Fréttablaðið - 12.12.2009, Qupperneq 26
26 12. desember 2009 LAUGARDAGUR
B
yrjum í pólitíkinni, hvernig er
í vinnunni?
„Áhugavert er fyrsta orðið
sem kemur upp í hugann.
Stundum er gaman og stund-
um ekki, svona eins og gengur
í lífinu. Þarna er umferðarmiðstöð valdsins
og stundum hægt að hafa einhver áhrif en
það er líka hægt að sökkva sér niður í þung-
lyndi yfir því hvað völd eins þingmanns eru
lítil. Sérstaklega þingmanns sem ekki til-
heyrir ríkisstjórnarflokki.“
Þráinn fylgdist vel með pólitíkinni áður
en hann settist á þing. Hann segir að eftir
að þangað var komið hafi hann fengið stað-
festingu á því sem hann taldi sig vita; að
ágreiningur milli stjórnmálaflokka væri
mjög djúpstæður og að þeir væru fastir í
gömlum hjólförum. „Öðrum þræði voru það
vonbrigði. Og eins að upplifa það að vald
þingmanna er ósköp takmarkað. Það getur
verið erfitt að geta ekki framfylgt vilja
fólks og látið óskir rætast. En á hinn bóg-
inn er það prýðilegt því ég held að ástand-
ið í landinu væri enn þá skelfilegra ef vald
einstakra þingmanna væri miklu meira en
það er.“
Stoðar lítið að leggjast í rúmið
Við víkjum að ástandinu. Þráinn þekkir
marga og heyrir í mörgum og er í ágætri
aðstöðu til að meta sálarástand þjóðarinn-
ar. „Ég held að það sé ágætt. Þetta er harð-
ger þjóð sem hefur lifað lengi við erfiðar
aðstæður og þekkir bæði mikinn afla og
aflabrest. Í sjálfu sér held ég að þjóðin sé
ekki í sálrænni hættu út af kreppunni eða
hruninu, sem nú er innan gæsalappa hjá
Morgunblaðinu. Þetta hrun var efnahags-
legt. Miklum peningum var stolið, glatað
eða sóað en þetta voru ekki náttúruhamfar-
ir, það fórust ekki byggðarlög, það hrundu
engin hús, opinberar byggingar standa,
stjórnkerfið virkar, menningararfurinn er
óskemmdur, menntunin er enn til staðar og
auðlindirnar óskaddaðar.
Þegar maður lítur á ástandið úr ákveðinni
fjarlægð eru þetta tímabundnir erfiðleikar
sem ég geri ekki lítið úr en mín reynsla er
sú að þegar maður mætir erfiðleikum stoð-
ar lítið að leggjast í rúmið og hrópa að það
sé kominn heimsendir. Þá er kominn tími
til að leggja sig meira fram en endranær
og reyna að byggja upp aftur það sem hefur
verið brotið niður, og reyna kannski að gera
það örlítið betur.“
Fjarlægðumst sjálf okkur
Þráinn telur að þjóðin geti lært af hruninu
og er í aðra röndina feginn því að andrúms-
loft það og lifnaður sem kennd eru við árið
2007 sé baki. „Ég held að þessi kreppa geti
fært okkur merkilega lexíu ef við viljum
leggja við eyrun og læra. Við vorum ekki á
góðri leið. Ég er búinn að lifa nokkuð lengi
og hef aldrei lifað leiðinlegri og andstyggi-
legri tíma en frá svona 2004 til 2007. Allt
gekk út á peninga. Maður komst ekki á milli
húsa án þess að heyra hagfræðilegar útlist-
anir eða fréttir af viðskiptagöldrum. Það
var eins og peningar væru inntak mann-
lífsins. Ég held að við höfum verið komin
býsna langt frá sjálfum okkur og ég vona að
þetta dugi til að kenna okkur að þó að pen-
ingar séu ein af nauðsynjum lífsins gengur
lífið ekki út á þá. Öðru nær. Það eru önnur
verðmæti og merkilegri.“
Leiðinlegt fremur en erfitt
Aftur á þing. Aðstæður Þráins eru aðrar en
eftir kosningarnar í apríl. Í stað þess að sitja
í fjögurra manna þingflokki Borgarahreyf-
ingarinnar er hann einn á báti og Borgara-
hreyfingin án þingmanns. Hann segir þá
stöðu bæði góða og slæma. „Ég held að það
sé útilokað að svara því hvor sé hamingju-
samari, einyrki í búskap eða maður sem
starfar á samyrkjubúi. Tækifærin eru mis-
munandi og leikreglurnar ólíkar. Ég er ein-
fari í eðli mínu svo að prívat og persónulega
líður mér alls ekki illa. En burtséð frá því
er Alþingi skemmtilegur vinnustaður að því
leyti að megnið af því fólki sem þar vinnur
er afskaplega notalegt, hlýlegt og jafnvel
skemmtilegt,“ segir Þráinn og á þar bæði
við starfsfólk og þingmenn.
