Vikan


Vikan - 13.02.1964, Page 31

Vikan - 13.02.1964, Page 31
en verður því aðeins eðlileg og rökrétt, að hinir gömlu munir gegni sérstöku hlutverki hjá fjölskyldunni; séu erfðagripir eða á einhvern hátt tengdir gömlum endurminningum. Þessi hreyfing hefur vissulega náð til okkar og raunar alltaf verið til. Mér er sérstaldega minnis- stætt eitt heimili menntamanns og prestssonar af grónu sveita- hcimili norðanlands. Þar hefur gömlum og virðulegum húsgögn- um af prestssetri í sveit verið smekklega' fyrir komið með öðru af yngri uppruna. En lika héf ég séð nýríka pabbadrengi skreyta hjá sér með klyfberum og torf- ljáum; verkfærum sem þeir vita varla hvað heita og hafa aldrei séð notuð. Þá er nú betra að halda sig við tekkið. G.S. NÁMSMAÐUR SKRIF- AR METSÖLUBÓK Framhald af bls. 7. um og umhyggju móður sinnar, sem var kjölfesta heimilisins, enda faðirinn ósjaldan fjarver- andi vegna fjármálastarfsemi sinnar. Rose Kennedy er lágvaxin kona, fíngerð, grannvaxin, þrátt fyrir barneignir sínar, trúkona, kaþólikki, sem átti erfitt með að sætta sig við giftingu einnar dótt- ur sinnar og aðalsmanns úr ensku biskupakirkjunni. Hún tal- ar aldrei illa um nokkurn mann, hefur meiri áhuga á Parízar- tízkunni en stjórnmálum, og skortir gersamlega kraft og kyngi Kennedyættarinnar. Enda skildi hún aldrei til fullnustu hvers vegna sonur hennar, John sóttist eftir forsetaembættinu: „Hann, sem hefði getað átt svo góða daga í öldungadeildinni“. Hún vakti yfir börnum sínum með innilegri ástúð og um- hyggju en flestum níu barna mæðrum hefði verið unnt að sýna. Ollum vinum hennar og kunningjum ber saman um þetta. Hún laut manni sínum skilyrðis- laust í uppeldi bamanna. Hann hvatti þau til umræðna við mat- borðið, helzt um stjórnmál og íþróttir. Að honum fjarverandi reyndi hún að búa sig undir og fitja- upp á pólitískum umræðu- efnum, af því að hún vissi að maður hennar vildi það. Hún reyndi heldur ekki að draga úr ærslum bamanna og bægsla- gangi, hörku þeirra í leik og stríði, meðan hún var hófleg. Henni var ljóst að maður henn- ar hafði sízt á móti því að börn- in beittu sig hörðu til þess þau vendust undir lífsbaráttuna. Hjónunum var jafnframt báðum ljóst, að átökin máttu ekki leiða til sundrungar í hópi barnanna. Þeir sem síðar kynntust Kenn- edy-systkinunum, fullorðnum og hálffullorðnum, sögðu að kapp- leikir þeirra og önnur samkeppni virtist bæði sundra þeim og sam- eina í senn, þau virtust þrífast á innbyrðis átökum. Enda er Kennedy-ffjölskyldan orðlögð fyrir baráttuþrek og kapp, sem fleytti John Kennedy lengra en nokkuð annað. Þessi einkenni voru þó ekki áberandi á námsferli Kennedys, fyrr en hann var búinn að vera tvö ár í háskóla. A barnaskóla- árunum var hann „í meðallagi námsfús en uppstökkur“ og frammistaða í prófum eftir því. í unglingaskóla virtist kennur- um hans að hann yrði aldrei annað en „kurteis, þriðja flokks menntamaður“. Og framan af í háskóla var frammistaðan ekki af því tagi að hann gæti státað sig af henni. En eitthvað sér- stakt hafa félagar hans í ungl- ingaskólanum séð í honum, því þeir kusu hann eftir meðalgott lokapróf, „þann sem líklegastur þeirra var til að komast áfram í lífinu“. Samt varð hann aðeins númer 64 af 112 við prófið. Hann hafði þó sýnt hörku og keppnis- vilja í öllum íþróttmu, enda og hlotið viðurkenningu skólafélaga sinna fyrir það, enda þótt hann yrði ekki íþróttastjarna á borð við Joseph yngri, sem var bæði þrekvaxnari og sterkbyggðari. Kennedy lét hvorki veikindi né meiðsli aftra sér frá því að ljúka leikjum. Þetta varð til þess að hann meiddist svo alvarlega í hrygg að hann varð að leggjast inn á sjúkrahús til aðgerðar. Meiðslin fylgdu honum alla ævi, höfðu næstum kostað hann lífið, a.m.k. tvisvar sinnum, í stríðinu, og þegar hann þurfti að þola lífshættulegan uppskurð vegna óstöðvandi kvala í bakinu. Þá var hann öldungadeildarþing- maður, hafði stuðzt við hækjur í langan tíma, en kvaðst „heldur vilja deyja, en að fara haltrandi gegnum lífið“. Kapp og-jafnvel ofsi í íþrótt- um voru áunnir eiginleikar að nokkru leyti. Þeir höfðu magn- azt í sérstæðum átökum um for- ystuna meðal systkinanna. Joseph yngri vildi ráða yfir syst- kinum sínum, ekki sízt þegar fað- ir hans var fjarverandi. Þá tók hann sér húsbóndavald, sem John hróðir hans þoldi honum ekki, og leiddi þetta stundum til heiftugra slagsmála, sem auðvitað lauk með sigri Josephs, en John hlaut allar skrámurn- ar og meiðslin. Stundum gengu slagsmálin svo langt að foreldr- arnir gripu í taumana, enda var yngri bróðirinn, þrjózkufullur og reiður, ekki á því að gefast upp. Eitt skiptið flúðu öll systkinin upp á efri hæð hússins meðan bræðurnir börðust á neðri hæð- inni. Systurnar grétu af skelf- ingu og strákarnir vissu ekki hvað til bragðs skyldi taka. Það er ekki að efa að á tíma- bili hafi Kennedy fundizt sem hann væri þrúgaður af bróður HVERNIG DÆMIR ÞÖ? Jón hlýtur 15% örorku Gauti Grímsson rak umfangsmikla innflutningsverzlun. Jón Jónsson réðist í þjónustu hans. Vann hann aðallega í vöru- geymslum fyrirtækisins, svo og önnur störf, sem til féllu. í afspyrnuroki brotnaði rúða í verzlunarbyggingunni á 4. hæð að næturlagi. Um morg- uninn skipaði verkstjóri fyrir- tækisins svo fyrir, að Jón ásamt öðrum starfsmanni skyldi setja nýja rúðu í glugg- ann. Ekki var tiltækur nægi- lega langur stigi til að vinna verk þetta. Lagði verkstjórinn þá svo fyrir, að negldir skyldu saman tveir stigar og þess freistað að koma rúðunni í gluggann. Hinn samannegldi stigi náði nokurn veginn til hins brotna glugga. Það féll í hlut Jóns að klífa stigann til rúðuísetningar, en félagi hans og verkstjórinn studdu stigann. Veður var kyrrt, en talsverð rigning. Jón var því klæddur regnkápu og hafði stígvél á fótum. Þannig búinn lagði Jón til uppgöngu í stigann. Þegar hann var kominn mjög ofar- lega í stigann, brustu samskeytin, og Jón féll til jarðar með þeim afleiðingum, að hann fótbrotnaði mjög illa á hægri fæti, hlaut slæman heilahristing og þrjú rifbein brákúðust. Jón átti mjög lengi í meiðslum sínum. Hann var algerlega óvinnufær næstu þrjá mánuði, gat enga erfiðisvinnu stundað næsta ár þar á eftir, og varanleg örorka hans var metin 15%. Jón taldi, að fyrirtækið ætti að bæta sér tjónið, bæði fjár- tjón og miska, að fullu, þar sem hann hafði í umrætt skipti verið að framkvæma fyrirskipanir verkstjórans, en á verkum hans bæri fyrirtækið ábyrgð. Gauti Grímsson taldi það að vísu rétt, að hann bæri ábýrgð á störfum verkstjórans, ef svo yrði litið á, að störf hans hefðu valdið fébótaskyldu. Hins vegar sagði Gauti, að hann fengi ekki betur séð, en Jón gæti sjálfum sér um kennt, hvernig fór. Hann hefði ótilneyddur farið upp í stigann mjög þung- lamalega klæddur, en klæðnaðurinn hefði einmitt verið aðalorsök eða a.m.k. meðorsök hins alvarlega slyss. Jón gæti því ekki við neinn sakazt nema sjálfan sig út af afleiðingum slyssins. En hvernig sem á mál þetta yrði litið, þá ætti Jón Jónsson að bera meginhlutann af fjárhagslegum afleiðingum slyssins. Spurning VIKUNNAR: HVER VERÐA ÚRSLIT ÞESSA DÓMSMÁLS? Sjá svar á blaðsíðu 48. VIKAN 7. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.