Vikan - 12.07.1962, Blaðsíða 24
Ungfrú
Yndisfríð
Hvar er
örfcifi bans
NÓA?
Nú er það Örkin hans Nóa, sera ungfrú Yndis-
fríð hefur falið í biaðinu. Kannske i einhverri
myndinni. Það á ekki að vera mjög erfitt að
finna hana og ungfrú Yndisfríð heitir góðum
verðlaunum: Stórum konfektkassa, sem auðvit-
að er frá Sælgætisgerðinni Nóa.
Nafn
Heimilisfang
Örkin er á bls. Sími
Siðast þegar dregið var hlaut verðlaunin:
MARGRÉT ÁSGEIRSDÓTTIR,
Hólmgarði 40, Reykjavík.
Þær heita Peters-systur þessar stæðilegu dömur.
Þær eru ættaðar frá Bandaríkjunum. Þar
höfðu þær átt heima í mörg ár og komið fram
á skemmtistöðum, þar sem þær sungu og dönsuðu,
áður en þær fluttust til Evrópu, þar sem þær hafa
búið i rúm tíu ár. Þær ferðast um frægustu
skemmtistaði Evrópu og „troða upp“ fyrir svimandi
háar upphæðir, þvi þær eru ekki bara þéttar á
velli, þær eru einnig frábærar söngkonur og efnis-
skrá þeirra blönduð gömlum og góðum lögum
ásamt gamansöngvum.
Hvernig væri að fá Peters-systur til íslands,
hvað segja veitingahúsin?
V
06 DANSMUSIK
A Gamla myndin.
Þessi mynd var tekin sumarið 1952 af Dixielandhljómsveit, sem Þórarinn Óskarsson
æfði upp með það fyrir augúm, að hljómsveitin léki á hljómleikum, sem haldnir voru
á vegum Jazzklúbbs íslands,, þegar Ronnie Scott (enskur jazzleikari) kom hingað. —
Á myndinni eru í fremri röð frá vinstri: Helgi Ingimundarson tenór-saxófónn (stari'-
ar ekki lengur við hljóðfæraleik), Ágúst Eliasson, trompet (starfar ekki lengur við
hljóðfæraleik og gerði aldrei að neinu marki), Kristján Hjálmarsson, klarinet (Kristján
er nú búsettur i Bandarikjunum, en var um alRangt skeið kunnur hljóðfæraleikari i
ýmsum hljómsveitum hér), þá er það banjóleikarinn Haraldur Guðmundsson, en hann
Íék á trompet í fyrstu hljómsveit Björns R. Einarssonar, var síðan hljómsveitarstjóri
í Vestmannaeyjum og á Norðfirði, þar sem hann er nú búsettur, Þórarinn Óskarsson,
trombón (var um alllangt skeið með eigin hljómsveit, en hefur lítið fengizt við hljóð-
Framhald á bls. 31.
Til vinstri á þessari mynd sjáum við
enska söngvarann og kvikmyndaleikar-
ann Frankie Vaughn, sem m. a. lék í
kvikmyndinni „Let‘s make love“ með
Marylin Monroe, sem sýnd var hér á landi
fyrir nokkrum vikum. Englendingar bundu
miklar vonir við Frankie og væntu þess
að hann mundi „slá í gegn“ i Ameríku
með þeim tveim kvikmyndum, sem hann
lék í þar, en það fór á annan veg. Þó
Frankie sé góður söngvari þá er hann
ekki nógu góður kvikmyndaleikari, segja
þeir i Ameríku og vilja ekki fá Iiann í
fleiri kvikmyndir að sinni.
Annars er Frankie þarna í samræðum
við þau Nínu og Friðrik, sem oft hafa
komið fram i Englandi undanfarna mán-
uði og eru mjög vinsæl þar. Þau Nina og
Friðrik munu m. a. fara til Ameríku bráð-
lega, þar sem þau eiga að skemmta i sjón-
varpsþáttum.
24 VIKAN