Vikan


Vikan - 13.02.1964, Side 32

Vikan - 13.02.1964, Side 32
 nordIDende I sjónvarpstæki Nú geta allir eignazt hin heimsþekktu NORDMENDE sjónvarpstæki. NORDMENDE sjónvarpstækin eru fáanleg með hinum hag:- stæðustu greiðsluskilmálum. NORDMENDE sjónvarpstækin eru fáanleg í mörgum gerðum og við allra hæfi. NORDMENDE sjónvarpstækin eru gerð fyrir bæði amer- íska- og evrópíska-sjónvarpskerfið, svo að þegar íslenzka sjónvarpiö kemur þarf engu að breyta. NORDMENDE sjónvarpstækin eru heimsþekkt fyrir skýr- ar mynö.ir, góðan hljóm og vandaðan frá- gang. Komið og skoðið NORDMENDE-sjónvarps- tækin. Kynnið yður verðið og gæðin. Kynnið yður hina hagkvæmu greiðsluskil- mála. • Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta. — Sendum og • sækjum tækin. — Setjum upp og stillum tækin. - Aðeins 9 beztu fáanleg sjónvarpsloftnet notuð. Radio B Ú Ð I N KLAPPARSTÍG 26 SÍMI 19800 II 'nupnap f.v;i Sisf Wm Stjörnuspáin gildir írá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert mjög önnum fcafinn og verður það áfram. Þú munt verða að sjá af félagsskap fólks, sem þú hefur umgengizt mikið og átt margt sameiginlegt með. Þú fœrð fréttir eða sendingu, sem kemur langt að. Það verður venju fremur gestkvœmt á heimili þínu. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar undanfarið, en nú geturðu glatt þig við að því versta er lokið. Þú verður eigandi að hlut, sem þig hefur lengi dreymt um og á eftir að þjóna þér dyggilega. Kvöld- unum væri bezt varið í hópi kátra félaga. Tvíburamcrkið (22. maí — 21. júní): Ef þú vilt halda heimilisfriðinn skaltu láta undan kröfu maka þíns, sem þú innst inni viðurkennir að er réttmæt og sjálfsögð. Þú hefur sýnt mikla ókurteisi með viðbrögðum þínum gegn hamingju kunningja þinna, sýndu að þú kunnir að skammast þín. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það hafa orðið breytingar á högum þínum, sem þú ert mjög ánægður með. Einhverjir erfiðleikar eru í vændum, ef til vill í sambandi við húsnæðismál. Öll viðskipti eru hagstæð. Þú tekur til við að liðka þig í einhverju, sem þú hefur numið fyrir löngu. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Þú munt eiga einhver viðskipti, sem þú hagnast talsvert á, en ættir þó ekki að hafa hátt um. Þú tekur á þig rögg og lýkur af heimsókn til kunn- ingjafólks þíns, sem þú hefur trassað mánuðum saman. Þú rifjar upp tómstundagaman, sem þú hefur lengi látið liggja niðri. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú munt umgangast fjölskyldu þína óvenju mikið en það er aðallega vegna þeirrar hjálpar, sem þú sækir til hennar. Eldri maður nákominn þér, veld- ur þér vonbrigðum, sem verða til þess, að þú breyt- ir afstöðu í vandasömu máli. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vinur þinn, sem dvelst mjög fjarri þér, sennilega í útlöndum, hugsar til þín, vegna smá vanrækslu þinnar, það mundi gleðja hann ef þú kipptir því í lag. Þú færð óvæntar fréttir um trúlofun aðila sem standa þér nærri. Þú verður þátttakandi í miklum gleð- skap. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Einn fjölskyldumeðlimurinn mun dveljast í fjar- lægð um tíma. Þér berast óyænt verkefni, sem gefa þér smá tekjur. Vikan verður fremur tilbreyt- ingarlítil, líkur benda til þess að þú verjir nokkr- um hluta hennar til að létta undir með kunningja þínum. Boginannsmerkið 23. nóvember — 21. desember): Þú átt miklar breytingar í vændum varðandi heimili þitt, sem munu verða öllum hlutaðeigandi til mikillar gleði. Þú hefur óvenju lítið fyrir stafni, og munt eiga margar frístundir. Eyddu tíma þínum sem mest heimafyrir. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Náin persóna, kemur þér talsvert á óvart vegna afstööu sinnar til viss málefnis. Þú munt verða þátt- r takandi í miklum hátíðahöldum, sem verða nokkuð útlátasöm fjárhagslega séð. Varastu að taka nokkr- ar afgerandi ákvarðanir varðandi kaup og sölu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú verður beðinn um að vera millgöngumaður í máli, sem þér er fremur ógeðfellt, þú skalt samt ekki skorast undan því, vegna eftirkastanna sem það kann að hafa í för með sér. Fjölskyldulíf þitt hefur eitthvað sérstakt upp á að bjóða, sem mun auka á hamingju þína. ©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Nokkurrar óánægju mun verða vart meðal félaga þinna. Þetta mun skipta þig nokkru og mundu að fara gætilega í sakirnar og láta ekki stjórn- ast af augnablikstilfinningum. Fjármunir sem þú hefur ekki hugsað mikið um, koma nú í góðar þarfir. ili

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.