Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 20

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 20
KVIKMYNDIN, SEM GERÐ HEFUR VERIÐ EFT- IR ÞESSARI SÖGU, VERÐUR SÝND f TÓNABÍÖI AÐ LOKINNI BIRTINGU. Hann var að virða fyrir sér bláa og hvíta skonnortu, sem sigrldí fram hjá hafnargarðinum. Það gl.ampaði á hana í sólskininu. Ný framhalds- saga 1. tiluti Efftir Lindsay Hardy Hann sneri stólnum sínum örlítið undir sólhlífinni til þess að njóta sólarinnar, stakk síðan hendinni í vasann og tók upp símskeytið í síðasta sinn. Það var orðið kuðlað. í því stóð: ÞVERNEITA AÐ EYÐA PENINGUM TIL EINSKIS STOP NÚ SKALTU BJARGA ÞÉR UPP Á EIGIN SPÝTUR STOP GEORG SOAMES. Og hótelstjórinn hafði aðeins gefið honum þriggja daga frest. 20 ERKIHER Julian Soames sat einn við borð fyrir utan veitingahúsið við Quai St. Pierre þar sem hann var vel kunnur. Hann var að virða fyrir sér bláa og hvíta skonnortu, sem sigldi fram hjá hafnargarðinum í áttina að skemmtisnekkjulæginu. Það glampaði á skonnortuna í sól- skininu. Handan við skonnort- una lágu ótal gistihús og íbúð- arhús í breiðum boga við fló- ann út að Palm Beaeh Casino yzt á nesinu. Fjallshlíðarnar, sem voru þéttsetnar einbýlishúsum, risu brattar upp frá borginni. Þarna úði og grúði af röndótt- um sólhlífum og blómaskrúði. í Suður-Frakklandi vildu allir gera allt fyrir mann, þó með því skilyrði, að maður hefði aflögu eitthvað þrjátíu þúsund íranka á dag. Hann var í ljós- bláum léreftsbuxum og dökk- blárri skyrtu og með rauðan silkiklút bundinn um hálsinn. Það var ekki svo að sjá, að hann hefði nokkrar áhyggjur af þess- um 30.000 frönkum á dag. En í rauninni sat hann þarna og von- aðist til þess, að rekast á ein- hvern, sem hann gæti slegið um svona tvö þúsund. Hann sat og smásötraði það sem eftir var af svörtu kaffinu. Það var næstum búið, og hann varð að fara að öllu með gát til þess að vekja ekki grunsemdir þjónsins. Opinn blæjubíll með þrjá menn og eina stúlku innan- borðs ók upp að veitingahúsinu. Stúlkan var rauðhærð. Hún sat í aítursætinu, við hliðina á frem- ur þybbnum, fölleitum, miðaldra manni með panamahatt. í fram- sætinu var maður, sem leit út eins og upgjafa boxari, sem hafði orðið að þola sitt af hverju og við hlið hans minni og grann- leitari maður við stýrið. Öllum fjórum virtist líða hið bezta, og Julian hugsaði sem svo, að það væri svo sem ekkert undarlegt í þessum bíl. Hann andvarpaði og leit í aðra átt. Hann varð víst að berjast sinni baráttu án þess að krækja sér í eina rauðhærða eins og þessa, nema þá að hann færi aft- ur heim til Beaufort Square að ósk Georgs frænda. En þessi gamli harðstjóri mundi grafa hann lifandi í þessari hryllilegu, sjálfvirku verksmiðju í Mið- Englandi. Nei, takk, sagði hann við sjálfan sig, það skyldi hann ekki láta bjóða sér. Aldrei. Ja, að minnsta kosti ekki næstu þrjá dagana. Klukkan var ekki enn orðin 12, hugsaði hann, en þó hafði ýmislegt gerzt þennan dag. Fyrst hafði hann verið kallaður á lög- reglustöðina, og þar hafði hann orðið að bíða í heilan hálftíma. Loksins, klukkan hálf ellefu, hafði lítill og rytjulegur skrif- stofumaður stungið hausnum út um dyragáttina og sagt að Mon- sieur le directeur væri nú til við- tals. — Monsieur Soames? hafði maðurinn við skrifborðið sagt. — Já. — Ég heiti Flaubert. — Komið þér sælir. — Mætti ég sjá passann yðar. Þakka yður fyrir. Þér megið setj- ast ef þér viljið. Julian settist í eina stólinn, sem eftir var í herberginu og virti fyrir sér Monsieur le direc- teur, sem virti fyrir sér passann með miklum tilþrifum. Eftir langa mæðu lokaði hann þó pass- anum, lagði hann á skrifborðið og ýtti honum snyrtilega frá sér með einum fingri. — Jæja, sagði Monsieur le directeur og leit af Julian út að glugganum. — Við skulum nú sjá. Samkvæmt passa yðar eruð þér brezkur þegn, 27 ára gamall, þér hafið verið í Cannes og ann- ars staðar á Rivierunni fram yfir þann tíma sem þér hafið leyfi til, og þér hafið sótt um að fá að vera hér lengur. Ekki satt? — Jú, sagði Julian, alveg rétt. Hvað gerið þér, Mr. Soam- es? — Ja, eins og stendur geri ég ekki neitt. — Þegar þér hafið eitthvað að gera, hvað gerið þér þá? —• Við skulum nú sjá, sagði Julian. — Ja — um tíma keyrði ég kappakstursbíla. Monsieur le directeur leit snöggt burt frá glugganum. — Aha! —• Kappakstursbíla. Ein- mitt já. Julian sagði: — Ég keyrði í eitthvað sex Grand Prix keppn- um; þér kannizt kannski jafn- vel við nafn mitt. — Ég kannast ekki við neinn einasta kappakstursmann. Ég tel þetta íþrótt fyrir brjálæðinga, fávita. Jæja þá. Ef þér hafið enga — VIKAN 9. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.