Vikan - 25.01.1962, Qupperneq 26
Allir vilja fá að vera með á myndinni. Það er smáhvíld hjá Bú Abboló Koselló og allir fara
fram að fá sér gott fyrir aurana, sem mamma <raf.
Það ku vera einna bezt að sitja á fyrsta bekk í almenn, því þar er hægt að
teygja úr skönkunum, krossleggja þá eða kreppa alveg eins og hverjum þykir
bezt.
Það er aldeilis handagangur í öskjunni í sælgætissölunni í hléinu, og þar er
bara um að gera að vera nógu töff og koma sér að, og svo náttúrulega að
gala sem hæst og ýta monningunum að skvísunni, sem er að afgreiða. Sumir eru
ægilega töff eins og töffgæinn á myndinni með hettuna, sem er eflaust að segja:
„Það mundi ekki veita af að kýla þennan gæja, sem er alltaf að taka af manni
myndir . . .
Bú Abboló
Koselló
Vikan fór á barnabíó i Nýja Bíó fyrir nokkru,
svona til að athuga hvort það hafi nokkuð breytzt
síðan í gamla daga, þegar við fórum í þrjúbíó á
sunnudögum til að horfa á kábboy og Mikkeymás
og indíána og vitlausa kalla, sem voru alltaf að
rekast á og detta og svoleiðis og henda rjóma-
tertum framan í hver annan. Þá sáum við fína
kalla eins og Sj'aplín og Tommix og Litla og
stóra og Buster Kiton og svoleiðis gæja.
Við héldum að svoleiðis fínir leikarar væru nú
aldeilis ekki til núna og fórum að spurja strák-
ana á bíóinu hvort það væri nokkuð gaman að bíó-
um núna.
„Ertu eitthvað bilaður, manni minn? sagði einn
pollinn, „heldurðu kannske að það sé ekki gaman
að kábboyunum eins og t.d. Roy Roggers og Trigg-
er og Rokk Hödson og svoleiðis gæjum? Eða t.d.
gæjum eins og Danný Kei og Jerrý Lúis og Bú
Abboló Koselló? Sá er góður, maður“.
„Hver er Bú Abboló Koselló? Er það einhver
nýr leikari?"
„Sá er aldeilis klikkaður, maður. Hann veit
ekki hver Bú Abboló Koselló er. Steini, veiztu þú
kannske hver Bú Abboló Koselló er?“
„Bú Abboló Koselló? Það er nú líklega. Það fatta
þá allir, sem fylgjast með. Hefurðu aldrei séð
Bú Abboló Koselló, manni?“
,,Ekki svo ég viti. Hvernig lítur hann út?“
„Lítur hann út! Sá er góður, maður. Það er
ekki einn, það eru tveir. Bú Abboló og Koselló.
Þeir eru sýndir núna á bíóinu, þú getur fengið
að sjá þá, ef Þú biður soldið. Þeir eru ægilega
klárir, sérstaklega Bú Abboló".
„Er Koselló ekki eins góður?"
„Jú, hann er svaka töff, en Bú er svo vitlaus
og feitur og ægilega skemmtilegur".
Og svo beið Vikan eftir að bíóið byrjaði og Bú
Abboló Koselló sýndu sig á tjaldinu.
Raunar kom í ljós að Bú Abboló Koselló hétu
Bud Abbot og Lou Costello, en það gerði engan
mismun, því þeir voru vissulega jafn skemmti-
legir fyrir það, og við skemmtum okkur alveg
prýðilega. Þeir eru Litli og Stóri okkar tíma og
gefa þeim ekkert eftir, eins og við sjáum raunar
á rayndunum, sem við tókum og birtast hér.
26 VIKAN