Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 2

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 2
Dásamleg ilmefni, bundin í mildum smyrslum. Núið þeim létt á háls og arma... umvefjið yður Ijúfasta ilmi, sem endist klukkustundum saman. Um firnrri unaðstöfrandi ilmkremategundir að velja;... dýrðlegan Topaz :. .ástljúfan Here is My Heart... æsandi Persian Wood ... hressilegan Cotillion og seiðdulan To a Wild Rose. ★ KYNNIÐ YÐUR AÐRAR AVON VÖRUR: • ■' VARALITI - MAKE-UP - PÚÐUR - NAGLALÖKK KREM - SHAMPOO - HARLÖKK - SAPUR 0. fl. cosmetics MONTREAL ninkaumboð: J. P. GUÐJÓNSSON H/F - P. 0. Box 1189. Sími 11740. Reykjavík. í fullri alvöru: Eflirlit með Deirn sextugu Eitt það vandamál, sem hvað harðast kreppir að okkur, er vaxandi umferð og hvernig ber að forða slysum og óþæg- indum á götunum. I þættinum um daginn og veginn i útvarp-, inu, kom það fram, að útlend hjón, sem viðreist voru talin, kváðust sizt vilja aka bil á göt- um Reykjavikur af öllum þeim borgum sem þau höfðu heim- sótt. Mig minnir að það væri vegna þess, að þau töldu sig ekki geta séð að ökumenn færu neitt frekar eftir settum regl- um. Sjálfur er ég einn þeirra, sem ek bil að staðaldri um götur Reykjavíkur. Gestsaugað finnur alltaf betur í hverju áfátt er, en þó kemur það líklega fyrir á hverjum degi, að ég undrast ökumenningu okkar. Alltof stór hluti ökumanna virðist ekki vandanum vaxinn, ýmist fyrir augsýnilegt kæruleysi eða þá vegna skorts á hæfni. Ég hef ekki komizt hjá þvi að taka eftir því, að fullorðnir menn eru allra ökumanna liættulegast- ir. Þegar ég sé sextugan mann eða þar um bil við stýri, þá fer ég ósjálfrált varlega og reyni að vera við öllu búinn. Þeir liika ekki við að fara beint af vinstri akrein og út af götunni til hægri. Þeir gefa stefnuljós eftir að beygjan hefur verið tekin. Og það eru þeir, sem ekki víkja um liársbreidd á þjóð- vfcgunum. Ég veit ckki hvort þetta er af seinni hugsun eða venjulegum stirðbusahætti nema hvorttveggja sé. Ég hef oft orðið var við það, að menn halda að þeir aki eins og englar, bara ef þeir fara nógu hægt og var- lega. Þá sé ekki svo nauið með þessar reglur, akreinar, stefnu- ljós og allt það. Þetta er ein- mitt það allra hættulegasta; að halda að maður sé einn í heim- inum, fara sínu fram og sann- færa svo sjálfan sig um að ekk- ert geti komið fyrir, þegar að- eins er ekið á 20 km. hraða. Það er staðreynd að allir Framhald á bls. 50.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.