Vikan


Vikan - 21.11.1963, Blaðsíða 27

Vikan - 21.11.1963, Blaðsíða 27
UNGT FÓLKÚ UPPLEID FYRST VAR AÐ BYGGJA - SÍÐAN ÍSLENZKATEXTANA Við sem förum okkur til skemmtunar og afslöppunar í bíó á kvöldin, hugsum að jafn- aði ekki mikið um þá staðreynd, að einhver maður hefur lagt það á sig að sjá fjölda kvikmynda til þess að velja einmitt þessa einu. A kvikmyndamarkaðnum er um margt að ræða og margt af því kemur vissulega til greina. Það getur orðið mjótt á mununum og vandi að velja. Eins og að velja efni í blöðin, byggist þetta á persónulegu mati og sá, sem velur, verður að vera fær um að setja sig í spor fjöldans. A því hvort blöðin seljast eða bíóin eru sótt, sést svo hvort réttilega hefur verið valið. Tónabíó er eign Tónlistarfélagsins. Það flutti í fyrra í nýtt og veglegt húsnæði við Skipholt eins og flestir vita. Sá, sem hafði veg og vanda af þeirri byggingu og sá sem velur myndir á tjaldið hvíta í því kvikmyndahúsi, heitir Guðmundur Jónasson. Hann er fæddur í Hafnarfirði 1933 og ólst þar upp. Guðmundur hefur lagt gjörva hönd á margt; vann við landbúnaðarstörf hingað og þangað um landið framan af, innanbúðarmaður hjá Storr á Laugaveginum, aðstoðarmaður á sviði Þjóðleikhússins, verkstjóri við bílamálun hjá Bílaiðjunni. Hann nam við iðnskólann í Hafnarfirði og Framhald á bls. 47. Guðmundur Jónasson — VIKAN 47. tbl. ERFÐAFRÆÐI BUFJAR OG BÚNAÐARBLAÐIÐ AÐ AUKI Menn deila um framtíð landbúnaðar á íslandi, hvort hann sé bara „kjánalegt sport“ eins og Kiljan sagði, hvort hann geti annað innanlandsneyzlunni, auk- ið gjaldeyristekjurnar eða hvort það ætti bara að leggja hann niður. Eitt eru þó flestir sammála um: fslenzka ullin er úrvalsvara; hún hefur ákveðna eiginleika, sem ef til vill engin önnur ull hefur. Sá, sem veit mest um íslenzku ullina er án efa Stefán Aðalsteinsson, sérfræðingur í búfjárrækt við Atvinnu- deild Háskólans og þar að auki ritstjóri Búnaðarblaðs- ins. Stefán er fæddur 1928 að Vaðbrekku í Hrafnkels- dal, N. Múl. Þar bjuggu foreldrar hans og búa enn og þar eru einna bazt skilyrði hérlend til sauðfjárbúskap- ar. Stefán nam við Menntaskólann á Akureyri og lauk stúdentsprófi þaðan 1950. Framhald á bls. 46. Kfi ct- CD H> ts Or P 1 _i œ ct (D H* 2 CQ CD o Einhverjar bezt teknu myndir af íslenzku fólki, sem birzt hafa á síðum Vikunnar, voru myndirnar af þátt- takendum í fegurðarsamkeppninni síðastliðinn vetur. Höfundur þeirra var Óli 'Páll Kristinsson, ljósmyndari. Það var raunar engin tilviljun, að Vikan fékk einmitt hann til starfans; það var löngu kunnugt, hvað hann gat og hverju mátti eiga von á. Síðan hefur brugðið svo við, að ungar stúlkur flykkjast á ljósmyndastofu Óla Páls því þær hafa séð handaverk hans í Vikunni. Óli Páll Kristinsson er fæddur á Húsavík 1928. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum, sem bjuggu þar í pláss- inu og var þar fram yfir tvítugt. Framhald á bls. 46. Óli Páll Kristinsson. OFTAST IVIEÐ UNGAR STÚLKUR FRAM AN VIÐ LJÓSOPIÐ

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.