Vikan - 16.05.1963, Blaðsíða 5
þú segir? Þið skuluð setja markið
heldur lægra og reyna að njóta
lífsins. Eins og nú er í pottinn
búið, eruð þið ckki gift, nema að
nafninu til. Ef þetta væri ill
nauðsyn, myndi málið horfa
öðruvísi við. — Ég er viss um,
að með skynsamlegum fortölum,
getur þú komið vitinu fyrir
manninn þinn. Auk þess finnst
mér sjálfsagt, að þú fáir þér
vinnu hálfan daginn, úr því að
þú átt svona góða að. í fyrsta lagi
hefur þú gott af því að skipta
um umhverfi, umgangast fólk og
kynnast lífinu í kringum þig, og
ekki er heldur verra að fá borgað
fyrir upplyftinguna. — Sem sagt:
ef hjónum er það fjárhagslega
unnt að veita sér frístundir stöku
sinnum, þá finnst mér slíkt sjálf-
sagt og vel það — jafnvel þótt
þau geti fyrir bragðið ekki veitt
sér að fara í hnattferð á lúxus-
skipi í tilefni gullbrúðkaupsins.
pð .vi mub
Jb R R0OÍ Aft, óvA
/tW)þíS -VWaUa
jns
•ksX -vW ví^
IpyJ.|5
AjJvs&jV Vft' 'm\ iwvj,
^ <ro) ^ Wt^C\ 'WW
*W+lf«V 'lb,,^
Wohí 'j íWa \/$
'.»W ( j4jwív\
Mnj/vi nwy\Á V}^
ÍjA sM'IjvaKW') ,y
4^ 'W V1' jW yXí^
• ^5, írðjs
■ vJ. • 2’í'\
Nízka ...
Kæri Póstur.
Nú er knattspyrnan aftur komin
í fullan gang eftir vetrardvalann.
Mig hefur oft langað til að skrifa
þér örfá orð um leiðinlegt athæfi
sumra vallargesta: Það kostar ekki
ýkjamikið inn á „völlinn“, og ég
skil ekki í öðru, en það sé allflest-
um fjárhagslega kleift að kaupa sig
inn. En þegar kappleikir eru vestur
á Melavelli, má sjá langar bílaraðir
umhverfis völlinn, þar sem menn
standa á blátánum uppi á bílþök-
unum og rýna inn á völlinn. Það er
ekki að ástæðulausu, að selt er inn
á völlinn, og er því þessi ljóti ósiður
vítaverður. Þetta ber vott um svo
takmarkalausa nízku, að mönnum
hlýtur að blöskra. Hvers vegna
bannar ekki lögreglan þetta? Þessir
ómerkilegu nirflar, sem ekki tíma
að kaupa sig inn á völlinn eiga að
vera sektaðir fyrir svona framkomu.
Hvað finnst þér?
Knattspy rnuunnan d i.
--------Alveg sammála. Menn-
irnir eru þarna í engum rétti.
Annars held ég að þeir sekti sig
mest sjálfir með því að sýna sig
prílandi upp á bílþökum. Þeim
er mest vorkunn, þessum vesal-
ingum.
Svar til „S.K.M“ ...
--------Ég gæti vafalaust gefið
þér einliver ráð, en ég er hrædd-
ur um, að þau ráð yrðu fremur
haldlítil. Þetta er alvarlegt mál
og viðkvæmt. Ég held, að þér
væri bezt að leita til geðverndar-
deildarinnar á Heilsuverndar-
stöðinni. Þar er kunnáttufólk, i
sem vafalaust getur orðið þér að
einhverju liði.
Á ég aS brúka kjaft... ?
Kæra Vika.
Ég er tíu ára, og mig langar til I
að fá að ganga í nælonsokkum, en
mamma vill það ekki. Á ég að hlýða
henni, eða á ég að brúka kjaft?
Ingibjörg.
--------Þú átt að skammast þín,
hlýða henni mömmu þinni og
venja þig af svona orðbragði.
R í-v-í
le
Potlen
dOreKkiée
Crérrte Princesse Pcltricla,
Auðugt af vitaminum, nærir húðfrumurnar — sem eru mæli-
kvarði æskublómans —.
Kremið, sem bera má á alla yfirhúð, gefur gagnvirkan árangur.
Créme" Vestale"
Efni þau i kreminu, sem framleidd eru úr Orchidée frjódufti,
koma í veg fyrir að húðin skorpni af notkun farða, og fram-
lengja áhrif kremsins Princesse Patricia.
"Laeta- Créme
Milligerð af kremi og mjólkurkenndum legi, hefur stórkostlega
áhrifaríka eiginleika.
HREINSAR — AFFARÐAR — MÝKIR — ENDURNÝJAR.
,6iliula liujl ibi[ xuMc'I--------
óí; Jlo i/blo 13 ónd ,nim nbbúa
-löid 1b nxuticg nnova mulöil Siv
Sxul gö iiiid unasv aaod 30 ,mu
msa Sbí .lii^l lumsd Sxsd -go auis
utl Öuvxi i3 ,u luigcaairi 13 gs
13 33 30 ,Í3v ciiod öxúiula lulsri
xvd cini ®u uniixxl iví muiaæu
uiftlo X533lui3VUUBl Í132 ild ÖE
13 Scd n3 — .niuuasulö xmova
!... xillúl xtxicri Ö3m Í2I3V
Svar til „K“ ...
•-------Það er of seint að byrgja
brunninn, þegar barnið er dottið
ofan í. Þú vissir vel, hvað þú
varst að gera, og þú vissir líka
vel, hvað gat gerzt. Þetta er
sjálfskaparvíti, piltur minn, og
það væri argasta ómennska að
bregðast stúlkunni núna.
Umboðsmenn í Reykjavík: Regnboginn — Tíbrá — Oculus —
Stella. — Umboðsmenn úti á landi: Akureyrarapótek, Akureyri
— Straumur, ísafirði Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi — Kf.
Árnesinga, Selfossi — Silfurbúðin, Vestmannaeyjum — Kyndill,
Keflavík — Drangey, Akranesi.
ORLAN E
P A R t S
VIKAN 20. tbl. — fj