Vikan - 13.02.1964, Page 32
nordIDende
I
sjónvarpstæki
Nú geta allir eignazt hin heimsþekktu
NORDMENDE sjónvarpstæki.
NORDMENDE sjónvarpstækin eru fáanleg með hinum hag:-
stæðustu greiðsluskilmálum.
NORDMENDE sjónvarpstækin eru fáanleg í mörgum
gerðum og við allra hæfi.
NORDMENDE sjónvarpstækin eru gerð fyrir bæði amer-
íska- og evrópíska-sjónvarpskerfið, svo að
þegar íslenzka sjónvarpiö kemur þarf engu
að breyta.
NORDMENDE sjónvarpstækin eru heimsþekkt fyrir skýr-
ar mynö.ir, góðan hljóm og vandaðan frá-
gang.
Komið og skoðið NORDMENDE-sjónvarps-
tækin.
Kynnið yður verðið og gæðin.
Kynnið yður hina hagkvæmu greiðsluskil-
mála.
• Fullkomin varahluta- og viðgerðarþjónusta. — Sendum og
• sækjum tækin. — Setjum upp og stillum tækin. - Aðeins
9 beztu fáanleg sjónvarpsloftnet notuð.
Radio
B Ú Ð I N
KLAPPARSTÍG 26
SÍMI 19800
II
'nupnap
f.v;i
Sisf
Wm
Stjörnuspáin gildir írá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú ert mjög önnum fcafinn og verður það áfram.
Þú munt verða að sjá af félagsskap fólks, sem þú
hefur umgengizt mikið og átt margt sameiginlegt
með. Þú fœrð fréttir eða sendingu, sem kemur langt
að. Það verður venju fremur gestkvœmt á heimili þínu.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur átt nokkuð erfitt uppdráttar undanfarið,
en nú geturðu glatt þig við að því versta er lokið.
Þú verður eigandi að hlut, sem þig hefur lengi
dreymt um og á eftir að þjóna þér dyggilega. Kvöld-
unum væri bezt varið í hópi kátra félaga.
Tvíburamcrkið (22. maí — 21. júní):
Ef þú vilt halda heimilisfriðinn skaltu láta undan
kröfu maka þíns, sem þú innst inni viðurkennir að
er réttmæt og sjálfsögð. Þú hefur sýnt mikla
ókurteisi með viðbrögðum þínum gegn hamingju
kunningja þinna, sýndu að þú kunnir að skammast þín.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Það hafa orðið breytingar á högum þínum, sem þú
ert mjög ánægður með. Einhverjir erfiðleikar eru
í vændum, ef til vill í sambandi við húsnæðismál.
Öll viðskipti eru hagstæð. Þú tekur til við að liðka
þig í einhverju, sem þú hefur numið fyrir löngu.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú munt eiga einhver viðskipti, sem þú hagnast
talsvert á, en ættir þó ekki að hafa hátt um. Þú
tekur á þig rögg og lýkur af heimsókn til kunn-
ingjafólks þíns, sem þú hefur trassað mánuðum
saman. Þú rifjar upp tómstundagaman, sem þú hefur lengi látið
liggja niðri.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þú munt umgangast fjölskyldu þína óvenju mikið
en það er aðallega vegna þeirrar hjálpar, sem þú
sækir til hennar. Eldri maður nákominn þér, veld-
ur þér vonbrigðum, sem verða til þess, að þú breyt-
ir afstöðu í vandasömu máli.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Vinur þinn, sem dvelst mjög fjarri þér, sennilega í
útlöndum, hugsar til þín, vegna smá vanrækslu
þinnar, það mundi gleðja hann ef þú kipptir því
í lag. Þú færð óvæntar fréttir um trúlofun aðila
sem standa þér nærri. Þú verður þátttakandi í miklum gleð-
skap.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Einn fjölskyldumeðlimurinn mun dveljast í fjar-
lægð um tíma. Þér berast óyænt verkefni, sem
gefa þér smá tekjur. Vikan verður fremur tilbreyt-
ingarlítil, líkur benda til þess að þú verjir nokkr-
um hluta hennar til að létta undir með kunningja þínum.
Boginannsmerkið 23. nóvember — 21. desember):
Þú átt miklar breytingar í vændum varðandi
heimili þitt, sem munu verða öllum hlutaðeigandi
til mikillar gleði. Þú hefur óvenju lítið fyrir stafni,
og munt eiga margar frístundir. Eyddu tíma þínum
sem mest heimafyrir.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Náin persóna, kemur þér talsvert á óvart vegna
afstööu sinnar til viss málefnis. Þú munt verða þátt-
r takandi í miklum hátíðahöldum, sem verða nokkuð
útlátasöm fjárhagslega séð. Varastu að taka nokkr-
ar afgerandi ákvarðanir varðandi kaup og sölu.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú verður beðinn um að vera millgöngumaður í
máli, sem þér er fremur ógeðfellt, þú skalt samt
ekki skorast undan því, vegna eftirkastanna sem
það kann að hafa í för með sér. Fjölskyldulíf þitt
hefur eitthvað sérstakt upp á að bjóða, sem mun auka á
hamingju þína.
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Nokkurrar óánægju mun verða vart meðal félaga
þinna. Þetta mun skipta þig nokkru og mundu
að fara gætilega í sakirnar og láta ekki stjórn-
ast af augnablikstilfinningum. Fjármunir sem þú
hefur ekki hugsað mikið um, koma nú í góðar þarfir.
ili