Vikan - 07.02.1963, Page 50
Heildverzlun HALLDÓRS JÓNSSONAR, Hafnarstræti 18. Símar 12586 og 23995.
■
verndar litaraftið í
vetrarkuldum.
Þegar þér kaupið snyrtivörur, biðjið um
Dubapp^y
Látið
Dubarry
CLEANING CREAM
hreinsa og fegra
húð yðar.
og
Dubarry
VANISHING CREAM
hafir ekki vit til að notfæra þér.
Kæri Draumráðandi.
Mig langar til að biðjá þig að ráða
draum fyrir mig. Mér fannst ég
vera í tjaldi skammt frá þeim bæ,
sem ég er fædd á. Þar var einnig
fólk sem ég þekkti. Ég kem út og
stend fyrir utan tjaldið mitt en í
því kallar stelpa heiman frá bæn-
um, „sérðu roðadepilinn sem er yfir
tjaldinu þínu og veiztu hvað það
þýðir.“ Ég horfi nú upp í loftið og
sé þennan roða, sem er alveg kringl-
óttur á stærð við dálítið stóran pott-
hlemm. Ég horfi á þetta og sé að
roðinn líður yfir næsta tjald til
hægri. Ég stóð fyrir framan tjöldin
og roðinn greiðist þar í sundur og
hverfur. Mér finnst þegar ég sé þetta
að það boði eitthvað illt og bið
fólkið í hinum tjöldunum að flytja
sig þaðan, því að ég vilji ekki vera
hér, en það vill ekki fara. Þegar ég
kem heim á bæinn, segir stúlkan
sem kallaði til mín, að roðinn þýði
rógburð en ég viti líklega ekki hvað
Ný gerð af smásjá
Framhald af bls. 3.
hennar úr tíu feta f jarlægð, og einnig
taka ljósmyndir af stækkuninni.
Tæki þessi eru auk þess tiltölulega
ódýr, eða á níu dali vestur í Banda-
ríkjum. Ættu skólar, sem hafa hug á
að kaupa smásjár að spyrjast fyrir
um þessa gerð, er tekur þeim eldri
mjög fram.
það þýði. Ég segi að það þýði illt
umtal, og líklega í ástamálum.
Mig dreymdi margt fleira þessa
nótt en þetta var skýrast, en yfir-
leitt fannst mér allt ganga mér svo
illa og vera mér svo andstætt.
Með fyrirfram þakklæti.
Halla.
Svar til Höllu:
Sagt er að viss tegund rauðs
litar í draumi sé tákn deilna. Þessi
litur er dekkri tegund heldur en
hinn venjulegi rauði litur og þar
sem mikið her á honum í draumi
verður ekki greint af lýsingu
þinni af draumnum hvers konar
tegund litarins var að ræða, en
Ijóst er að hann verkaði á stúlk-
una heim á bænum, sem illt tákn
og að því er virðist varst þú á
sama máli. Þess vegna verður að
álíta að draumurinn bendi til
einhverra deilna og þá helzt við
það fólk, sem roðadepillinn stað-
næmdist yfir og leystist upp.
Kæri Draumráðandi.
Vilduð þér gera svo vel að ráða
fyrir mig eftirfarandi draum, sem
mig dreymdi í nótt.
Mér þótti sem ég væri stödd ein-
hvers staðar þar, sem fólk var að
dansa, en þó greindi ég ekki um-
hverfið eða fólkið. Kemur þá maður
til mín og fannst mér sem hann væri
eitthvað drukkinn. Hann biður mig
að dansa við sig en ég var ekkert
hrifin, en dansaði þó við hann fyrir
kurteisissakir. En þegar við erum
búin að dansa nokkur spor sé ég að
maðurinn er allur blóðugur en mest
fannst mér blóðið vera á fötum hans
og þá sérstaklega á bakinu. Segi
ég þá við hann: „Hvað er að sjá
þig maður, hvað hefur komið fyrir
þig?“ Sagði hann þá, að hann hefði
annað hvort lent í ryskingum eða
dottið. Leiddi ég hann þá út af gólf-
inu en sá um leið að dansfólkið fékk
blóð í föt sín um leið og það straukst
við hann. Kom nú þarna eitthvað
fólk og tók manninn, en ég stóð
þarna og þurrkaði af mér blóðið,
sem ég hafði fengið á ennið og hend-
urnar. Maðurinn var ekki neinn,
sem ég þekki eða hef séð. Ég sá
hvergi blæða úr manninum. M. J.
Svar til M. J.:
Blóðrefjar á fólki benda til
þess að óvinir eða óvildarmenn
sækist eftir að vinna tjón á þeirri
góðu framabraut, sem áunnizt
hefur. Raunar er varað við nýj-
um kunningjum um þær mundir,
sem mann dreymir draum sem
þennan. Með hliðsjón af þessu og
draumnum mundi hann því
benda til að þú hittir mann, sem
ekki reyndist þér sem skyldi og
svo virðist, sem fleiri yrðu flækt-
ir í vandræði þau, sem hann
stofnar till
Kæri Draumráðandi.
Á Jónsmessunótt dreymdi mig að
ég vaknaði um morguninn í herberg-
inu mínu, og þá sé ég autt rúm
(sjúkrarúm) standa á miðju gólfi.
Ég vissi að móður minni, sem var
veik á spítala, var ætlað þetta rúm.
Þá verður mér litið upp og sé ég þá
að móðursystir mín, sem heitir
Guðrún, var þarna nærstödd. Um
leið og ég leit undir rúmið sá ég
hvar vætlaði vatn út úr veggnum
og rann undir rúmið. Á litlu borði,
sem á var rósóttur dúkur, sem ég
á sjálf, sá ég 3 litlar perlur. Ég
tek þær 1 lófa minn, skoða þær en
missi þær allar á gólfið. Tvær þeirra
sem voru eins, brotnuðu þegar í
stað, en sú þriðja, sem var bleik
með stjörnu í, var heil. Um leið og
ég tek hana upp birtist mér amma
mín, sem hét Guðlaug. Þess skal
getið að ég er orðin fullorðin og allt
það fólk sem við kemur þessa sögu,
er löngu látið.
Spurul.
Svar til Spurullar:
Flest munu tákn þau er í þess-
um draum birtast benda fremur
til einhverra veikinda, svo sem
sjúkrarúmið, vatnið er seitlaði
út úr veggnum og undir veg^n-
um, svo og perlan. Margir telja
að viðræður við framliðna bendi
til heillavænlegrar . framtíðar,
þannig að álykta verður að þú
komizt vel yfir þetta allt og
eigir .heillaríka framtíð fyrir
höndum.
HVAÐA STÆRÐ ÞARFTU?
Númer á sniðunum 38 kO k% hk kO k& 5°
Baklengd í cm ..
Brjóstvídd ......
Mittisvídd ......
Mjaðmavídd ......
40 41 42 42 42 43 43
86 88 92 98 104 110 116
64 66 70 78 84 90 98
92 96 100 108 114 120 126
Sídd á pilsi .... 70 í öllum stærðum -f 5 cm í fald.
„ T A TIJ A “
I Sendið mér í pósti pils og blússu, sam-
I kvæmt mynd og lýsingu í þessu blaði. Sem
I tryggingu fyrir skilvísri greiðslu sendi ég
H hérmeð kr. 100.00.
S Stærð ...... Litur .........................
g Ef sá litur kynni að vera búinn, sendið mér þá
I ...................
[ Nafn ......................................
| Heimilisfang ..............................
! Saumtillegg. Já □ Nei □
£Q — VIKAN 6. tbl.