Fréttablaðið - 22.12.2009, Qupperneq 4
4 22. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
SKATTAR Umfangsmiklar breytingar á skatt-
kerfinu urðu að lögum á Alþingi í gær. Tekju-
skattur verður innheimtur í þremur þrepum,
fjármagnstekjuskattur hækkar og einnig
skattar fyrirtækja. Þeir einstaklingar sem
eiga meira en níutíu milljónir króna í hreina
eign munu greiða 1,25 prósent í svokallaðan
auðlegðarskatt en hjá hjónum verður miðað við
eign umfram 120 milljónir króna. Sjómanna-
afsláttur verður afnuminn í áföngum á fjórum
árum. Persónuafsláttur hækkar um 2.000
krónur á mánuði um áramótin í stað þess að
hækka samkvæmt vísitölu.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra
sagði við afgreiðslu skattafrumvarps ríkis-
stjórnarinnar á Alþingi í gær að við endur-
skoðun skattkerfisins sem fram undan
er verði hægt að skoða hvaða möguleikar
eru á að endur vekja vísitölutryggingu
persónuafsláttarins í ljósi efnahagsaðstæðna.
Steingrímur sagði að það væri óumdeilan-
lega kostur við fjölþrepaskattkerfi að það
stuðli að tekjujöfnun og tryggi að það markmið
náist að hlífa lægstu laununum við sköttum.
„Til framtíðar eigum við að stefna á að lækka
skattprósentuna á lægsta þrepi,“ sagði Stein-
grímur. Hann sagði ágætar horfur á því að við-
snúningur yrði í hagkerfinu og að efnahagsbati
færi að sjást á síðari hluta næsta árs.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sagði hins vegar ríkisstjórnina
stunda blekkingar þegar hún héldi því fram
að skattkerfisbreytingarnar hlífðu fólki með
lægstu launin. Langveigamesta aðgerðin
væri sú að hætta við vísitölutengingu persónu-
afsláttar . Það myndi gefa ríkis sjóði 9-10 millj-
arða króna í tekjur og þeir peningar yrðu
sóttir til allra launa manna. Ríkisstjórnin stefn-
ir að því að auka tekjur ríkissjóðs um 44 millj-
arða króna með öllum skattabreytingunum
en Bjarni sagði það ofmat. Skattahækkanirn-
ar myndu draga úr umsvifum í efnahagslífinu
og vegna þess myndu þær ekki skila ríkissjóði
eins miklum tekjum og ríkisstjórnin stefndi
að. peturg@frettabladid.is
Umfangsmiklar skattahækk-
anir samþykktar á þinginu
Breytingar á skattkerfinu urðu að lögum á Alþingi í gær. Tekjuskattur verður innheimtur í þremur
þrepum. Formaður Sjálfstæðisflokksins dregur í efa að áform ríkisstjórnarinnar um 44 milljarða í auknar
tekjur nái fram að ganga. Fjármálaráðherra segir góðar líkur á efnahagsbata á seinni hluta næsta árs.
LEIÐTOGAR Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins,
voru meðal þeirra þingmanna sem deildu um skattabreytingar ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Tekjuskattur einstaklinga verður í þremur þrepum:
1. 24,1% skattur af árstekjum undir 2.400.000 kr.
2. 27% skattur af tekjum á bilinu 2.400.000-
7.800.000 kr.
3. 33% skattur af tekjum umfram 7.800.000 kr.
á ári.
Útsvarsprósenta verður áfram hæst 13,28%,
þannig að heildarhlutfall í staðgreiðslu verður
áfram óbreytt 37,2% fyrir tekjur upp að 2.400.000
krónur á ári.
Persónuafsláttur hækkar aðeins um 2.000
krónur um áramót í stað þess að hann taki
breytingum samkvæmt vísitölu sem hefði leitt til
meiri hækkunar.
Fjármagnstekjuskattur hækkar úr 10% í 18%
en með 100.000 kr. frítekjumarki. Aðeins skal
skattleggja 30% af tekjum vegna útleigu á íbúð-
arhúsnæði.
Tekjuskattur fyrirtækja hækkar úr 15% í 18%.
Sérstakur auðlegðarskattur, 1,25%, verður
innheimtur á hreina eign einstaklinga umfram
90 milljónir og umfram 120 milljónir króna hjá
hjónum.
Sjómannaafsláttur verður afnuminn í áföngum
um 25% á ári á fjórum árum.
Sé úthlutað arði úr einkahlutafélagi sem nemur
meira en 20% af eigin fé ber að greiða tekjuskatt
af helmingi en fjármagnstekjuskatt af helmingi.
HELSTU SKATTBREYTINGARNAR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur þyngt
dóm yfir fyrrverandi fjármála-
stjóra Garðabæjar, Alfreð Atla-
syni. Alfreð var dæmdur fyrir
að draga sér rúmar níu milljónir
króna í starfi sínu fyrir bæinn árin
2007 og 2008.
Héraðsdómur hafði dæmt Alfreð
í sex mánaða skilorðsbundið fang-
elsi fyrir brotið, en Hæstiréttur
þyngdi dóminn í átta mánuði, þar
af sex mánuði skilorðsbundna.
