Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 62

Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 62
vín&veisla4 Bjarni Þór • Bjarnithor@365.is • Sími 5125471 Vín og veisla Kemur út 29. desember Auglýsendur vinsamlegast hafi ð samband FRAKKLAND Frönsk víngerð á sér langa sögu en hana má rekja allt til 6. aldar fyrir Krist þegar rómverska heimsveldið ríkti yfir Frakklandi. Það leyfði ákveðnum svæðum í suðurhluta Frakklands að hefja framleiðslu á vínum. Í dag er víngerð ein af auðlindum Frakka en þar er að finna uppsprettu margra þekktra þrúgna eins og Cab- ernet Sauvignon, Chardonnay, Pinot Noir, Sauvignon Blanc og Syrah. Frakkar eru þekktir af vínmenningu sinni og er hún eitt af því helsta sem þessi mikla menningarþjóð leggur metnað sinn og stolt í. Víniðnaðurinn er mikilvægur í landinu en Frakkar tappa víni á 7-8 milljarða flaskna árlega, sem gerir þá að umsvifa- mestu framleiðendum í heimi. Þeir eru líka heimsins mestu útflytjend- ur, með um 34 prósent af heims- markaði. Víða um heimsbyggðina vill fólk njóta hinna frönsku vína, jafnvel þótt samkeppni frá öðrum löndum fari vaxandi. Frakkland mesti vínframleiðandi í heimi 3 RAUÐVÍN 4 HVÍTVÍN Franska fyrirtækið GCF Group er umsvifamesti vínútflytjandi Frakk- lands. Það framleiðir vín undir merkjum J.P. Chenet en í því merki fást tegundir á borð við Cabernet Sauvignon, Merlot, Chardonnay, Columbardi Chard- onnay, Cabernet Shiraz og Merlot Cabernet, svo og nokkrar tegundir freyðivína. J.P. Chenet er kannski best þekkt fyrir hina sérstæðu lögun vínflöskunnar sem hönn- uð var af Joseph Helfrich, for- stjóra fyrirtækisins. Lögun flöskunnar er þannig að hún virðist hafa bráðnað lítillega og þótti hún marka tímamót. Flask- an var enda erfið í framleiðslu í upphafi og finna þurfti upp nýjar leiðir til að tappa víninu á flöskuna á færibandi. J.P. Chenet á sér ekki langa sögu. Það var fyrst sett á mark- að árið 1984 en hugmynd fram- leiðandans var að það yrði áber- andi á fremur hefðbundnum markaði Frakklands. Sérstök lögun flöskunnar hjálpaði til við að koma víninu á kortið hjá almenningi innan- lands en ekki síður utan. Vínið var fyrst markaðssett í Þýska- landi og síðan í Hollandi og á Norðurlöndum og náði fljótt vin- sældum. Í dag er það selt í yfir 160 löndum. Vinsælasta vínið er þó án efa Cabernet Shiraz. Vínþrúgur sem notaðar eru hjá J.P. Chenet koma ekki af einni sérstakri vínekru heldur hefur GCF fjölmarga vínbænd- ur á sínum snærum. Flestir þeirra rækta vínvið í Gascogne- héraði í suðvesturhluta Frakk- lands og Languedoc-héraði í suðurhluta landsins. J.P. Chenet Flaskan vakti athygli VINEKRA Vínekrur setja mikinn svip á Frakkland, sem er þekkt fyrir vínframleiðslu á heimsmælikvarða. NORDICPHOTOS/GETTY J.P. CHENET MEDIUM SWEET Tæplega meðalopinn ilmur. Gul melóna, rautt greipaldin og blóm. Hálfsætt með góða sýru. Sítróna, rautt greipaldin og appelsína. Ágæt ending og gott eftirbragð. Hentar með ávaxtasalötum, pasta með bragðmiklum rjómasósum og smellpassar með sjávarréttum. Kr. 1.499. J.P. CHENET CABERNET-SYRAZ Tæplega meðalopið. Sætt og þroskað. Kirsuberjasulta, möndlumassi, sólber, rósapipar og súkkulaði. Bragð: Meðalbragðmikið og ljúft. Góð sýra og mjúk tannín. Kirsuber. Dökk ber. 83 stig í Wine Spectator september 2002. Mest seldu vín Frakklands. Kr. 1.599. LAMOTHE- VINCENT HÉRITAGE Ekta Bordeaux-vín sem er blanda af Merlot og Cabernet Sauvignon. Einstaklega hentugt vín með íslenska lambinu og villibráð. Verð í Vínbúðum 2.290. DOMAINE DES MALANDES PETIT CHABLIS Ungur Chablis sem einkennist af ljósum ávexti og eplum í góðu jafnvægi. Þessi frábæri Petit Chablis nýtur sín sérstaklega vel með humri og kalkúni en passar einnig vel með öllu ljósu kjöti. Kr. 2.290. DELAS VIOGNIER VDP RHONE Ákveðinn í ilmi, apríkósur, ferskjur, melóna og aðrir hitabeltisávextir með vott af sítrusávöxtum, blómlegur af fjólum og liljum. Í bragði koma ávextirnir vel fram í mjúku og fersku bragði. Hentar flestum fiskréttum, sítróna og smjörsósur eiga vel við. Hentar líka sem fordrykkur eða með köldum forréttum. Kr. 1.986. DELAS SYRAH VDP RHONE Kröftugt í ilmi af villtum berjum og kryddum. Í munni berast öll þessi brögð, afgerandi sólber og önnur rauð ber gefa víninu fína mýkt og skemmtilegt eftirbragð. Þægilegt vín með villibráðinni og lambi. Kr. 1.804. PETIT – CHABLIS 2007 Fallega fölgylltur að lit með grænum glampa, ferskur blómaangan, þroskaðar ferskjur, apríkósur og vottur af fjólum sem leiðir mann í fínlegan ilm af furutré. Lifandi og svolítið ágengt í munni með mjög sprækri sýru og sítrónuávexti, þarf mat til að tempra sig. Gott matarvín fyrir einfalda en vandaða fiskrétti. Kr. 2.290.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.