Vikan - 07.12.1961, Page 42
Sindrastóll gerð H-5
Fæst hjá húsgagnaverzlunum víða um land
j5in4rnsmið/nn h-f*
HverfÍBgötu 42 — Sfmi 24064.
42 VIKAN
„Fyrr — mér fannst ég ekki þekkja
þig nógu vel. Ég hafði ekki þekkt
Martin nema í tuttugu og fjórar
klukkustundir þegar ég trúlofaðist
honum, og það fór eins og það fór.
Hann leit alltaf á mig sem einskonar
brúðu. Hann vildi aldrei ræða náms-
verkefni sín við mig. Ég var ekki
annað en sýningargripur. Ég gat
eldað matinn; ég gat unnið fyrir bíl-
verðinu og þegar hann helði fengið
stöðu sem aðstoðarprófessor, hefði
hann ef til vill ekkert haft á móti
því að við eignuðumst barn . .. nei,
ég ætla mér ekki að stíga slíkt víxl-
spor aftur ..
„Það þarftu ekki heldur að ótt-
ast. Ekki ef þú giftist mér.“
„Ég er ekki viss. Það gerir mig
tortryggna, að þú skyldir líka taka
próf, með láði. En við getum snætt
saman hádegisverð á morgun og rætt
það nánar.“
En þetta hafði þegar tekið alltof
langan tima, fannst Carey. Þess
vegna hafði hann snör handtök, kippti
henni upp úr stólnum, þrýsti henni
að sér og kyssti hana, þangað til hún
tók andköf og sagði:
„Já, já, ég skal giftast þér. En þá
krefst ég þess að þú kæfir mig
ekki ...“
Einbýlishús.
Framhald af bls. 12.
af honum er víðáttumikil verönd,
sem súlur bera uppi.
Þetta er án efa eitt veglegasta
ibúðarhús, sem byggt hefur verið
á voru landi fram til þessa og eru
þó mörg álitleg í næsta nágrenni
við það. Húsið er afsprengi alþjóð-
legs byggingarstíls siðustu ára og
auðugs hugmyndaflugs arkitektsins,
Gunnars Hanssonar sem hefur sýnt
með þessu húsi, hvað í honum býr.
Gunnar Hansson kvað það hafa
verið mjög skemmtilegt verkefni að
teikna þetta hús, því eigandinn gaf
honum frjálsar hendur um útlit og
skipulag. Hann sagðist vera ánægð-
ur með árangurinn og telja húsið
með betri verkum sinum.
Gunnar sagðist ekki hafa kosið að
nota grjót í fleti utan á húsinu og
sagðist vilja láta steinsteypuna
njóta sin í hreinum flötum, fyrst
húsið væri á annað borð steypt.
Hann notaði hinsvegar harðviðar-
panel undir og milli glugga á fram-
hliðinni, en sagði það ef til vill
hið eina, sem hann kysi að breyta.
Hann taldi viðhald á harðviði utan-
húss það mikið hér sunnanlands,
að það svaraði ekki kostnaði að
nota hann. Ef hann teiknaði þetta
hús núna, mundi hann nota inn-
dregna steinsteypufleti i staðinn og
lita þá.
Takið eftir því að framhlið húss-
ins er örlítið V-laga. Það er gert til
þess að missa ekki útsýn vestur
Laugardalinn, sem er mjög fallegt.
LÚXUS MEÐ LÁNS-
KJÖRUM.
Framhald af bls. 29.
Það er allt önnur saga með mat-
vöruverzlanir og yfirleitt allar verzl
anir, sem verzla með smávörur —
og nauðsynjavöru. Þar er það alveg
komið úr tízku að fá skrifað, enda
hafa kaupmenn bundizt samtökum
um að verzla aðeins gegn stað-