Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 20.02.1964, Qupperneq 45

Vikan - 20.02.1964, Qupperneq 45
£i'ixor/ tryggir jfRAam gæðin ÚTVARPSTÆKI (allar stærðir) RADÍÖFÓNAR (meS og án bergmálshljóms) SEGULBANDSTÆKI PLÖTUSPILARAR FERÐATÆKI HÁTALARAR (ýmsar gerðir) Þjónusta á eigin radíóverkstæði var jafnvel enn víðáttumeiri en hún á nú aS vera og meira af allskonar útskotum. Til dæmis var gert ráð fyrir bogadregnu útskoti út i tjörnina. Arkitektarnir hafa liorfið til einfaldleikans og dyggða lióf- seminnar eftir þvi sem timinn leið. Margt hefði getað hent þá verra en þaS. Þeir verSa ekki sakaSir um að hafa látið frá sér fara neinskonar ósmekklegt og „billegt krúsindúll“. En ef til vill má líka segja, að kjark- urinn hefSi mátt vera meiri. Ekki þýSir aS sakast um þaS héðan af; teningunum hefir ver- ið kastaS, allt er klappaS og klárt. LíkaniS hefur verið sýnt og samþykkt og útlitsteikningar litaðar meS vatnslitum svo minn- ir á Þingvallamyndir i Ramma- gerðinni eftir Matthias þar sem allt stendur á höfði i spegil- sléttu vatninu. Já, það er mikið hvað liann er alltaf heppinn meS veður sá maður, sagði Kjarval. En það er nú önnur saga. ÞaS er hugmyndin að húða húsið ineð íslenzkum bergteg- undum, en annars ber mest á glerflötum svo og póstum, sem verða koparlitaðir ef likanið lýgur engu þar um. Þessi sam- staða koparlista og ljósrar húS- unar á að geta verið mjög góð. Ef til vill ljær sú efnismeðferð og öll innri hlutföll hússins þvi þann yndisþokka, sem við von- um að það fái. Ég held, að við getum eftir atvikum unað sæmilega við sjálfa bygginguna. Mest óttast ég, að ráðhúsið verði alltaf í klemniu á þessum stað enda þótt húsin viki allt til alþingis- hússins og dómkirkpunnar. Það verður ekki auðveldara aS leggja bilnum sínum í nánd við þetta hús en annarsstaðar í miðhluta Reykjavíkur. Þar ætla ég að skórinn kreppi liarðast að. „í þessu ráðhúss ráðleysi er það eitt rétt sem miðar að þvi að beina umferðinni frá miðbæn- um,“ sagði Ólafur Ketilsson, bifreiSastjóri á Laugarvatni við mig eiit sinn, þegar jietta mál har á góma. í þessn húsi mun fjöldi manns vinna. Og jafnvel enn fleiri eiga þanígað erindi á hverri klukkustund. Ég sé ekki framm á annað en að ]iað verði að parkera á jiakið, nema bil- eign fari minnkandi og hver trúir að svo verði? Þessi heimatilbúnu vandamál sýnast óþörf. Eini kostur þessa staðar er sá, að húsið stendur við vatn, sem auka mun á feg- urð þess. En hvar er ekki liægt að búa til vatn með nútíma verk- tækni? Ógrynni fjár mun fara í sjálfan sökkulinn á þessum stað og lóSirnar hef ég þégar minnzt á. Hófsemin i útliti hússins er í talsverðu misræmi við verð staðarins. Margir eiga erfitt með að skilja þennan strekking með ráðhúsið niður i bæjarkösina, þar sem sizt er bætandi á um- ferðarvandamálin. Hvar stendur svo þetta hús i samanburði við önnur sambæri- leg, sem byggð hafa verið viða um lönd á síðustu áruin. ÞaS er að vísu allmikið minna en flest þau ráðhús, sem ég lief séð á myndum, en þau eru flest i svip- uðum stil; réttlínubyggingar, einn turn eða tveir með ýmsu lagi upp úr lægri viSáttumeiri byggingum. En borið saman við listræn byggingarverk ýmissa hinna færustu arkitekta heims- ins er ráðhúsið okkar óneitan- lega hversdagslegt og ber mciri vott um varfærni en sköpunar- gleði. Til þess að gefa lesendum Vik- unnar einhverja hugmynd um góðan og að ýmsu leyti nýstár- legan arkitektúr i stórbygging- um, þá lief ég tínt lil af handa- hófi myndir af byggingarverk- um, sem atliygli liafa vakið. Flestar þesara bygginga eru ekki sambærilegar við ráðhúsið okk- ar, ýmist stærri eða byggðar fyrir aðra notkun. En fyrst ver- ið er að ræða um húsagerðarlist i höfuðstað landsins cr ekki úr vegi að bregða upp myndum af ýmsu því, sem gott hefur verið kallað utan við pollinn. „ÞAÐ DREPUR ÞIG ENGINN í NÓTT“ FRAMHALD AF BLS. 25. Mjólkurbúið greiðir bændum 15 krónur fyrir hvert gallon mjólkur — 414 litra — en kaup- endur í búðum sem svarar 24 krónum. Uys er Verwoerds megin i aðskilnaðarmálinu og kom af hans liálfu ekkert það fram í samtali okkar sem ég hafði ekki lieyrt áður. Hér erum við i nýju og prýSi- legu lióteli. Ef ég hef skilið rétt, þá þurfum við ekki að greiða nema sem svarar 240 krónum fyrir ágætt herbergi með baði, prýðilegan kvöldverð og morgunverð, sem eflaust verð- ur óaðfinnanlegur, en suður i Jóhannesborg kostar hótellier- bergið sem svarar 320 krónum. Denis segir mér að það sé svona, allt rándýrt í þessari Babylon þarna suður frá, en lágt verð og góður viðargerningur, strax og komið er út í kyrrð sveitar- innar. 1 kvöld hittum við ritstjóra liéraSsblaðsins, Noord Traans- voler, sem ritað er á afríkönsku, Afrikaan, öðru af hinum tveim opinberú málum landsins. Hann spurði margs um ísland, og fór þá vel á með okkur, og raunar lengi framan af, meðan við VIKAN 8. tbl. —

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.