Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 41

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 41
MTÐAPRENTUN Takið upp hina nýju aðferð og látið prenta alls- konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, tilkynningar, kvittanir o. fl. á rúllupappír. Höfum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmiskonar afgreiðslu- box. Leitið upplýsinga. HILNIR hf Skipholti 33. — Sími 35320. þarf að setja í fyrsta nema til þess að taka af stað — sé bíll- inn þunghlaðinn. — Bremsan er létt og vinur vel, þótt aðeins sé um venjulegar skálabremsur að ræða. Það eina, sem mér finnst verulega aðfinnsluvert við akst- ur Peugeot 404 er það, hve lítinn stuðning maður hef- ur við „benzín“fótinn — hann er eiginlega í lausu lofti, nema maður taki þann kostinn að gefa í botn, sem vissulega er freistandi. Á réttum dekkjum, Micheline X með 20—22 punda þrýstingi, liggur Peugeot 404 „eins og sveskja", eins og þeir segja, strákarnir á rúntinum, sem hafa það að aðalsporti að „svíða dekk á tryllitækjum". Jafnvel þótt hann sé rifinn rösklega af stað á holóttum vegi, kastar hann ekki einu sinni til skottinu. Jafn stöð- ugur er hann í beygjum, en ég skal ekki fortaka, að hann sé örlítið undirstýrður — þ.e. leiti út úr beygjunni. Þá er sennilega flest upp tal- ið, sem varðar sjálfan akstur- inn, nema að tala um vinnsluna. Peugeot 404 hefur 72 ha 4 strokka vél, sem liggur um hálft til hliðar til þess að halda jafn- vægi bílsins á móti ökumannin- um, ef hann er einn, og meiri vinnslu en þessi vél og fjögurra gíra kassinn bjóða upp á, hefur enginn við að gera, jafnvel þótt hann sé með sportbílakomplexa. Útlit Peugeot 404 er snyrtilegt og laglegt, en ekki beint þannig að maður snúi sér við til að horfa á hann. Að innan er hann allur fóðraður og teppalagður og virðist vel frá genginn í hvívetna. Stokkurinn í gólfinu er nokkuð hár, en fyrir karlmenn, sem tízkunnar vegna getur haft dá- lítið bil á milli fótanna, er ekki vont að sitja yfir honum. Mæla- borðið er þokkalegt og látlaust, með góðum öskubakka á hentug- um stað fyrir miðju, djúpu hanzkahólfi hægra megin og pjattspegli í sólskyggni hægra megin, en mælum í stokk fram- an við stýrið, þar sem vel sést á þá. Þar eru allir mælar, sem krefjast verður í einum bíl, nema smurmælir, hins vegar er klukka í hans rúmi. Það er ljós fyrir smurninginn. Jamm og já. Stefnuljósarofinn er hægra megin á stýrisleggnum, milli stýrishjólsins og gírstangarinn- ar, og er það ekki sérlega heppi- legur staður. Hins vegar er ljósa- rofi og skiptir, allt í einni stöng vinstra meginn á leggnum, á ágætum stað. Þurrkurofi og rúðupiss er í einum takka fyrir miðju mælaborðinu, og þótt ég væri með bílinn í þurru, gat ég ekki betur séð, en þurrku- flöturinn á framrúðunni væri ágætur. Kraftmikil tveggja hraða miðstöð er í bílnum, en einhverra hluta vegna þurrkaði hún rúðurnar ekki nógu vel að innan. Það hlýtur að standa til bóta. í mælaborð- inu sitt hvorum megin eru trekkvindristar eins og á Renault R 8, og það er nokkuð, sem ég fyrir mitt leyti er hrifinn af. — Handbremsan er góð, tekur út í afturhjólin og er sterk, a.m.k. heldur hún vel í hestana 72, ef maður ætlar að fara af stað án þess að taka úr handbremsu. Farangursrúmið er sæmilegt, en ekki of stórt. Það opnast að- eins að ofan, svq það verður að lyfta öllu nokkuð hátt, sem þang- að á að fara. Þetta tel ég nokk- urn galla, og eins hitt, hve þröskuldahár bíllinn er. Ekki vegna þess, að nokkurn muni um að lyfta fótunum yfir þá, heldur vegna þess, að það gerir erfiðara um vik með að þrífa gólfið. Og að lokum: Svona gripur kostar nú frá kr. 206 þúsund, og ég hef tilhneigingu til þess að telja hann með beztu bílum í þessum klassa. Umboðsmaður er Sigurður Steindórsson, en enn sem komið er hefur hann ekki opnað varahlutaverzlun. Hins vegar hefur hann loforð um það frá bifvélaverkstæði Hrafns Jónssonar í Brautarholti, að þar skuli tekið vel á móti svona bílum, ef eitthvað bilar í kraminu, en Bílaskálinn ætlar að rétta, ef beygla kemur. — Sem betur fer virðist nú fara í vöxt, meðal bifreiðaumboða, skilningur á því, að það er ekki hvað sízt þjónustan sem selur bílana. S. SYSTIR HELENA FRAMHALD AF BLS. 14. ferð með þessu glaðværa, heil- brigða barni, sem undir niðri virtist búa yfir öllum hyggind- um fullþroska konu. Við áttum aðeins eftir einn dag í Róm, sátum og slóruðum í setustofu hótelsins á víð og dreif, þreytt eftir annasaman og mjög ánægjulegan dag. Ég var að lesa í blaði og sötra glas af streca til þess að hafa úr mér þreytuna, óráðinn í, hvernig verja skyldi kvöldinu. — Má ég setjast hjá yður? Ég leit upp. Það var ungfrú Casale. — Með ánægju. Má bjóða yður eitthvað? Ég þori ekki að bjóða yður streca. Það þýðir galdra- norn. Innrætið svarar til nafns- ins. Glas af köldu hvítvíni og köku? — Jú, þakka. Annars er ég VIKAN 9. tbl, —

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.