Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 17

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 17
þaut fram í eldhúsið og fór að smyrja brauð og baka kökur. Ó, ef hún hefði nú bara tíma til ,að láta leggja á sér hárið eða kaupa ný föt. Rödd skynseminnar heyrðist ekki í gegnum þá ljúfu ró, sem hún var altekin af. Þegar dyrabjallan hringdi, opnaði hún hurð- ina eins og í draumi. Peter Sutton, listamaðurinn af neðri hæðinni, stóð þar með pening í hendinni. — Getið þér skipt þessu fyrir mig? sagði hann. Ef svo er ekki, frýs ég sjálfsagt til dauða, því að gaspeningarnir mínir eru uppgengnir. — Það er ekki sérlega kalt, sagði hún með- an hún leitaði að smápeningum. Úr töfraheimi sínum brosti hún til hans og hann varð undr- andi á svipinn. — Stórkostlegt, sagði hann þurrlega. Ég vissi ekki að þér ættuð mannlegar tilfinningar. Hann renndi augunum yfir rjóða vanga henn- ar. — Kannski þér viljið koma til mín á morgun og líta á málverkin mín? sagði hann. Ég er nú eiginlega bara listamaður í frítímum mínum, og eldhúsið er vinnustofa mín. — Á morgun, sagði hún glaðlega, er ég upp- tekin — allan daginn. — Ó, það er auðvitað skýringin á þessu hlý- lega augnaráði, geri ég ráð fyrir. Hann veifaði í kveðjuskyni. Skemmtið yður vel! Laugardagurinn var fullkominn. Á eftir fór hún að hugsa um gullhamrana, sem Martin hafði slegið henni . . . Það er svo skemmti- legt að vera með þér . . . þú ert svo ung . . . á skrifstofunni ertu svo fær . . . þú hlustar eins og þú hafir í raun og veru áhuga . . . Hann hafði ekki kysst hana, þegar hann bauð henni góða nótt. Eiginlega elskaði hún hann enn meira þess vegna. Þá hafði hún hikandi spurt, hvort hann vildi koma upp og fá kaffi, og þegar hann þáði það, varð hún næstum óttaslegin. Martin fékk lánaðar tvær af bókum hennar, og öll íbúðin varð önnur við nærveru hans. Hann strauk henni varlega um vangann með fingurgóm- unum þegar hann kvaddi hana. Þau fóru saman að horfa á franska kvikmynd. Á eftir borðuðu þau kvöldverð heima hjá henni, og hann hjálpaði henni að þvo upp. Skyndilega beygði hann sig niður og kyssti hana á kinnina. Hún hrökk svo snöggt við að kossinn lenti á munni hennar og hún fann arma hans um sig. Hann hélt henni fast að sér, koss- ar hans voru krefjandi, en svo sleppti hann henni hægt. Hún stóð lengi kyrr eftir að hann var farinn. Henni fannst sem faðmur hans verndaði hana gegn tóminu, gegn einmanaleikanum, sem ein- kennt hafði líf hennar. Vitneskjan um að hann Framhald á bls. 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.