Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 130

Fréttablaðið - 12.12.2009, Page 130
74 12. desember 2009 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Ástkær mamma okkar, Ingibjörg Sigurðardóttir Ásgarði, Dalasýslu, lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Silfurtúni sunnudaginn 6. desember. Bjarni Ásgeirsson Benedikt Ásgeirsson Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Haraldur Steinar Torfason fyrrum bóndi í Haga í Nesjum, lést á hjúkrunardeild HSSA, Hornafirði, fimmtudaginn 10. desember. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju mið- vikudaginn 16. desember kl. 11.00. Jarðsett verður í Stafafellskirkjugarði í Lóni sama dag. Elín Dögg Haraldsdóttir Gunnar Björn Haraldsson Guðrún Kristjánsdóttir Halldór Sölvi Haraldsson Anna Halldórsdóttir Sigrún Brynja Haraldsdóttir Þorvaldur Helgason Þorleifur Haraldsson Harpa Cilia Ingólfsdóttir Ivon Stefán Cilia barnabörn, barnabarnabarn og systkini. Kær vinur okkar og samferðamaður í lífinu, Hrafn Sæmundsson lést þann 10. desember síðastliðinn. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju mánudaginn 21. desember kl. 13.00. Ester Hulda Tyrfingsdóttir Agnes Huld Hrafnsdóttir Páll Breiðfjörð Pálsson Hulda María Hrafnsdóttir Björn Hersteinn Herbertsson Berglind Hrönn Hrafnsdóttir Ólafur Vignir Björnsson Eva María, Viktor Hrafn, Páll Elvar, Sindri Freyr, Hrafnhildur, Zophanías, Ester Hulda, Fjölnir Þór og Alma Júlía. Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. „Mig dreymdi stundum þegar ég var lítill að ég hefði ekki tíma til að fara í skólann af því ég væri að fara að skemmta. Nú er ég að upplifa þann draum. Mig langaði alltaf að vinna við eitthvað grín og það er ekki slæmt að blanda töfrum og gríni saman.“ Þetta segir Lalli töframaður sem í skilríkj- um heitir Lárus Guðjónsson. Hann hefur gefið út disk með töfrabrögðum sem nefnist Á bak við tjöldin og telur hann vera fyrir fólk á öllum aldri. „Þetta er eitthvað sem allir geta gert. Það þarf bara að æfa sig og æfa – og æfa sig svo aðeins meira. En ef þú færð þennan disk í jólagjöf þá getur þú hald- ið töfrasýningu á þrettándanum.“ Lalli kveðst hafa byrjað að galdra þegar hann var sex ára og aldrei hætt því síðan. „Flestir krakkar vilja geta gert töfrabrögð. Ég var einn af þeim. Áttaði mig samt snemma á því að það væri dálítið brölt því pabbi vissi um áhugann og gaf mér töfrakassa með alls konar dóti en ég gat ekki notað neitt af því, það var of erfitt. Þá hefði ég þegið að það væri til svona disk- ur. Nú kann ég meira en nóg af töfra- brögðum og ákvað að kenna öðrum nokkur einföld en flott atriði. Öll gerð með hlutum sem eru til á hverju heim- ili. Það þarf ekki að kaupa neitt. Bara finna einn pening eða eitthvað álíka.“ En er hann ekki að eyðileggja fyrir sjálfum sér og öðrum töframönnum með því að afhjúpa leyndina bak við sjónhverfingarnar? „Nei, það er til svo mikið af töfra- brögðum að nóg er eftir samt. Þetta er svona það sem ég hefði viljað læra áður en ég fór af alvöru í að læra töfra- brögð,“ svarar Lalli og kveðst aðal- lega hafa numið af bókum og blöðum og einnig sér reyndari mönnum. Hann segir rúmlega tuttugu manns í Hinu ís- lenska töframannagildi eins og félags- skapur þeirra nefnist hér á landi. „Það eru til töframenn í öllum fjölskyld- um,“ segir hann og telur sjónhverfing- ar á færi allra sem á annað borð hafi þolinmæði til að æfa sig nóg. „Það er bara áhuginn sem drífur menn áfram,“ segir hann. „Margir halda að maður þurfi að vera rosa snöggur. „Höndin er hraðari en augað“ er stundum sagt og vissulega eru til töfrabrögð sem þurfa hraða við en ég geri flest mín töfra- brögð hægt og rólega og er oftast með stuttar ermar til að fólk haldi ekki að ég troði öllu þangað.