Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 47

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 47
hún sagði: — Auðvitað, skelfi- legur kjáni er ég, og hún sneri sér við og veifaði yfir að bíln- um. Þybbni maðurinn beitti aft- ur stafnum sínum, og boxarinn steig út úr bílnum og gekk til þeirra. Hann ar tveim þumlung- um hærri en Julian, að minnsta kosti 6 fet og 2 þumlungar. Hann var eins og tarfur með sakieysis- leg augu. — Þetta, sagði Danielle, -- er Eddie Bell. Hann er frá Banda-< ríkjunum, og okkur þykir öll- um ægilega vænt um hann. — Hæ, Somsi minn, sagði tarf- urinn. Hann greip í höndina á Julian svo að brakaði í. — Hvað er að, Danielle? — Ekkert að, Eddie. Þú þarft bara að borga þjóninum. — Nújá. Hvar er kauði? Danielle sagði: Hann kemur rétt strax, og hún tók í hand- legginn á Julian og gekk með honum eftir gangstígnum eins og hún hefði þekkt hann alla sína ævi. Þybbni maðurinn stóð upp í blæjubílnum. Hann vippaði af sér stráhattinum og opnaði dyrn- ar. Hann var í hvítum flónels- buxum, dökkbláum, tvíhneppt- um jakka með gylltum hnöpp- um og doppótta þverslaufu. Hann var klæðskera sínum til sóma. Hann var gamla Englandi til sóma. Þetta var stór, bláeygur náungi með silfurgrátt hár. Hann brosti gleitt til Julians og sagði: — Kæri vinur, leyfið mér að kynna mig. Ég er Timo- thy Pimm. Það vantaði ekkert nema lúðrablástur með þessari kynningu. — Komið þér sælir, Mr. Pimm, sagði Julian. — Jæja þá, jæja þá, stigið þér upp í. Julian sagði: — Já, uuu. — hvert erum við að fara? — Þér eruð að koma í mið- degisverð í Villa Margueríte, sagði Danielle, er það ekki? — Jæja, yður er þá hér með boðið til miðdegisverðar. Gjörið þér svo vel. Sjáum til, einmitt, hérna í miðjunni milli Danielle og mín. Jæja þá. Hvar er Eddie, hvað hefur orðið að Eddie? Jæja, þarna er hann — leggjum þá af stað. Jafnvel þótt þau sætu þarna þrjú í aftursæti bílsins lét Mr. Pimm mikið fara fyrir sér. Hann ýkti hverja smáhreyfingu, og Julian átti bágt með að bæla niður hláturinn. Mr. Pimm veif- aði stafnum sínum. —• Komdu nú, Eddie, komdu nú, komdu nú, inn í bílinn með þig. Fínt, fínt já. Carlo þú situr þarna eins og viðardrumbur. Þú hefur ekki einu sinni boðið Julian góðan daginn. Grannvaxni litli náunginn við stýrið sneri sér við brosandi. — Góðan daginn, Signore, sagði hann. Mr. Pimm sagði: — Jæja, eft- ir hverju er verið að bíða, af stað þá. Fimmtán mínútum síðar voru þau komin upp að Villa Margu- ertie. Það var glæsilegt að sjá þetta hús baðað í sólskininu hátt yfir flóanum og borginni. Það var hvítt og íburðarmikið með græna gluggahlera og rauðar, spánskar þakflísar, hulið klifur- jurtum. Þegar þau voru komin inn, sagði Mr. Pimm: — Jæja, dreng- ur minn, hvað má bjóða þér að drekka? Julian sagði: 1— Whisky, óblandað, takk. — Whisky? sagði Mr. Pimm. — fyrir mat? Kæri vinur, aldrei. Þú skalt fá þér sherryglas. Eddie, gefðu okkur Julian tvö glös af sherry, og fáðu þér sjálfur smá- dropa. En bara smádropa, mundu það. Mr. Pimm lét fara vel um sig í hægindastól beint á móti Jul- ian. — Já þá, sagði hann. — Ég geri ráð fyrir að þú brennir í skinninu eftir að vita, hvers vegna okkur langar svona til að kynnast þér. — Það er ekki laust við það. — Jæja, hvar eigum við að byrja? Á Grand Hotle Mart- inique, ha? Hafa þeir hugsað vei um þig, líður þér vel? — Prýðilega, takk fyrir. — Og reikningurinn, hefur nokkuð veður verið gert út af reikningnum? Julian velti bví fyrir sér hvernig í ósköpunum hann vissi um reikninginn. Hann sagði: — Ég held að það sé allt í lagi með reikninginn. Mr. Pimm veifaði vísifingri: ■— Soso, drengur minn, sagði hann, — við verðum að vera hreinskilnir hvor við annan. Og Monsieur le directeur á lögreglu- stöðinni, hvernig samdist ykkur? Hann ætlar auðvitað að fram- lengja landvistarleyfið. — Auðvitað. Mr. Pimm sagði: —- Jæja. Jæia, við verðum víst að byrja upp á nýtt. Eddie, ég er í óvenju góð- um samböndum, er það ekki? Eddie stóð við skenkinn og sagði: — Það held ég nú, Julian, Mr. Pimm er með svakalega góð sambönd. Mr. Pimm sagði: — Og það er fátt, sem við þefum ekki uppi hérna á hæðinni. Til dæmis, drengur minn, vitum við, að þú getur ekki borgað hótelreikning- inn þinn. Og skrifstofumaðurinn á lögreglustöðinni, visinn lítill náungi, sem þú hefur líklega séð í morgun, sagði okkur, að land- vistarleyfi þitt yrði ekki fram- lengt og að þú yrðir að fara frá Cannes innan þriggja daga. En ef þú reynir að fara án þess að borga reikninginn þinn kasta þeir þér í fangelsi. Og samt get- urðu ekki verið hér áfram, því að þá verður þú settur í fangelsi fyrir að vera hérna lengur en þú NEI, AÐ SJA ÞETTA Kvikmynd, sem ekki hefur að minnsta kosti einn al- mennilegan koss, væri næstum óhugsandi í heimi hvíta mannsins. En ekki í heimi zúlúnegrans. Hugsunin ein, um snertingu vara manns og konu er í senn hlægileg og hneykslanleg. Því zúlúnegrar kyssast ekki. Það var þess vegna talsverð ókyrrð í kvikmyndahúsi í Suður-Afríku þar sem zúlúnegrum var sýnd ein af þess- um kvikmyndum hvíta mannsins. Þegar kossinn kom, risu zúlúnegrarnir úr sætum, bentu á tjaldið, hlógu og góluðu. Þeir hiógu svo að tárin runnu niður svartar kinnar þeirra. Þeir höfðu aldrei látið sér detta í hug, að nokkrar mann- eskjur, ekki einu sinni hvítar, gætu hagað sér svona fárán- lega. „Rembrandt ljósmyndanna", Yussuf Karsh, var staddur þarna og festi viðbrögð negranna á filmur. VIKAN 9. tbl. 47

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.