef miðað er við að fimmtíu nemendur nýti sér ofangreint tilboð og kaupi vetrarkort má áætla að heildarinnkoma verði allt að 750 þúsund krónur,“ segir í tillögunni sem borgarráð samþykkti á fimmtudag. - gar Borgarráð samþykkir nýjar reglur um fatlað skólafólk: Fatlaðir nemar borgi í strætó JÓRUNN FRÍMANNSDÓTTIR Formaður Velferðarráðs þar sem samþykkt var að byrja aftur að innheimta gjald af fötluðu skólafólki fyrir ferðir með strætisvögnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 14.990 kr. FULLT HÚS JÓLAGJAFA FÉLAGSMÁL Ákvæði um frestun eins mánaðar af fæðingarorlofi þar til eftir þrjú ár í frumvarpi félags- málaráðherra um breytingar á lögum um fæðingarorlof verður breytt í félagsmálanefnd, að sögn Sigríðar Ingibjargar Ingadótt- ur, formanns félagsmálanefndar Alþingis. Nefndin fundaði í gærmorgun og fundar í dag en stefnt er á að vinnu við frumvarpið verði lokið á mánudagskvöld. Að sögn Sigríð- ar Ingibjargar er verið að skoða leiðir til að mæta niðurskurði upp á 1.200 milljónir en hún vildi ekki tjá sig um það frekar hverjar þær væru. Þær leiðir sem hafa verið nefnd- ar eru lækkun hámarksgreiðslna í 300 þúsund og eða lækkun hlut- falls greiðslna úr 80 prósent launa í 75 prósent. Tvisvar á þessu ári hefur hámarksgreiðsla úr fæðingaror- lofssjóði verið lækkuð, 1. janúar úr 520 þúsundum í 400 þúsund og 1. júní í 350 þúsund. Samkvæmt núverandi reglum fá mæður og feður þrjá mánuði hvort í fæð- ingarorlof og eru þrír mánuð- ir sameiginlegir, fæðingarorlof ber að taka fyrir 18 mánaða ald- urs barns og mun vera ríkur vilji innan nefndarinnar til að halda því kerfi. - sbt Félagsmálanefnd breytir frumvarpi um breytingar á fæðingarorlofi: Fallið frá frestun mánaðar af orlofi Í HREIÐRINU Fjöldi hagsmunahópa mótmælti fyrirhugaðri breytingu á fæð- ingarorlofslöggjöfinni. FRÉTTABLAÐIÐ / VALLI DÓMSMÁL Lögreglan á höfuðborg- arsvæðinu hefur að undanförnu yfirheyrt nokkra meinta kaupend- ur vændisþjónustu á vegum Catal- inu Mikue Ncogo. Samkvæmt upp- lýsingum Fréttablaðsins mun vera um allnokkurn hóp að ræða. Kaup- endur greiddu að lágmarki tuttugu þúsund fyrir þjónstuna í hvert skipti, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Við húsleit sem gerð var á heim- ili Catalinu gerði lögregla upptæk- ar tölvur og gögn, sem ætla má að geymi ýmsar upplýsingar um starfsemi hennar hér. Gæsluvarðhald var í gær fram- lengt yfir Catalinu til 22. desember í Héraðsdómi Reykjaness. Sam- starfskona hennar var hins vegar látin laus í fyrradag. Ekki var talin ástæða til að setja fram kröfu um áframhaldandi gæslu yfir henni, þar sem ekki væru þvílíkir rann- sóknarhagsmunir í húfi. Catalina og samstarfskona henn- ar, sem er um tvítugt, voru hand- teknar fimmtudaginn 3. desember. Tveimur dögum áður hafði Catal- ina verið dæmd í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir hórmang og fíkniefnasmygl, með því að hafa skipulagt og staðið að innflutn- ingi á 400 grömmum af kókaíni til landsins frá Hollandi. Hún áfrýj- aði dómnum til Hæstaréttar. Samhliða handtöku kvennanna tveggja var gerð húsleit á tveim- ur stöðum. Á öðrum þeirra fannst lítilræði af fíkniefnum. Að auki voru ýmis gögn haldlögð eins og fyrr sagði. Að minnsta kosti þrjár konur til viðbótar hafa komið við sögu í mál- inu. Þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Þær eru allar á fertugs- aldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál. Lög- regla tók skýrslu af konunum en tvær þeirra munu nú vera farnar úr landi. Þá hafði lögregla fyrir nokkru tekið skýrslu af konu, sem kom hingað til lands til að stunda vændi á vegum samstarfs- konu Catalinu og lýsti hún bágum aðstæðum. Í tengslum við rannsóknina á athæfi Catalinu og samstarfskonu hennar lokaði lögreglan fyrir vændisstarfsemi í húsi í miðborg- inni. Það hafði sérstaklega verið tekið á leigu fyrir starfsemina. Lögregla hóf rannsókn á ætluðu mansali og milligöngu um vændi á grundvelli ítrekaðra upplýsinga um að Catalina og samstarfskona hennar hafi flutt stúlkur til