Vikan


Vikan - 13.02.1964, Síða 25

Vikan - 13.02.1964, Síða 25
Þriggja kosta völ átt heima, og þar sem þú getur ekki haldið áfram að svíkja fé út úr öðrum . . . Hann kveikti í vindlingi og fleygði eldspýtunni frá sér. — Ég er alls ekki ríkur maður, og auk þess var þetta mér meira virði en peningarnir sjálfir. - Já, ég veit það, það var vel- ferð þessa gamla fólks, sem lá þér á hjarta, og lækningastof- an . . . Já, það er hörmulegt, en hálf þreytandi líka. Og það kem- ur ekki að gagni að sakast um ovðinn hlut. Simon vor orðinn rórri og kaldari. — Þú fékkst þrjú þús- und pund hjá mér og fimm hundruð hjá Jock Hamden. Pen- irr'a, sem étti að festa í húseign- inni White Gates, Exeter. Eign sem ég skoðaði sjálfur og þing- aði um við fasteignasalann. Ég íélist á tillögurnar um breyting- ar á húsinu . . . Og allan tím- ann . . . — Já, þú lézt leika á þig - eins og svo margir fleiri. Ég hef rekizt á ýmsa mis- lita sauði um ævina, en þú ert þeirra frakkastur. Ég er staðráð- inn í að kæra þig, af því að mér finnst þú ekki hafa nokkra máls- bót í þessu athæfi. — Ég held varla að þú gerir það. — Hvers vegna ekki? — Af því að ég hef tryggt mig gegn því. — Attu við einhverjar trygg- ingar, sem þú getir komið í pen- inga? - Ég veit ekki betur en að þú elskir Clare, sagði Ralph ofur ró- lega. Ég efast vitanlega ekki um að þú ætlir að giftast Faith — þú ert svo fórnfús en það breytir engu frá mínu sjónar- miði. — Þú þarft ekki að bendla tilfinningar mínar við þetta mál, sagði Simon stutt. — Þær koma þér ekkert við. - Kannske. En þær hljóta að skipta máli fyrir þig í framtíð- inni. — Þú varst að tala um trygg- ingar — hvað áttir þú við? spurði Simon — hann varð allt í einu var um sig. — Clare, sagði Ralph kulda- lega. - - Clare! hrópaði Simon. - Ætlarðu að segja mér að Clare hafi verið nokkuð við þetta riðin? — Fyndiát þér það nokkuð undarlegt? Hún er trúlofuð mér 10. HLUTB Eftir SUSAN IVIARSH Teikning: GYLFi REYKDAL VIKAN 7. tbl. 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.