Fréttablaðið - 12.12.2009, Side 87
LAUGARDAGUR 12. desember 2009 7
Áhugi á ljósmyndun hefur aukist
gríðarlega, enda gera sjálfvirku,
stafrænu myndavélarnar áhuga-
manninum auðveldara að taka
góðar myndir en áður. Það er samt
að ýmsu að huga eins og Lárus Karl
Ingason, formaður Ljósmyndarafé-
lags Íslands, bendir á.
„Það er aðeins hægt að benda á
nokkra punkta í svo stuttri grein.
Hjá mörgum er hefð að taka mynd
af börnum fyrir framan jólatréð en
til að ná góðri mynd þarf fyrst að
huga að uppstillingunni. Ef börn-
in eru á misjöfnum aldri og stærð
þurfa sum ef til vill að vera á stól
eða kolli. Þá verður að gæta þess að
barnastóðið hylji ekki alveg jólatréð,
heldur að það sé annað hvort hægra
eða vinstra megin,“ segir Lárus
Karl. Hann segir að stafrænu vél-
arnar séu flestar bæði með sjálf-
virka og handvirka stillingu sem er
oftast merkt með stafnum m (manu-
al) eða á „hálft tungl“-stillingu.
„Ég myndi nota handvirka still-
ingu, nota ljósnæmi frá 400-800 asa
og stilla hraðann á 4,8 eða 15 en það
er gott að prófa sig áfram. Þá nær
myndavélin að lýsa upp ljósin á jóla-
trénu, og það sama á við um kerti, og
blanda birtunni í stofunni saman við
flassið á myndavélinni, svo útkom-
an verði falleg. Þá má ekki gleyma
því að taka myndina í sömu hæð og
börnin en ekki ofan á þau.”
Ljósmyndarinn hefur oft tekið
myndir af jólaborði. „Það er mik-
ilvægt að taka myndir af borðinu
áður en máltíðin hefst og borðið ef
til vill orðið subbulegt. Það er einnig
skemmtilegra að fá alla þá sem sitja
við borðið að endanum á því og taka
myndina þannig að allt jólaborðið
sjáist heldur en að taka myndina af
veislugestum sitjandi, snúandi höfð-
inu að ljósmyndaranum. Það dregur
einnig úr líkum á rauðum augum ef
mynd er tekin með víðri aðdráttar-
linsu og um að gera að forðast lítinn
aðdrátt í lítilli birtu. Það vill eng-
inn vera með rauð augu á jólunum,“
segir hann og brosir.
Hvað jólaboðið varðar hefur ljós-
myndarinn líka með gott ráð. „Það
er oft fallegast að biðja fólk einfald-
lega um að stilla sér upp, 2-6 á mynd,
heldur en að taka mynd þeim að
óvörum frá misfallegu sjónarhorni
og nota þá endilega sjálfvirku still-
inguna á myndavélinni,“ segir Lárus
Karl, sem reyndar tók ekki svo jóla-
legar myndir fyrir þessi jól. „Nei, í
ár voru það silungaflugur sem voru
fyrir framan linsuna en myndirnar
prýddu bókina Silungaflugur sem
kom út nú um jólin. Þær voru mjög
stilltar og meðfærilegar í mynda-
tökunni,“ segir hann og hlær.
unnur@frettabladid.is
Góð ráð við jólamyndatökuna
Ljósnæmi, hraði, flass, uppstilling, aðdráttarlinsa og fleira er það sem fólk þarf að hafa í huga við töku jólamyndanna.
Lárus Karl er vanur að mynda jafnt börn fyrir hátíðir sem og sil-
ungaflugur og náttúruna sjálfa. Falleg mynd af börnum fyrir framan jólatré.Falleg mynd af sætum dreng sem hlakkar til jólanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR