Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 158

Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 158
102 12. desember 2009 LAUGARDAGUR „Maður er svo sem vanur því að vera ekki að moka inn peningum á þessu, en núna hélt ég að ég gæti ráðstafað einhverju af þessu og kannski átt einhvern afgang. En, nei, nei, það er aldrei þannig,“ segir Toggi og dæsir. Hann var í bílnum sínum þegar honum var sagt frá upphæð STEF- greiðslunnar. „Ég held að stýrinu hafi aldrei verið misþyrmt jafn harkalega áður,“ segir hann, fliss- ar og bætir við: „Ég gæti svo sem skroppið á ströndina með Ingó, en ég var bara búinn að ráðstafa þessu í annað.“ Toggi ætlar að skoða málið ofan í kjölinn með STEF og von- ast eftir leiðréttingu. „Það getur svo sem vel verið að þetta sé rétt reiknað hjá þeim,“ segir hann og bætir við: „En mér finnst bara mjög skrítið og asnalegt að maður semji vinsælasta lag ársins og sé að fá fyrir það sirka mánaðarlaun lagerstarfsmanns hjá Ísingu eða eitthvað. Þetta er út í hött!“ drgunni@frettabladid.is. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 PERSÓNAN Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755 LÁRÉTT 2. hljóðfæri, 6. klafi, 8. vefnaðarvara, 9. eldsneyti, 11. gjaldmiðill, 12. skot, 14. mjóróma, 16. skammstöfun, 17. beita, 18. sprækur, 20. á fæti, 21. er utar. LÓÐRÉTT 1. á endanum, 3. stefna, 4. aftursæti, 5. drulla, 7. tónleikar, 10. yfirbreiðsla, 13. af, 15. hróp, 16. hláku, 19. númer. LAUSN LÁRÉTT: 2. túba, 6. ok, 8. tau, 9. kol, 11. kr, 12. snafs, 14. skræk, 16. þe, 17. áta, 18. ern, 20. il, 21. ytri. LÓÐRÉTT: 1. loks, 3. út, 4. baksæti, 5. aur, 7. konsert, 10. lak, 13. frá, 15. kall, 16. þey, 19. nr. Söknuður, ævisaga Vilhjálms Vilhjálmssonar eftir Jón Ólafsson, er komin út á hljóðbók. Lög Vilhjálms skreyta bókina, en útgáfan sem kom út á pappír hefur selst vel og verið prentuð í 8.500 ein- tökum. Þegar finna átti mann til að lesa inn á hljóðbókina var ekki leit- að langt fyrir skammt; höfundurinn gerði það að sjálfsögðu sjálfur, enda með afar ómþýða rödd sem þjóðin þekkir. Plakatið við heimildarmyndina From Oakland to Iceland, eftir Ragnhildi Magn- úsdóttur, hefur verið kjörið bíómynda- plakat áratugarins á Íslandi í skoðana- könnun á síðunni Icelandcineman- ow.com. Í öðru sæti var plakatið við myndina Bjarnfreðarson sem er væntanleg á annan í jólum. Í næstu sætum á eftir, með töluvert færri atkvæði, voru plakötin við Engla alheimsins, Nóa albinóa og Sólskinsdrenginn. Það var fjölmiðlakonan Ragnhildur Magn- úsdóttir sem átti hugmyndina að sigurplakatinu en Þórdís Claessen annaðist grafíska hönnun þess. Fréttablaðið greindi frá því á dög- unum að lag Merzedes Club, Meira frelsi, hafi verið valið í sérstaka danslagakeppni vefsíðunnar Eurod- anceweb fyrir Íslands hönd. Kosn- ingin stendur yfir og lagið er sem stendur sjötta til sjöunda sæti með um fjögur prósent atkvæða. Um tvær vikur eru eftir að kosningunni og ljóst er það þarf þjóðarátak til að koma Rebekku Kolbeinsdóttur og félögum á toppinn. Hún er reyndar hætt í hljóm- sveitinni, en söng umrætt lag. - afb/fb FRÉTTIR AF FÓLKI „Ég gef mömmu alltaf mjög flottar jólagjafir, en hún verður kannski aðeins flottari núna. Og svo ætla ég að skella mér á sólar- strönd í viku fyrir peninginn. Ég var búinn að ákveða það. Fyrst ég grísaði á að semja þetta lag var ég búinn að ákveða að nýta inn- komuna fyrir það í það sem lagið fjallar um,“ segir Ingó í Veður- guðunum, sem líkt og aðrir laga- höfundar fékk STEF-greiðsl- ur útborgaðar á fimmtudaginn. Upphæðin sem nú er greidd út er fyrir útvarpsspilun árið 2008. Þá tröllreið lagið Bahama öllu. Ingó samdi lag og texta og var að auki að fá greitt fyrir lagið Drífu, sem kom í kjölfar Bahama og varð líka vinsælt. Ingó er þó ekki nema sæmi- lega sáttur og segir upphæðina fyrir bæði lögin lága. „Upphæð- in stóðst engan veginn væntingar og var töluverð vonbrigði,“ segir hann. „Maður var aðeins búinn að pæla í þessu. Ég ætlaði að eyða svo og svo miklu í jólagjafir og leggja hitt til hliðar, en var svo sem ekkert búinn að eyða þessu fyrir fram. Ég var búinn að heyra í lagahöfundum sem sögðu að ég fengi svakaleg STEF-gjöld fyrir Bahama og var því orðinn nokkuð spenntur. Lagið hefur gefið mér ágætis tekjur fyrir utan þetta svo ég er svo sem ekkert að kvarta. Ég þarf nú samt að athuga þetta mál. Ég heyrði í lagahöfundi sem fékk meira en ég fékk fyrir Bahama fyrir lag sem var bara þokkalega vinsælt í fyrra. Ég set því stórt spurningarmerki við þetta allt saman og þarf að tékka á þessu niðri í STEF-i.“ Hinn stórsmellur síðasta árs var að sjálfsögðu Þú komst við hjartað í mér í flutningi Hjaltalín. Textinn er eftir Pál Óskar, en lagið sömdu Toggi (Þorgrímur Haraldsson) og Sveinbjörn Bjarki Jónsson. STEF- greiðslurnar fyrir hina ofurvin- sælu útgáfu Hjaltalín renna á fjóra staði. Meðlimir Hjaltalín fá tvo punkta af tólf fyrir útsetning- una, Palli fær þrjá punkta, Bjarki tvo og Toggi fimm. Toggi er jafnvel fúlli yfir upp- hæð STEF-greiðslunnar en Ingó. INGÓ VEÐURGUÐ: Á SÓLARSTRÖND FYRIR STEF-GJÖLDIN SMELLIRNIR SKILUÐU LITLU ÞEIR GÆTU FENGIÐ FÍNA STEF-ÁVÍSUN ■ Örlygur Smári fyrir Eurovision- lagið This Is My Life. ■ Barði Jóhannsson fyrir Merz- edes Club-smellinn Ho ho ho We Say hey hey hey. ■ Bragi Baggalútur Skúlason fyrir Kósíkvöld í kvöld og Pabbi minn er ríkari en pabbi þinn. ■ Emilíana Torrini fyrir Jungle Drum, sem var spilað í spað langt fram á þetta ár. ■ Haukur Heiðar Hauksson og strákarnir í Diktu fyrir Just Getting Started sem var annað mest spilaða lagið í fyrra á Rás 2 ÓÁNÆGÐIR MEÐ LÁGAR STEF- GREIÐSLUR Ingó og Toggi sömdu stórsmelli síðasta árs, Bahama og Þú komst við hjartað í mér. Á fimmtudaginn fengu þeir borgað fyrir útvarpsspil- un ársins 2008 og eru ósáttir við það hvað poppsmellirnir gefa lítið af sér. Pétur Grétarsson Aldur: Ég er fimmtugur. Starf: Hljómlistarmaður. Búseta: Reykjavík. Fjölskylda: Ég er kvæntur Margréti Gísladóttur og á tvö börn. Stjörnumerki: Ég er bogmaður. Pétur Grétarsson, ritstjóri tónlistarblaðs- ins Hljómgrunns. Skartpgripahönnuðurinn Hendr- ikka Waage og Hrafnhildur Gunn- arsdóttir kvikmyndaframleiðandi hafa tryggt sér kvikmyndaréttinn að bókinni Baróninn eftir Þórar- in Eldjárn. „Hrafnhildur hafði lengi geng- ið með þá hugmynd í maganum að kvikmynda þessa sögu. Hún hitti síðan Hendrikku Waage, sem einnig hafði hugsað um baróninn lengi vel vegna hlutar sem hún á og hafði eitt sinn verið í eigu barónsins sjálfs. Hrafnhildur og Hendrikka fundu út fyrir tilviljun að þær ættu ást sína á sögu bar- ónsins sameiginlega og eftir það varð ekki aftur snúið,“ segir Val- gerður Benediktsdóttir hjá For- laginu. Baróninn eftir Þórarin Eldjárn kom út árið 2004 og er heimilda- skáldsaga um franska aðalsmann- inn barón Charles Gauldrée Boill- eau, eða Baróninn á Hvítárvöllum eins og hann hefur jafnan verið kallaður. Baróninn var stórættað- ur heimsborgari og hámenntaður listamaður sem kom til landsins árið 1898 í von um að finna sjálf- an sig í íslenskri sveit, órafjarri umbrotum heimsmenningarinn- ar, en arfleifð hans er meðal ann- ars götunafn í Reykjavík, Baróns- stígur. Ekki liggur fyrir hvenær gerð kvikmyndarinnar hefst, en Hrafnhildur verður framleiðandi og Hendrikka meðframleiðandi myndarinnar. - ag Hendrikka gerir kvikmynd um Baróninn SKRIFAÐ UNDIR Þau Hrafnhildur, Hendrikka og Þórarinn Eldjárn, ásamt starfsmanni Réttindastofunnar, skrifuðu undir samning um gerð kvikmyndar eftir Baróninum, bók Þórarins. „Vinkona mín fann þessa ferð fyrir mig á Netinu,“ segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður sem bók- aði tveggja vikna safaríferð til Keníu um jólin ásamt syni sínum, Óðni Páli Ríkharðssyni, 15 ára. Áætluð brott- för er í dag, en þegar blaðamaður náði tali af Hildi Helgu í gær ríkti óvissa um ferðina. „Ég er komin með svo hrikalega hálsbólgu og syni mínum var að slá niður svo við erum bæði á pensillíni. Ég veit ekki hvort þetta er svínaflensa, en þetta er alla- vega svínsleg pest. Ég ætla nú samt að klára að pakka,“ sagði hún. Aðspurð segir Hildur Helga að hana hafi lengi langað að fara í ævin- týraferð með syni sínum. „Ferðin var bókuð í gegnum ferðaskrifstof- una Lastminute.com fyrir nokkrum dögum, undir einhverju sem heitir „last second“. Þetta var ódýr ferð og bara heppni að fá hana, en aðalat- riðið er að komast af landinu. Þetta eru fyrstu jólin án heimilishundsins Skottu sem dó fyrir hálfum mánuði, svo það ríkir mikil sorg á heimilinu,“ útskýrir hún. Þrátt fyrir langt flug segist Hild- ur Helga spennt fyrir ferðinni. „Mér skilst að meðalhitinn þarna sé 28 stig svo þetta verður mjög skrítið. Svo er flugið mjög langt, en það er farið frá Keflavík til Manchester, gist þar eina nótt og svo þaðan til Mombasa í Keníu sem tekur tólf tíma. Mér finnst bara gaman að fljúga en með öllum þessum öryggisreglum og sparnaði er enginn glamúr í flugi lengur,“ segir Hildur sem vonaðist til að komast í ferðina þrátt fyrir veik- indin. „Við krossum bara fingur. Sem betur fer er ég með góðan og traust- an leigjanda sem fer hvergi um jólin þannig að húsið verður ekki mann- laust ef við komumst.“ - ag Óvissa um safaríferð Hildar Í VEIKINDUM Hildur Helga og sonur hennar, Óðinn Páll, vonuðust til að komast í safaríferðina til Kenía á laugar- dag þrátt fyrir veikindi. VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Jóhanna Sigurðardóttir. 2 Playmo-karlarnir. 3 Kristján Gauti Emilsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.