Vikan - 12.07.1962, Qupperneq 3
VIKAM
o<j tsBknin
Flogið fyrir eigin orku.
Fyrir þrem árum hét brezkt i'lugmálablaS
miklum verðlaunum hverjum þeim, sem fyndi
upp og smíða'öi, fyrir lok febrúarmánaðar, flug-
tæki knúið mannsorku eingöngu. Tæknisér-
fræðingar eru ekki sammála um hvort fræði-
legur möguleiki sé fyrir slikri uppfinningu, en
sagt er að þeir séu fjölmargir, sem hugsa sér
að vinna til verðlaunanna. Þau nema sextiu
þúsund krónum, og það er drjúgur skildingur
út af fy^ir sig, en yrði þó ekki nema smáupp-
hæð, samanborið við allt það fé, sem sá er
þrautina leysti mundi græða á slikri uppfinn-
ingu. Myndin sýnir John Davis, brezkan skóla-
kennara, og flugtæki það, sem liann er að
smíða, og á að ver'ða stigið, svipað og reið-
hjól. Eftir myndinni að dæma, hyggst liann
byggja lausn sina á þvi að lilutfallið milli
þunga flugtækisins og átaks þess verði sem
mest ■— og að átakið færist að sem minnstu
leyti yfir á orkugjafann, þ. e. a. s. liann sjálf-
an, eða þann sem stigur. Ekki er enn vitað
hvernig tilraun hans tekst, eða hvort honum
með öðrum orðum tekst að vinna til verðlaun-
anna.
;-ý :
r . JJ
igi ^ 'ááliílfiiiiÉlm
Nýtt til hins ýtrasta.
Á flugvellinum í Norrtálje í Sviþjóð getur að !lta einkennilega veitingastofu, sem þó er i fyllsta
samræmi við umhverfið. Það er gömul Dacotai'ugvél, „DC-3“, sem tekin hefur verið til þeirri
notkunar, eftir að hún hafði gegnt sinu upphafiega hlutverki til fulls. Að sjálfsögðu hefur inn-
réttingunni verið breytt, og einnig hefur verið byggt undir vængina, en hinu ytra er öllu haldið
að öðru leyti.
Volgu Sputnik.
Skiða-skipin svokölluðu eru komin af til-
raunastiginu, þótt ekki séu mörg ár siðan þau
fyrstu þeirra voru sett á sjó. Skiða-skip hefur
nú verið á förum innan skerja í Noregi um
fjc'gurra ára skeið og reynzt mjög vel; allmörg
eru notuð til farþegaflutninga um vötnin í
Sviss, og eins eru nokkrir slikir bátar í förum
á Iíarabiska liafinu. Hafa þeir allir reynzt mjög
vel, fara vel „á“ sjó, jafnvel i slæmu ve'$ri, og
hraðskreiðari larkosti getur varla.
Rússar hafa að undanförnu smiðað mörg
skiða-skip til farjregaflutninga á fljótum og
völnum þar i landi, nokkur þeirra stærri og
hraðskreiðari en þekkjast enn annars staðar,
og getur að líta liér eitt þeirra, af nýjustu gerð-
inni. Nefnist það „Sputnik", er í förum á
Volgu og tekur um 300 farþega — og er full-
yrt að mun rýmra sé um þá, en var um tíkina
í fyrsta spútnikknum forðum.
Ný gerð ritvéla.
Segja má að ritvélar hafi ekki tekið neinum
teljandi breytingum, allt frá því er þær fyrstu,
nothæfu komu á markaðinn. Að visu hafa þær
fulJkomnazt stöðugt tæknilega, en aðalatrið-
um hafa þær verið eins, þangað til nú, að IBM
verksmiðjurnar bandarisku hafa sent á mark-
aðinn rafmagnsritvélar, sem eru fyrri gerðun-
um mjög frábrugðnar.
Framhald á bls. 39.
*
fi l tfiV
Útgefandi: Hilmir h.f.
Eitstjóri:
Gísli SigurðBHon (ábm.)
AuglýBÍngastjóri:
Jóhannes Jörundsson.
Frainkvæmdastjóri:
Hilmar A. Kristjánsson.
Ritstjórn og auglýsingar: Skipholíi
33. Simar: 35320, 35321, 35322, 35323.
Fósthólí 149. Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Laugavegi 133, simi
.30720. Dreifingarstjóri: ðskar Karls-
son. Verð í lausasölu kr. 15. Áskrift-
arvc-rð er 200 kr. ársþriðjungslega,
greiðist fyrirfram. Prentun; Hihnir
h.f. Myndamót: Rafgraf h.f..
___
FORSÍÐAN
Nú er vertíð til lands og sjós; grængres-
____ inu mokað í turna og hlöður og silfri
hafsins niokað á land á Siglufirði og
fleiri verstöðvum. Allur þjóðarbúskapurinn veltur á bessari vertíð; að ekki
haldizt bræla á miðunum og helzt má ekki bræla í landi heldur. Sólin verður
að skína hvað sem það kostar í þessum mánuði og þó er hún stopulli en
nokkuð annað; gæti meira_ að segja farið svo að hún sæist alls ekki. Annað
eins hefur komið fyrir á íslandi. Þorsteinn Jósefsson Ijósmyndari og blaða-
maður hjá Vísi, hefur þó að minnsta kosti hitt á eina sólskinsstund á Siglu-
firði, þegar hann tók forsíðumyndina, og hann hefur sannarlega verið fundvís
á fallegt mótív. Því miður vitum við ekki hvað stúlkan heitir og símanúmerið
hennar höfum við ekki heldur. En þeir þekkja hana sennilega á Siglufirði.
Bara að spyrja einhvern þaðan.
I NÆSTA BLAÐI
Á ferð með flugfreyjum. Blaðamað-
ur Vikunnar hefur skroppið til
New York með Loftleiðum og
fylgzt með því, hvað starfsfólk Loftleiða hefur fyrir stafni í
borg skýjakljúfanna. Tvær opnur með grein og myndum.
• Gull í gjá. — Vikan hefur farið með kafara austur á Þingvöll
og þeir fóru með myndavélar ofan í Peningagjá. Grein og
myndir, sem teknar eru bæði ofan vatns og neðan.
• Kvöld í Vadi Natrun. — Framúrskarandi skemmtileg saga í
tveim hlutum eftir sr. Sigurð Einarsson í Holti. Sagan gerist
í tirikklandi og Egyptalandi og er ótrúlegt ævintýri frá upp-
hafi til enda.
• Ef inni er þröngt. — Við höldum áfram greinarflokkinum um
sport og nú verður tekið fyrir flug og hestamennska.
• Ný, glæsileg verðlaunakeppni: Sex vinningar, þar á meðal
sjónvarpstæki, ferðalög á landi og legi, Husquarna sauma-
vél, fatnaður o. fl.
• F.Í.B. og Vikan prófa nýja bíla. Næst verður tekinn fyrir
Opel Record.
• Bréf að norðan. — Björn ó Norðurpól svarar Brandi á
Suðurpól.
• Eiturglasið. — Sakamálasaga.
VIKAN 3
á