Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 104

Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 104
MENNING 28 Kápan á þessu prósaverki eftir þrælmenntaðan og spakan huga var nýlega valin besta bókarkápan á þessu útgáfuhausti. Hún er götuð tveimur misstórum götum, nafn höfundar þrykkt hvítu eilítið fornlegu letri en í gegn- um gatið lesum við heiti og und- irtitil. Mottó verksins segir okkur grunnstað- reynd: Jörðin er heilsuhæli (Nietzsche), og sögumaður segir ekki frá neinu nema hafa reynt það á eigin skinni (Theresa frá Avila). Ókei. Sögukonan ég er komin á hæli útbrunnin og á að fá bót meina sinna, hælið er miðevr- ópskt, en konan íslensk. Frásögn hennar sem í hönd fer er næst því að vera dagbók, endurminning, lífs- reynslusaga með hverfulum hug- leiðingum um lífið, heiminn, sögu, fjölskyldu, ástina. Textinn er ljós, setningaskipan oft raðskipuð sem setur hugsunina á hreyfingu í lát- litlum straumi. Sögukonan þjapp- ar mörgu í runur, er hugkvæm og nákvæm, svo lesandinn dregst fljótt með. Margt er hér hugsað af miklu viti og rósemi sem er aðlaðandi, þú ert á spjalli við sál sem er reynd og fullorðin, en leyfir sér samt kjána- skap, bernsku og leik. Og hugurinn leitar víða, Þingholtin, Jökul- dalurinn, bróðir og móðir og faðir, ömmur. Í útlöndum fólk af ýmsu þjóðerni, kyni og aldri, margbreyti- legt og áhugavert: skoðandinn er sívök- ulu auga að leita skynjunar í hvers- kyns tilliti; nema, þefa, þreifa. Það fer ekki hjá því að lesandinn taki að slá saman brotn- um myndum og gruna frúna um græsku – skáld- sagan er ekki login heldur per- sónuleg og náin lýsing skrifar- ans – sem er ekki verra því hugurinn sem stýr- ir pennanum er frjór, svolítið tepru- legur; siðprúð stúlka sem lætur ekki draga sig út í neitt ljótt – ónei – vel- uppalinn mótmælandi. Af öllum þeim prósaverkum sem komið hafa fram á þessu ári er þessi ilmskýrsla nýstárlegasta verkið, vönduð og þaulhugsuð og hana gefur lesandi ekki frá sér fullviss þess að bókin fari í glatkistu, upp í hillu eða á sorpuna eins og svo margt prent- ið þessi dægrin. Þetta er texti sem lesandinn á eftir að sækja oft í sér til hugarhægðar og bata í mörgum ólíkum greinum, ilmskýrsla gerir manni jú gott. PÁLL BALDVIN BALDVINSSON Ilmskýrslugerðin Hvernig átti Jón Karl Helgason að ná utan um Ragnar Jónsson, þessa holdklæddu menningarstefnu fyrstu áratuga lýðveldisins? Ekki dugði hin venjulega æviferilsskrá sem í réttri röð rakti samviskulega og af full- komnum svikum við hugann sem skyldi lýsa: það voru ekki jakkaföt sem pössuðu í partíið, það þurfti annan viðbúnað til að ná sálinni, eld- huganum, skýra tenglanetið, afköst- in, greina kjarna ef hægt var í ork- unni sem fór um á Willy’s-jeppa. Og eftir lestur á þessari ævisögu í skáldsöguformi sem hefur þegar storkað viðjum vanans getur les- andi ekki annað en fagnað að Jón Karl skyldi ramba á þessa aðferð: þriggja dag ferð Ragnars Jónsson- ar útgefanda Halldórs Laxness á Nóbelshátíðina lætur hann ramma inn niðurskipað endurlit á ólík og merkileg svið þessa merkilega manns. Útkoman er spennandi saga, Gikkur í veiðistöð MYND AF RAGNARI Í SMÁRA Jón Karl Helgason Niðurstaða: Skáldverk, fullt af gögnum og staðreyndum, um merkilegan anda – og hæfir viðfangsefninu prýðilega. ★★★★★ Jón Karl Helgason bókmennafræðingur Jón Ólafsson tónlistarmaður hefur unnið þarft verk með ævisögu sinni um Vilhjálm Vilhjálmsson. Um Vil- hjálm hefur leikið dularfullur ljómi, allir þekkja hann en lífshlaup hans hefur ekki verið á allra vörum. Úr því er svo sannarlega bætt í þessari vönduðu bók og ljóst er að að baki henni liggur mikil heimildavinna. Jón hefur fyrir löngu sýnt að það liggur ekki síður fyrir honum að tjá sig í orðum en tónum. Hann hefur stýrt útvarps- og sjónvarpsþátt- um og sýnt þar að íslenskan leikur honum á tungu. Bókin um Vilhjálm er þó hans fyrsta og er skemmst frá því að segja að Jóni tekst vel upp. Textinn er lipur og Jón kann að byggja upp frásögn, er ljóðrænn á köflum og þegar við á brýst kímni- gáfan, sem hann reiðir í þverpok- um, fram. Sagan sver sig í ætt við hefð- bundnar ævisögur, æsku og upp- vexti Vilhjálms eru gerð skil, með smá forsögu foreldra, svo er farið í tímaröð yfir ferilinn allt til hörmu- legra endalokanna. Svo hefðbund- in efnistök eiga einkar vel við Vilhjálm, sem skar sig frá jafn- öldrum sínum í tónlistarflutningi sínum; framan af að minnsta kosti. Hann sótti í hefðina, söng danslög með hljómsveitum sem þóttu ekki móðins hjá ungu kynslóðinni sem kenndi sig við bítl. Vilhjálmur virðist hafa verið ein- stakur maður. Hann hefur verið hvers manns hugljúfi og fjölmargir viðmælendur lýsa því hvernig hann greiddi götu þeirra. Skipti þá engu hvort um var að ræða að aðstoða landa sína í útlöndum eða að hjálpa kollegunum að stíga fyrstu skrefin í bransanum. Þá hefur hann verið einstaklega fróðleiksfús og algjör lestrarhest- ur. Hann kláraði flugnámið á milli ballanna á Röðli og hvenær sem laus stund gafst greip hann í bók. Hann var mikill málamaður og var fljótur að læra ný tungumál. Þá var hann andans maður og leitandi í þeim efnum. Þá var hann gott skáld eins og margir textar hans sýna og ein- staklega víðsýnn. Kannski lýsir Ruth Reginalds honum best í viðtali þegar hún var ellefu ára. „Mig langar dálítið til að verða eins og Vilhjálmur Vilhjálms- son. Hann kann að fljúga flugvél og oft flýgur hann hátt, hátt upp og lætur vélina bara sjálfa stýra sér. Síðan fer hann að lesa bók eins og ekkert væri, því að uppi í loftinu er algjör friður.“ Bókin er mjög vönduð, í henni er fjöldi skemmtilegra mynda. Þá eru Að fljúga hátt með VILHJÁLMUR VILHJÁLMSSON Jón Ólafsson Niðurstaða: Vandað og vel unnið verk um hugljúfan mann. ★★★★ HEIM TIL MÍNS HJARTA Ilmskýrsla um árstíð á hæli Oddný Eir Ævarsdóttir Niðurstaða: Merkisrit þessa árs – íhugul hugsun um lífið og skyn- heiminn. ★★★★★ Oddný Eir Ævarsdóttir - Heim til míns hjarta. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.