“ Lalli er 22 ára og kveðst hafa komið fram á leikskólum, árshátíðum, elli- heimilum og öllu þar á milli. „Það hafa allir gaman af töfrabrögðum. Krakk- arnir horfa og segja: „Vaáá.“ Fullorðna fólkið undrast líka en er varara um sig. Þegar ég horfi á töfrabrögð þá horfi ég með ævintýraaugum og nýt skemmtun- arinnar. En á eftir hugsa ég um hvern- ig þau hafi verið gerð. Það ráðlegg ég öðrum að gera.“ gun@frettabladid.is LALLI TÖFRAMAÐUR: HEFUR GEFIÐ ÚT FYRSTA TÖFRABRAGÐADISKINN Sjónhverfingar á færi flestra TÖFRAMAÐURINN Lalli törframaður sem heitir Lárus Guðjónsson á skilríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DAGUR KÁRI PÉTURSSON KVIKMYNDAGERÐARMAÐUR ER FÆDDUR ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1973. „Ég vinn alltaf út frá húmor og reyni svo að sulla honum saman við einhvers konar harmleik.“ Dagur Kári er bæði hand- ritshöfundur og leikstjóri kvikmynda. Þær frægustu til þessa eru Nói albínói og Voksne mennesker. MERKISATBURÐIR 1901 Marconi-félaginu tekst að senda útvarpsskeyti yfir Atlantshafið í fyrsta skipti. 1904 Fyrstu rafljós á Íslandi kveikt er Jóhannes Reyk- dal setur upp fyrstu raf- magnsveituna á Íslandi í Hafnarfirði. 1914 Dow Jones-vísitalan fell- ur um 24,39% sem er þá mesta prósentulækkun á einum degi frá upphafi vísitölunnar. 1948 Sex manns farast er snjó- flóð fellur á bæinn Goð- dal í Strandasýslu. Fjórum dögum síðar bjargast hús- bóndinn úr flóðinu. 1987 Hótel Ísland tekið í notk- un með 90 ára afmælis- veislu Blaðamannafélags- ins. Breski togarinn Dhoon strandaði á skeri í dimm- viðri og haugasjó undir Látrabjargi í mjög vondu veðri föstudaginn 12. desember 1947. Skerið var um 100 metra frá landi og sjór gekk látlaust yfir skipið. Skipstjórinn og fyrsti stýri- maður voru báðir afleysingamenn í þessum túr en bátsmaðurinn tók stjórnina í sínar hendur og sýndi mikinn dug. Þrír af fimmtán manna áhöfn fórust en hinum var bjargað við afar erfiðar að- stæður. Það gerðu bændur á nálægum bæjum sem unnu mikið þrekvirki er þeir sigu niður bjarg- ið og tókst að ná mönnunum þar upp en bjargið er þar á annað hundrað metrar á hæð. Þar urðu flestir strandmenn að hýrast í tjöldum í vonsku- veðri yfir nótt þar sem langt var að ganga til bæja. Áhrifamikil kvikmynd um björgunararfrekið var gerð af Óskari Gíslasyni kvikmyndagerðarmanni tveimur árum síðar, til ágóða fyrir Slysavarnafé- lag Íslands. ÞETTA GERÐIST: 12. DESEMBER 1947 Björgunarafrek unnið við Látrabjarg Viðburðarík aðventuhelgi er fram undan á Akranesi auk þess sem Byggðasafnð á Görðum er fimmtíu ára á morgun. Dagskráin hefst á jólavöku fjöl- skyldunnar í bókasafninu klukk- an 13 í dag. Þar verða lesnar nýjar og sígildar jólasögur fyrir börn á öllum aldri auk þess sem valinkunn- ir Skagamenn lesa eftirlætis jólasög- urnar sínar. Klukkan 15 verður síðan opnuð Aðventusýning í Listasetrinu á Kirkjuhvoli en á sýningunni verða munir, skraut, jólakort og ljósmynd- ir sem tengjast jólum liðinna ára á Akranesi. Þar má meðal annars finna gömul jólakort úr safni Jóhönnu Þor- geirsdóttur og skemmtilegar ljós- myndir frá jólatrésskemmtunum lið- inna ára þar sem vel þekktir Skaga- menn sjást smeykir en uppveðraðir yfir jólasveinunum. Á sunnudag verður svo líf og fjör á Safnasvæðinu að Görðum en þar hefst fimmtíu ára afmælishátíð Byggðasafnsins að Görðum klukk- an 13. Á neðri hæð Stúkuhúss verður jólamarkaður og á efri hæðinni jóla- föndur og jólakortagerð. Handverks- fólk verður að störfum í Neðri-Sýru- parti og í Garðahúsi og á bryggju á útisvæði verður jólasveinaleikþáttur fyrir börn á öllum aldri. Klukkan 15 verður boðið upp á afmæliskaffi og afmælistertu í Garðakaffi. Byggðasafnið á Görðum fagnar 50 ára afmæli LÍF OG FJÖR Á SAFNASVÆÐINU Boðið verður upp á afmæliskaffi í Garðakaffi klukkan 15 á sunnudag.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.