Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 18
18 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
Um tvö hundruð mótmælendur
voru á götum miðborgar Kaup-
mannahafnar í gær þar sem for-
stjórar stórfyrirtækja funduðu um
loftslagsmál. Fundur þeirra var
ekki á opinberri dagskrá loftslags-
ráðstefnunnar en tengdur henni,
líkt og fjöldi annarra. Mótmæl-
endur börðu bumbur og hrópuðu
að forstjórunum.
Lögreglan hafði mikinn viðbún-
að eins og hún reyndar hefur haft
alla vikuna. Fjörutíu mótmælend-
ur voru handteknir. Engar fregnir
höfðu borist af ofbeldisverkum, en
Henrik Moeller Nielsen, talsmað-
ur lögreglunnar, sagði að fólkið
hefði verið handtekið til að fyrir-
byggja ofbeldi. Lögreglan í Kaup-
mannahöfn hefur fengið auknar
heimildir til handtöku í tengsl-
um við ráðstefnuna. Þá hefur
hún komið fyrir búrum í Valby,
úthverfi Kaupmannahafnar, þar
sem koma má fyrir 346 föngum.
Fjöldi viðburða hefur verið í
tengslum við ráðstefnuna, bæði á
vegum skipuleggjenda og almenn-
ings. Fólk hefur nýtt sér athyglina
til ýmissa mótmæla, bæði tengd-
um loftslagsmálum og öðrum, svo
sem herferð í Afganistan. Mót-
mælin hafa gengið átakalaust
fyrir sig hingað til.
Í dag er boðað til svokallaðs
alþjóðadags aðgerða og er búist við
allt að 60 þúsund manns í göngu
sem leggur upp frá Kristjánsborg
klukkan 13, að staðartíma. Geng-
ið verður að Bella Center, þar sem
ráðstefnan fer fram. Yfirvöld eru
við öllu búin, en gangan á að vera
friðsöm. Á morgun er boðað til
annarrar göngu, sem líklega verð-
ur fámennari, en ekki er eins víst
að hún verði friðsöm.
Allt er enn í járnum á ráð-
stefnunni sjálfri og deila Banda-
ríkjamenn og Kínverjar ákaft
um hvernig fylgst verður með
útblæstri gróðurhúsalofttegunda
í mismunandi löndum. Nokkuð er
deilt um kostnað, en nefnt hefur
verið að langtímakostnaður við
að verja þróunarríki fyrir áhrif-
um hlýnunar jarðar geti hlaupið
á 100 milljörðum evra árlega, um
18.300 milljörðum íslenskra króna
að núvirði.
kolbeinn@frettabladid.is
Fjörutíu handteknir
í Kaupmannahöfn
Um 200 manns mótmæltu á götum Kaupmannahafnar í gær og voru 40 hand-
teknir. Búist er við gríðarlega fjölmennum mótmælum í dag og er lögreglan
með mikinn viðbúnað. Bandaríkin og Kína deila um kostnað við loftslagsmál.
FANGABÚR Lögreglan hefur komið upp búrum þar sem handteknum verður komið fyrir, en hún hefur mikinn viðbúnað í kjölfar
loftslagsráðstefnunnar. Fyrri viku ráðstefnunnar er að ljúka. NORDICPHOTOS/AFP
Leiðtogar hinna 27 aðildarríkja
Evrópusambandsins komu sér í
gær saman um að verja 2,4 milljón-
um evra á ári næstu þrjú ár til að
hjálpa þróunarríkjum að taka þátt
í baráttunni gegn hlýnun jarðar.
Þessi upphæð samsvarar um 450
milljónum króna á ári.
Leiðtogarnir áttu í nokkrum erf-
iðleikum með að ná samstöðu um
þetta framlag á tveggja daga fundi
sínum í Brussel. Fátækari ríkin í
austanverðri álfunni voru treg til
þátttöku, en auðugri ríkin vestan
megin lögðu mikla áherslu á að
Evrópusambandið verði í forystu í
baráttunni gegn losun gróðurhúsa-
lofttegunda.
Bretar, Frakkar og Þjóðverjar
féllust á að greiða mest í þennan
sjóð, samtals nærri 1,9 milljónir
evra á ári.