Þráinn sagði sig úr þingflokknum eftir
frægt bréf Margrétar Tryggvadóttur þing-
flokksformanns þar sem hún lýsti áhyggj-
um af heilsufari hans. Hann segir þá tíma
hafa verið óskemmtilega fremur en erfiða.
„Ég er vanur því að takast á við alls konar
vandræði og vandamál enda ekki fæddur
með silfurskeið í munni. Ég hef alltaf þurft
að hafa fyrir hlutunum svo mér fannst þetta
í raun og veru ekki erfitt, en að sjálfsögðu
ekki skemmtilegt. Það er ekki gaman þegar
upp kemur djúpur ágreiningur og að verða
fyrir atvinnurógi, þess óska ég engum
manni.“
Ýmsar þreifingar
Hann segir að þó að hann sé ekki þingmaður
Borgarahreyfingarinnar starfi hann eftir
sem áður samkvæmt stefnuskrá hennar,
þeirri sömu og hann barðist fyrir í aðdrag-
anda kosninga. Svo verði áfram. En hefur
hvarflað að honum, í ljósi þess að hin þrjú
sem kjörin voru á þing fyrir Borgahreyf-
inguna eru horfin á braut, að ganga á ný í
Borgarahreyfinguna og gerast þingmaður
hennar? „Sko. Eitt af því sem ég hef lært á
þessum stutta tíma er að það eru margvís-
legar þreifingar í gangi. Ég held góðu sam-
bandi við marga af félögum mínum í Borg-
arahreyfingunni og útiloka ekki að nánara
samstarf geti tekist með okkur einhvern
tíma í framtíðinni. En ég verð þess líka var
að fleiri stjórnmálaflokkar myndu taka vel
á móti mér. Ég útiloka ekkert en er ekki á
leið í langvarandi samband. Í augnablikinu
er ég bara piparsveinn í pólitík og lifi mínu
piparsveinalífi.“
Ríkisstjórnin taki á sig rögg
Þráinn vill engu svara um hvort hann sé á
leið í Samfylkinguna eins og stundum heyr-
ist en óneitanlega renndi atkvæði hans í
Icesave-málinu stoðum undir slíkar kenn-
ingar. Hann vísar til samviskunnar; hann
styðji ríkisstjórnina þegar honum þyki
ástæða til og ekki þegar svo ber undir. „Ég
er ekki í formlegu sambandi né samstarfi
við stjórnina og svo mikið er víst að ef ég
á að halda áfram að styðja hana þegar hún
þarf á stuðningi að halda og hennar eigin
flokksmenn hlaupast undan merkjum þá
verður stjórnin að taka á sig rögg og gera
núna loksins það sem hún átti að byrja á að
gera, að slá skjaldborg um fólkið í landinu.
Flestar aðgerðir stjórnarinnar hafa verið
í sambandi við fjármálalífið og efnahagslíf-
ið og það er kannski eðlilegt. Þar varð hrun-
ið og þar eru rústirnar. Hundruð og jafnvel
þúsundir milljarða króna af skuldum óráð-
síumanna hafa verið afskrifaðar með einum
eða öðrum hætti og nú er óhjákvæmilegt að
stjórnin snúi sér að þeim vanda sem snýr
að einstaklingum og fjölskyldum,“ segir
Þráinn og rifjar upp baráttumál Borgara-
hreyfingarinnar um að færa beri höfuðstól
verðtryggðra húsnæðislána til þess sem
hann var í byrjun síðasta árs auk þess sem
ANDSTYGILEGIR TÍMAR Þráinn, sem varð 65 ára fyrir fáeinum dögum, kveðst aldrei hafa lifað leiðinlegri og andstyggilegri tíma en frá svona 2004 til 2007 þegar allt
gekk út á peninga . FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Piparsveinn í pólitíkinni
Það hefur alltaf farið talsvert fyrir Þráni Bertelssyni í samfélaginu. Landsmenn þekkja mynd-
irnar hans og bækurnar og lásu beinskeytta samfélagsgagnrýni hans í Fréttablaðinu. Nú er
Þráinn á þingi. Björn Þór Sigbjörnsson spjallaði við hann um þingstörfin, listina og fleira.
FRAMHALD Á SÍÐU 28
… mín reynsla
er sú að þegar
maður mætir
erfiðleikum stoðar lítið að
leggjast í rúmið og hrópa að
það sé kominn heimsendir.
Þá er kominn tími til að
leggja sig meira fram …