Alfreð þarf því að afplána tvo
mánuði af refsingunni. Skömmu
eftir að málið komst upp endur-
greiddi Alfreð bænum allt féð. - sh
Dró sér milljónir í Garðabæ:
Fjármálastjóri
fer í fangelsi
DÓMSMÁL Vörubílstjóri hefur verið
dæmdur til þess að greiða ríflega
2,1 milljón króna fyrir að virða
ekki lögbundinn hvíldartíma vöru-
bílstjóra. Maðurinn braut hvíldar-
ákvæðið ítrekað.
Á síðasta ári höfðu starfsmenn
Vegagerðarinnar afskipti af vöru-
bílstjóranum. Þeir tóku gögn af
rafrænu ökumannskorti sem var í
vörubílnum og við nánari skoðun
kom í ljós að bílstjórinn hafði ekki
hvílt sig í fimmtán skipti.
Bílstjórinn krafðist sýknu meðal
annars á þeim grundvelli að leið-
beiningar með ökuritanum hafi
verið á ensku og hann hefði ekki
skilið þær til fulls. Því hefði hann
ekki slökkt á ökuritanum þegar
hann var í hvíld. - jss
Virti ekki hvíldartíma:
Rúmlega tvær
milljónir í sekt
Útsvarið hækkar
Bæjaryfirvöld í Vogum á Vatns-
leysuströnd hafa ákveðið að hækka
útsvarið úr 13,03 prósentum í 13,28
prósent. Almennt hækka gjaldskrár
um fimm prósent milli ára. Þó er
fasteignaskattur á íbúðarhúsnæði
lækkaður sem og vatnsgjald.
VOGAR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
2°
4°
1°
4°
5°
4°
2°
2°
23°
3°
18°
1°
20°
-7°
2°
11°
0°
Á MORGUN
Strekkingur á V-fjörðum,
annars hægari.
AÐFANGADAGUR
Stíf norðlæg átt V-
lands, annars hægari.
-4 -5
-5
-7-5
-3
-2
-0
-5
-3
-4
-8
-4
-3
10
9
10
10
59
10
10
8
9
11
12
-4
-4
FROSTDAGAR
FRAM UNDAN
Það lítur út fyrir
kalda daga fram
að jólum með
snjókomu eða
éljagangi um
landið norðan- og
austanvert en bjart
veður suðvestan-
lands og litlar líkur
á snjókomu þar.
-6 -6
-8
-7-2
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
EFNAHAGSMÁL Gjaldeyrisforði
Seðlabanka Íslands nemur nú um
458 milljörðum króna, eða 2.495
milljónum evra. Fyrsti hluti láns
frá Norðurlöndum í tengslum við
efnahagsáætlun stjórnvalda og
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
var greiddur í gær.
Í tilkynningu Seðlabankans
kemur fram að upphæð gjald-
eyrisforðans samsvari nú vöru-
innflutningi í rúmt ár, miðað við
síðustu tólf mánuði. Fyrstu hluti
Norðurlandalánsins er 300 millj-
ónir evra og verður ávaxtaður
sem hluti af gjaldeyrisforða bank-
ans.
„Ísland hefur heimild til að nýta
alls 444 milljónir evra fram að
annarri endurskoðun efnahags-
áætlunarinnar sem áætlað er að
fari fram um miðjan janúar 2010,“
segir í tilkynningu bankans. Þá
kemur fram að ekki hafi verið
talin þörf á frekari notkun á láns-
heimildinni að sinni og flytjist því
144 milljónir evra til næsta tíma-
bils sem hefst að lokinni annarri
endurskoðun.
Samkvæmt upplýsingum Seðla-
bankans eru enn ódregin umsam-
in lán upp á tæpa 2,3 milljarða
evra frá Norðurlöndunum, AGS
og Póllandi.
Már Guðmundsson seðlabanka-
stjóri segir frekari útborgun lán-
anna með fyrirvörum um næstu
endurskoðun á efnahagsáætlun
stjórnvalda og AGS.
„Okkur vitanlega eru engir
formlegir fyrirvarar varðandi
Icesave-málið,“ segir hann, en
bendir um leið á að fyrsta endur-
skoðun efnahagsáætlunarinnar og
þessi útborgun norrænu lánanna
hafi meðal annars farið fram með
hliðsjón af því að náðst hafði sam-
komulag á ríkisstjórnarstigi um
Icesave-skuldbindingarnar með
fyrirvara um samþykkt Alþingis.
„Óljóst er hvert framhald málsins
yrði ef Alþingi hafnaði staðfest-
ingu samkomulagsins,“ segir Már.
- óká
Óvissa um frekari lán hafni Alþingi staðfestingu á Icesave-samkomulagi að sögn seðlabankastjóra:
Næstu lán eru háð endurskoðun áætlunar
MÁR GUÐMUNDSSON Seðlabankastjóri
segir bankanum ekki kunnugt um form-
lega fyrirvara við lánveitingum vegna
Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GENGIÐ 21.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
223,9179
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,71 128,31
205,99 206,99
183,01 184,03
24,59 24,734
21,826 21,954
17,525 17,627
1,4117 1,4199
200,24 201,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR