Vikan


Vikan - 27.07.1961, Page 26

Vikan - 27.07.1961, Page 26
— Það gleður mig. — Allt er eins og áður var, Jim og ég erum svo hamingjusöm. Hann sagði að leikritinu hefði verið vel tekið og mér finnst svo vænt um það hans vegna. E?n André er hættur við að kaupa húsið við ána. Hann kærir sig ekki um það fyrr en ég get verið þar með hon- um — ég ætla að reyna að vera orð- in frísk þegar hann kemur aftur frá Ameríku og þá verðum við alltaf saman . . . alltaf. Hún andvarpaði og sofnaði. Það var í nóv- ember að Jim sótti Tessu af hvildar- heimilinu, þar sem hún hafði dvaliS og ók henni heim til Gerdu og Gerry. Hún hafði náð góðri heilsu, nema hvað illa gekk að græða annað bein- brotið og fóturinn varð að vera 1 gipsi. Tessa hugsaði sem minnst um André og framtíð- ina. Hann hafði ekki skrifað henni og hún hafði ekki búizt við Því. En hann hafði sent henni blóm og ávexti og einu sinni hafði hann hringt til hennar frá New York. Hann var á leið til Mexico til að athuga umhverfið þar, með Það fyrir augum að láta næsta leikrit gerast Þar. Henni leið vel hjá Gerdu og heilsa hennar fór batnandi. Stundum óskaði hún, að það kæmi heldur bréf frá André, þó henni þætti vænt um blómasendingarnar. Stundum reyndi hún að muna, hvað hún hefði ætlað að spyrja André um áður en hún slasaðist, en gat ekkert munað. Nokkrum dögum eftir að hún losnaði úr gips- inu, fór hún í heimsókn i leikhúsið. Júlía og allir tóku henni tveim höndum. — Hefur þú hitt André? spurði Júlía. — Hitt ... ? sagði Tessa undrandi. — Já, hefur þú ekki hitt hann ... ég hélt að þið ætluðuð að gifta ykkur? — Er hann þá kominn hingað aftur? — Hann er búinn að vera hér í fimm vik- ur ... Tessu sortnaði fyrir augum, en hún náði brátt valdi á sjálfri sér. — Júlía, rétt áður en ég slasaðist sagðir þú dálítið við mig ... ég man það allt i einu. Þú sagðir að hann væri kvæntur Maríu Léontine og ég trúði þér ekki og ætlaði að spyrja hann að því. — Léontine er hér i London. Hún kom frá Paris I gær. Tessa tók stafinn sinn og gekk út, en Júlía sat grátandi eftir. María Léontine leit upp frá skrifborði André, þegar Tessa kom inn. Andartak þekkti hún hana ekki, en svo leit hún á stafinn og fölt andlit ungu stúlkunnar og augnaráð hennar varð bliðlegt. Hún gekk til Tessu. — Tessa Charles! Vina mín! Komið og setist hér. — Frú, sagði Tessa og hún Þekkti varla sína eigin rödd. Hve langt er síðan þér komuð frá Mexico? — Það eru fimm vikur frá því ég kom til Parísar, en ég var að koma hingað. En ... nú já, þér hafið ekkert heyrt frá honum, sagði hún um leið og hún leit á fölt og sorgbitið andlit Tessu. — Hann sagðist mundu láta mig vita strax og hann kæmi. — Kæra mín, þér megið ekki taka André svona alvarlega. Einn daginn er hann langt í burtu og svo annan dag er hann kominn til yðar með fangið fullt af blómum og elskar yður meira en nokkru sinni áður. — Var hann þannig við yður? — Svo að þér vitið það? — Mér var sagt að þið hefðuð verið gift ... væruð ennþá gift, þó að þið hefðuð ekki búið saman árum saman ... ég hélt að hann elskaði mig og ætlaði að giftast mér. María yppti öxlum. — Þetta er rétt. Við gift- umst fyrir sjö árum síðan. Hann gerði mig að stórri stjörnu og í eitt ár vorum við hamingju- söm ... þangað til hann fann aðra. En þó hann dræpi í mér ungu stúlkuna, sem ég var, þegar ég kynnist honum, gerði hann úr mér mikla listakonu. Það er bara vinátta á milli okkar núna. María brosti þreytulega. — Hvers vegna sögðuð þér mér þetta ekki fyrr? sagði Tessa lágt. — Ég skipti mér ekki af því, sem André gerir. Ef einhver hefði sagt mér eitthvað ljótt um André, þegar við vorum