Evrópusambandið hafði fyrir
fundinn heitið því að draga fyrir
árið 2020 úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda um 20 prósent frá því sem
var árið 1990, en býðst nú til að
auka það upp í 30 prósent ef önnur
helstu mengunarríki heims gera
slíkt hið sama á loftslagsráðstefnu
Sameinuðu þjóðanna í Kaup-
mannahöfn. Leiðtogafundurinn í
vikunni er sá fyrsti frá því Lissa-
bon sáttmáli Evrópusambandsins
tók gildi um síðustu mánaðamót.
- gb
Loftslagsmálin allsráðandi á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel:
Þróunarríkin fá fjárstuðning
MERKEL OG ASHTON Angela Merkel
Þýskalandskanslari og Catherine Ashton,
utanríkisfulltrúi Evrópusambandsins, á
leiðtogafundinum í Brussel. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Loftslagsráðstefnan í Kaupmannahöfn
Jóhann Ólafsson & Co
NÚNA!
SKIPTU
OSRAM SPARPERU
R
ALLT AÐ
80%
ORKU-
SPARNAÐ
UR
SJÁÐU HEIMINN Í NÝJU LJÓSI
SPARAÐU með
OSRAM SPARPERUM.
80% orkusparnaður
6-20x lengri líftími
Umhverfisvænar
Fjölbreytt úrval
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Heimilistæki, stór og
smá, ljós og símar í
miklu úrvali.
Líttu inn og gerðu
góð kaup. Við tökum
vel á móti þér.
A
T
A
R
N
A
fyrir
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
TAX-FREE DAG
AR
ALLAR VÖRUR
VERSLUNARI
NNAR ÁN VSK
!*
FRÁ LAUGARD
EGI TIL SUNN
UDAGS!
STÆRSTA OUTLET LANDSINS!
*Gildir ekki af DVD-diskum og hlaupahjólum. Ríkissjóður fær virðisaukaskatt af öllum seldum vörum. Afslátturinn er alfarið á kostnað MerkjaOutlet.
KORPUTORGI
FÓTBOLTABÚNINGARNIR
KOMNIR AFTUR
Auglýsingasími
– Mest lesið
Ríki heims verða helst að hætta
alveg losun gróðurhúsalofttegunda,
eða að minnsta kosti að minnka los-
unina um helming fyrir árið 2050,
samkvæmt drögum að samkomu-
lagstexta sem dreift var á lofts-
lagsráðstefnunni í Kaupmanna-
höfn í gær.
Samkvæmt drögunum verða auð-
ugri ríki veraldar að taka á sig mun
meiri samdrátt, um 25 til 40 pró-
sent fyrir árið 2020 frá því sem
losunin var árið 1990. Verði nið-
urstaða ráðstefnunnar á þessum
nótum er gengið töluvert lengra en
ríki heims hafa til þessa gefið fyrir-
heit um. Þó tók Evrópusambandið í
gær af skarið og hét því að draga
úr losun um þrjátíu prósent fyrir
árið 2020, en þó því aðeins að önnur
auðug ríki gerðu slíkt hið sama.
Engar ákveðnar tölur eru þó
nefndar í drögunum um skiptingu
kostnaðar milli ríkjanna, sem er
eitt helsta deilumál ráðstefnunnar.
Samkomulagið, sem vonir standa til
að verði að veruleika áður en ráð-
stefnunni lýkur í næstu viku, hefur
verið í smíðum í tvö ár. Í drögunum,
sem eru sex blaðsíður, eru saman
komin meginatriði þeirra tillagna
sem verið hafa í umræðunni. - gb
Drögum að samkomulagi loftslagsráðstefnunnar í Kaupmannahöfn dreift í gær:
Tillögur um mikinn samdrátt
BJÖRGUNARHRINGUR Claudia Roth,
leiðtogi þýskra Græningja, og Jakob
Norhoj frá Sósíalíska þjóðarflokknum í
Danmörku, setja björgunarhring utan
um jarðarlíkan fyrir utan danska þjóð-
þingið. FRÉTTABLAÐIÐ/AP