lands- ins, geri þær út til vændis og taki hluta hagnaðarins af þeim. Þá kemur fram að Catalina hafi frá því í október tekið virkan þátt í skipulagningu vændisstarfsem- innar, haft milligöngu um hana og haft viðurværi sitt af vændi ann- arra. jss@frettabladid.is Í DÓMSAL Catalina Mikue Ncogo í dómsal í gær, ásamt túlki. Héraðsdómur úrskurð- aði hana í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. desember. Rannsókn málsins miðar vel, að sögn lögreglu, en henni er hvergi nærri lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Meintir kaupendur vændis yfirheyrðir Nokkrir meintir kaupendur að vændisþjónustu á vegum Catalinu Mikue Ncogo hafa verið yfirheyrðir hjá lögreglu að undanförnu. Þeir greiddu að lágmarki tuttugu þúsund krónur fyrir hverja heimsókn. Catalina situr áfram inni. Úlfar, er þetta nám ekki bara tóm froða? „Nei, fróðleikurinn flæðir um barinn.“ Í bjórskóla Ölgerðarinnar fræðast nem- endur um bjór, eðli hans og eiginlega. Úlfar Linnet er yfirkennari í skólanum. DÓMSMÁL Fangi á Litla-Hrauni hefur verið ákærður af lögreglu- stjóranum á Selfossi fyrir að reyna að smygla fíkniefnum í sjónvarpsflakkara inn í fangelsið. Maðurinn, sem er á þrítugs- aldri, gerði tilraun til að smygla inn í fangelsið tæplega nítján grömmum af amfetamíni, 1,5 grömmum af maríjúana og 29 e- töflum í flakkaranum. Hann hafði útvegað sér tækið og ætlaði að fá efnin send á nafni samfanga síns 11. mars síðastliðinn. Fangaverð- ir á Litla-Hrauni fundu fíkniefnin við leit daginn eftir. Fanginn neit- aði sök við þingfestingu málsins. - jss Fangi á Litla-Hrauni: Fíkniefni í sjón- varpsflakkara VIÐSKIPTI Færeyska flugfélagið Atlantic Airways tekur sæti Ice- landair Group í OMXI6-hluta- bréfavísitölu Kauphallarinnar um áramótin. Sex veltumestu fyrir- tæki á hlutabréfamarkaði í Kaup- höllinni mynda vísitöluna. Nú eru fjögur íslensk fyrirtæki í vísitölunni. Þau verða hins vegar þrjú um áramótin og verða þar þá jafn mörg íslensk og færeysk. Byrjað var að taka saman OMXI6-vísitöluna um síðustu ára- mót og tók hún við af OMXI15-vísi- tölunni. - jab Færeyingar fljúga á markað: Flugfélög hafa skipti í vísitölu VÍSITALAN UM ÁRAMÓT Félag Verðmæti nú í kr. Össur 63,3 ma Marel 46,0 ma Føroya Banki 32,0 ma Atlantic Petroleum 10,8 ma Bakkavör Group 3,3 ma Atlantic Airways 3,7 ma PÓLLAND, AP Fulltrúar Bandaríkj- anna og Póllands hafa undirritað samkomulag um að Bandaríkin sendi bæði herlið og herbúnað til Póllands. Samkomulagið er forsenda þess að Bandaríkin sendi banda- rísk flugskeyti til Póllands og að hugsanlega geti Bandaríkin komið sér upp eldflaugavarnar- búnaði í Póllandi. Pólverjar eru margir hverjir tortryggnir gagnvart Rússlandi og fagna því þessum hernaðar- tengslum við Bandaríkin. Samn- ingaviðræður hafa staðið í fimmt- án mánuði. - gb Pólland og Bandaríkin: Semja um her- lið til Póllands SAMKOMULAGI FAGNAÐ Bogdan Kilch varnarmálaráðherra Póllands og Ellen Tauscher, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið í dag er 160 blaðsíður, sextán síðum stærra en blaðið sem kom út um síðustu helgi og var þá stærsta blað sem komið hafði út í útgáfu- sögu blaðsins. Almenni hluti blaðsins í dag er 104 blaðsíður. Þá fylgir blað- inu tólf síðna menningarblað, tólf síðna atvinnublað, tuttugu síðna blað um vín og veislur og sérblað- ið Allt er tólf blaðsíður. Metið stóð ekki lengi: Fréttablaðið stækkar enn PÁFAGARÐUR, AP Benedikt 16. páfi ætlar að skrifa kaþólsku kirkj- unni á Írlandi bréf þar sem hann mun lýsa því hvernig bregð- ast eigi við upplýsingum um að sumir írskir prest- ar hafi áratug- um saman níðst á börnum og biskupar kirkj- unnar á Írlandi hafi hylmt yfir. Páfinn tók í gær á móti leið- togum kirkjunnar á Írlandi. Að loknum fundinum sendi Páfa- garður frá sér yfirlýsingu þar sem segir að páfinn sé, rétt eins og margir Írar, fullur hneykslun- ar og reiði vegna málsins. - gb Benedikt páfi: Hneykslaður á írsku kirkjunni BENEDIKT PÁFI SPURNING DAGSINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.