Fréttablaðið - 12.12.2009, Blaðsíða 83
LAUGARDAGUR 12. desember 2009 9
Framkvæmdastjóri
SAMFOK, samtök foreldra grunnskólabarna í Reykjavík,
óska eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa í 80% starf.
Starfssvið
• Umsjón með daglegum rekstri
• Upplýsingar og ráðgjöf um skóla- og uppeldismál til foreldra,
foreldrafélaga, skólaráða og annarra
• Viðhald og uppfærsla heimasíðu
• Fjármál
• Kynning, fræðsla og útgáfumál
• Þátttaka í nefndum og starfshópum um skóla- og uppeldismál
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf
• Góð enskukunnátta og kunnátta í einu Norðurlandamáli
• Þekking á skólamálum og þátttaka í foreldrasamstarfi í
grunnskóla
• Góð tölvuþekking
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og færni í að koma
fram fyrir hóp fólks
• Jákvæðni, frumkvæði og metnaður
• Skipulögð vinnubrögð
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi. Viðkomandi þarf
að geta hafi ð störf sem fyrst. SAMFOK eru frjáls félagasamtök
sem stofnuð voru árið 1983. Markmið samtakanna eru að
standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska, að
beita sér fyrir auknum áhrifum foreldra á skólastarf, að vera
sameiginlegur málsvari foreldra gagnvart stjórnvöldum, efl a
samstarf aðildarfélaganna og annast sameiginleg verkefni.
Sjá nánar á www.samfok.is
Upplýsingar um starfi ð veita Hildur Björg Hafstein, formaður,
gsm. 8959554/hildurbjörg66@gmail.com og Guðrún
Valdimarsdóttir, framkvæmdastjóri, gsm. 8992150,
samfok@samfok.is.
Umsóknarfrestur er til 30. desember n.k. Umsókn ásamt ferilsskrá
sendist SAMFOK, Suðurlandsbraut 24, 3. hæð, 108 Reykjavík
eða á tölvupóst samfok@samfok.is
Suðurlandsbraut 24, 3. hæð, 108 Reykjavík
Sími: 562 7720, Netfang: samfok@samfok.is, Veffang: samfok.is
Íslenski menningararfurinn - verkefnisstjóri
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi auglýsir laust til umsóknar hálft
starfsgildi verkefnastjóra til 5 mánaða eða frá 1. febrúar 2010.
Um er að ræða samvinnu- og tilraunaverkefni Símenntunar-
miðstöðvarinnar á Vesturlandi, Snorrastofu í Reykholti, Nepal -
hugbúnaðar ehf. og Landnámsseturs.
Markmiðið með verkefninu er að kenna íslenska bókmenntaarfi nn í
fjarnámi í gegnum Internetið, en litið er til Noregsmarkaðar í fyrstu en til
framtíðar m.a. til annarra Norðurlanda, Þýskalands, Skotlands og Kanada.
Verkefnisstjóri leiðir þróunarstarf á sviði kennslu á Internetinu í nánu
samstarfi við Nepal - hugbúnað og Snorrastofu.
Á meðal verkefna hans er:
• Umsjón með uppsetningu námskeiða um forníslenska menningararfi nn
á Internetinu í tilraunaskyni
• Leiðir þróunarverkefnið í samræmi við viðskiptaáætlun
• Hefur frumkvæði að því að byggja upp tengslanet og beitir sér fyrir
öfl ugu samstarfi við alla hagsmunaaðila
Hæfniskröfur:
• Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að takast á við fjölbreytileg
verkefni, vinna í hópi, túlka og leiða samstarf á farsælan hátt
• Fjölþætt reynsla af verkefnavinnu er æskileg
• Innsýn og reynsla af fræðslustarfi er kostur
• Munnleg og skrifl eg færni í amk. einu norrænu tungumáli og ensku er
skilyrði
Umsóknum skal skilað til Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes, merkt: Íslenski menningararfurinn-
verkefnisstjóri eða í tölvupósti á netfangi: ingadora@simenntun.is
Umsóknarfrestur er til 20. desember 2009.
STÖRF ÞERAPISTA Í MST
Barnaverndarstofa hefur starfrækt svokallaða fjölkerfameðferð
(Multisystemic Therapy - MST) sem er gagnreynd meðferð með
fjölskyldum unglinga með alvarlegan hegðunarvanda sem annars
þyrftu vistun utan heimilis. MST miðar að því að efl a foreldrahæfni
og bæta samheldni og samskipti í fjölskyldu. Meðferðin fer fram á
heimili fjölskyldunnar og í nærsamfélagi í samstarfi við skóla og aðra
lykilaðila. Aðgengi er að ákveðnum meðferðaraðilum (þerapistum) í
síma allan sólarhringinn.
Óskað er eftir einstaklingum með háskólapróf á sviði heilbrigðis- eða
félagsgreina og góða faglega þekkingu og reynslu af meðferðarvinnu
í 3 stöður þerapista sem mynda saman 3ja manna teymi undir stjórn
handleiðara/teymisstjóra. Teymið er til viðbótar við það teymi sem nú
starfar. Um er að ræða fullt starf og er unnið eftir meðferðarreglum
og aðferðum MST í samstarfi við erlendan MST sérfræðing. Nánari
upplýsingar um störfi n og ráðningarskilyrði er að fi nna á Starfatorgi
(www.starfatorg.is).
Við úrvinnslu umsókna um störfi n gildir mat Barnaverndarstofu
á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningum Barnverndarstofu við viðkomandi stéttarfélög. Í
byrjun fá starfsmenn 5 daga grunnþjálfun í MST og reglulega þjálfun
í framhaldi.
Umsóknarfrestur er til 21. desember. Viðkomandi þurfa að geta
hafi ð störf eigi síðar en 1.apríl. Allar umsóknir gilda í sex mánuði
frá lokum umsóknarfrests ef starf losnar að nýju.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Hauksson á Barnaverndarstofu
í síma 530 2600 (www.bvs.is). Umsóknum má einnig skila
rafrænt til halldor@bvs.is.
BARNAVERNDARSTOFA Verkstjóri í viðhaldi á Akureyri
Norðlenska ehf. auglýsir laust starf verkstjóra í
viðhaldi fyrir sláturhús og kjötvinnslu fyrirtækisins
á Akureyri. Starf verkstjórans felst m.a. í umsjón
með viðhaldi á framleiðslutækjum fyrirtækisins.
Einnig að hafa samskipti við birgja og tæknimenn
þeirra, sem og verkstjóra og vinnslustjóra Norð-
lenska á Akureyri
Hæfniskröfur:
• Rafvirki og/eða vélvirki.
• Reynsla af viðgerðum og viðhaldi tækja.
• Reynsla af almennu viðhaldi.
• Æskilegt er að viðkomandi geti bjargað sér
á ensku, skrifaðri og talaðri.
• Góð samskiptahæfni er nauðsynleg.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember 2009.
Öllum umsækjendum verður svarað.
Frekari upplýsingar veitir Reynir B. Eiríksson
framleiðslustjóri, reynir@nordlenska.is
Umsóknir skulu berast á rafrænu formi á netfangið
jona@nordlenska.is
Auglýsingasími
– Mest lesið
Við leitum að skapandi einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með góðum hópi.
HÆFNISKRÖFUR:
Menntun í fatahönnun skilyrði.
Góð reynsla í fatahönnun og fataframleiðslu skilyrði.
Góð þekking á sníðagerð æskileg.
Góð enskukunnátta, bæði töluð og skrifuð.
Viðkomandi þarf að hafa góða tölvukunnáttu,
þ.a.m. í Illustrator, Photoshop og helstu Office forritum.
Nákvæmni og öguð vinnubrögð.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Áhugi á tísku og útivist.
Starfið er mjög ölbreytt og viðkomandi kemur til með að koma að hinum ýmsu
ferlum sem tengjast því að skapa og byggja upp vörulínu í samvinnu með öðrum
hönnuðum.
Starfið er tímabundið til 1 árs, en með möguleika á framlengingu.
Nánari upplýsingar veitir Elva Rósa Skúladóttir í síma 699-7911
og á netfanginu starfsumsoknir@sportis.is
Áhugasamir eru beðnir um að skila inn ferilskrá sem greinir frá menntun
og fyrri störfum í tölvupósti á netfangið starfsumsoknir@sportis.is merkt
„Fatahönnuður“ fyrir 20. desember nk.
CINTAMANI ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA FATAHÖNNUÐ
Í TÍMABUNDIÐ STARF