saman, hefði ég ekki trúað því. — Ég skil þetta, sagði Tessa og reis á fætur. Þakka yður fyrir að þér sögðuð mér sannleik- ann. Fyrir utan hitti hún Júlíu. — Á ég ekki að aka þér heim? sagði hún, en Tessa óskaði þess eins að vera ein og þegar hún kom auga á dýra blómabúð, þar sem André hafði alltaf keypt blóm handa henni, sagði hún: — Ég þarf að fara þarna inn og ná í blóm handa Gerdu. Ég hafði nærri gleymt Því, en þú þarft engar áhyggjur að hafa af mér, Júlía. — Nei, komið þér sælar, fröken Charles, sagði afgreiðslustúlkan í blómabúðinni. Það er gaman að sjá yður aftur. Líður yður vel núna? — Já, nokkurn veginn ... —■ Það er ekki svo oft, að ég gleðst yfir að blómapöntun sé afþökkuð, en ég gat ekki annað en samglaðst yður þegar herra Lamartine hætti að senda blóm, því þá vissi ég að þér voruð af sjúkrahúsinu. — Það var mjög vingjarnlegt af yður. Stúlkan horfði forvitnislega á hana. — Ég vona að yður hafi likað blómin, sem herra Renshaw sendi í hverri viku ... Jim! Það var þá Jim, sem sendi blómin. Ekki André! Henni varð þetta allt ljóst. Hún hafði aðeins verið honum til ama og nú var öllu lokið. — Get ég gert nokkuð fyrir yður, fröken Charles? — Nei, þakka yður fyrir ... reyndar ætla ég að fá nokkrar fjólur, sem ég ætla að biðja yður að senda til fröken Júlíu Adriani í leikhúsinu. Hún borgaði blómin og leit í budduna sina. Hún átti ein fimm pund og ekki gat hún búið alla ævi hjá Gerdu. Hún hafði enga atvinnu og átti engan samastað ... enga fjölskyldu ... eng- an annan en Jim. Jim átti hún ennþá. Jim hafði sagt, að ef hún væri I vandræð- um, skyldi hún koma til sín. Hana hafði ekki grunað, að hún ætti eftir að þarfnast hans. Leigu- bíll ók framhjá og hún stanzaði hann og bað hann að aka á Kings Cross stöðina. Þaðan tók hún lest til Leeds. 6. kafli Það var komið fram á miðnætti, þegar Jim kom heim í litlu íbúðina sína í verksmiðjunni. Hann var mjög þreyttur eftir erfiðan dag. Þá hringdi síminn. — Jim, ég hef verið að reyna að ná í þig í allan dag. Tessa er hérna. Það var móðir hans, sem var í símanum. —- Tessa? Er nokkuð að henni? Nei. . . . kannski hefur hún bara fengið tauga- áfall. Hún hefur ekki sagt mér neitt. Ég hef þó getað fengið hana til að borða svolítið. En ég hef áhyggjur af henni. — Ég kem eftir tíu mínútur. Um leið og hann var að fara út, hringdi síminn 'aftur. Hann var ergilegur yfir töfinni, en það var Gerda í símanum. Hún var viti sinu fjær af hræðslu. — Þetta er í lagi. Hún er hér, sagði Jim. Hvað hefur komið fyrir? — Hún fór í leikhúsið og talaði við Maríu Lé- ontine. Það er vist satt, að hún hefur verið gift André í sex ár. — Jæja, sagði Jim. —- Guði sé lof að þú ert kominn Jim, sagði móðir hans. Ég held að hún viti varla hvað hún gerir. — Er hún inni í stofu? Ég er að fara inn til hennar. En mamma, hafðu til herbergi handa henni. — Það er þegar til. — Hefurðu nokkuð á móti því, að hún dvelji hér eitthvað.....kannski lengi? Móðir hans brosti. Auðvitað getur hún verið hér eins lengi og hún vill. Það lítur út frir að hún þarfnist einhvers til að líta eftir sér. — Þakka þér fyrir mamma. Hann gekk inn í stofuna. Tess'a gekk á móti honum með fram- réttar hendur og hefði dottið, ef hann hefði ekki gripið hana. Hann settist við hlið hennar og faðm- aði hana eins og barn, sem þurfti að hugga. — Hvað á ég að gera Jim? Hvað á ég að gera? — Reyndu að hugsa ekkert um það húna. Við skulum hugsa um þig og hjálpa Þér að verða frísk. —- Meinar þú, að Þú viljir giftast mér? Einu sinni sagðir þú það. Hún brosti dapurlega. —- Ó, Tessa! Hann þrýsti henni að sér. —• Ég held að ég vilji það gjarnan, Jim. Ég held að það sé það, sem ég vil helzt. Þá verð ég svo örugg. Tveim dögum seinna sat Janet Greenoch og beið eftir föður sinum. Það var langt síðan hún hafði séð Jim. Hún ætlaði að reyna að hitta hann af tilviljun og bjóst til að leggja peningana í nýju verksmiðjuna hans. Þá mundi hún verða meðeig- andi að fyrirtækinu. Stúlkan kom inn og sagði að frú Soames væri í símanum. — Sæl vertu Maureen. — Sæl, Janet. Mér fannst ég verða að segja þér dálítið. Veiztu það að Tessa Charles býr hjá frú Renshaw og verður þar einhvern tíma. Það er sagt að Jim ætli að kvænast henni. — Því get ég ekki trúað. Hann hlýtur þó að vita að hún er ástmey Lamartine. — En hún er nú hérna, sagði Maureen rólega. Sjáum við þig í klúbbnum í kvöld? — Nei. . . . ég er á förum til útlanda, svo ég veit ekki hvort ég hef tima til þess að koma og kveðja ykkur . . . Hún sá að faðir hennar var að koma og svipur hans sagði henni, að hann hefði heyrt fréttirnar. Hún lagði heyrnartækið fyrir- varalaust á og andlit hennar var eldrautt af reiði. —• Jæja, Janet, þú hefur víst veðjað á vitlaus- an hest í þetta sinn. — Það skaltu ekki vera svo viss um. Þú skalt alls ekki vera svo viss um það! Jim átti afmæli. Tessa kom í litla bílnum sínum, sem hún hafði nýlega lært að aka. Hún var að koma frá danskennslu í Leeds. Jim hafði fundið ágætan danskennara fyrir hana í Leeds, og hún fór þangað í hverri viku. — Þér getið varla dans- að ballet aftur, fröken Charles, . . . en nýtízku dansa. Hún tók bögglana út úr bílnum og gekk inn eldhúsmegin. Þetta var orðið henni heimili og frú Renshaw naut þess að hafa hana hjá sér. Tessa tók köku út úr ofninum. Það var fyrsta til- raun hennar við bakstur og var afmæliskaka fyrir Jim. — Er hún ekki eins og hún á að vera? spurði hún frú Renshaw hrifin. — Hún er mjög girnileg. Þú ert orðin verulega flink. Janet Greenoch hringdi í dag. Hún var að koma heim frá útlöndum. Hún spurði hvort hún mætti koma og óska Jim til hamingju með af- mælisdaginn. — Þú hafðir vonað að þau mundu gifta sig, var það ekki, spurði Tessa hægt. —• Ég get ekki neitað því. Ég vildi gjarnan að Jim yrði kyrr hér í bænum, og það var eins og allir byggjust við því að þau mundu giftast . . . Janet líka. En af hverju giftist þið Jim ekki Tessa ? — Ég veit hvað það er að elska, sagði Tessa, og það er ekki sú tilfinning, sem ég ber til Jim. Ég er honum þakklát og finnst vænt um hann, en hann mundi óska sér meira, er það ekki? Það er ekki nóg. Frú Renshaw klappaði henni vandræðalega á öxlina. Tessa valdi sér ljósrauðan bómullarkjól, þann sama og hún hafði notað í skógarferðinni með Wegghjónunum fyrir næstum ári síðan. Hún burst- aði hár sitt, þar til það gljáði og batt breitt band um. Hún fór í ljósa ballerinuskó og fór svo niður I stofuna til að setja glös á bakka. Síðan setti hún plöntu á spilarann og settist og þreifaði á veika fætinum. Allt í einu stóð hún upp og fór að dansa. Jim var að koma heim og I gegnum gluggan sá hann hana. Hún sneri sér við og opnaði fyrir honum og í gleði sinni tók hann hana í faðm sér. — Þarna sérðu, þér er batnað. Nú ertu albata. Nú geturðu byrjað lífið að nýju. — Ætlarðu að senda mig burt, Jim? — Það veiztu að ég mundi aldrei gera. En þú verður að velja sjálf. Þú ert orðinn hraust. Þú verður að gera það, sem þú óskar helzt sjálf. Frú Renshaw og Janet komu inn. — Sjáðu hver er kominn, Jim, sagði frú Renshaw. Tessa, viltu sjá um vínið. Ég þarf að fara út í eldhúsið. — Ég sé að þér hafið það gott Tessa, sagði Janet. Það gleður mig. Ég ætla lítið að stanza. Framhald á bls. 42. 26 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.