Vikan


Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 6

Vikan - 27.02.1964, Blaðsíða 6
Símakurteisi. .. Kæra Vika! Hvernig er það eiginlega, kunna aðeins sárafáir að svara í síma? Getur VIKAN ekki gert eitthvað til þess að fólk noti sjálfsagða kurteisi í síma? Það er nokurnveginn sama hvert maður hringir; sá sem svarar segir bara „Haló!“ eða í hæsta lagi „Já!“ Sum fyrirtæki, sem hafa símastúlkur, hafa kennt þeim að svara rétt í síma. Til dæmis þurfti ég einu sinni að hringja á VIKUNA og stúlkan sagði: „Hilmir h.f., góðan dag“. Þegar ég sagði henni við hvern ég óskaði að tala, þá spurði hún: „Fyrir hvern er það með leyfi?“ Sumum finnst þetta óþarft, en þannig á það að vera, maður á alltaf að segja til sín í síma. Og sá sem svarar á alltaf að byrja á því að segja til nafns. Maður sem er heima hjá sér og svarar í síma, segir ekki bara „Halló!" heldur símanúmerið eða nafn sitt, sem er enn betra. Húsmóðir- in getur sagt sitt nafn eða til dæmis: „hjá Jóni Jónssyni". Stundum eru menn svo dónaleg- ir, að þeir kynna sig ekki í síma. Við svoleiðis menn ætti yfirhöf- uð ekki að tala. Það er lágmarks- krafa, að sá sem hringir kynni sig í upphafi. Ef sá sem svarar kynnir sig í stað þess að segja bara „Halló!“ þá á hinn aðilinn miklu erfiðara með að láta vera að kynna sig. Það kemur fyrir, að í mig hringja menn til að spyrja um eitt eða annað. Þeir kynna sig ekki, en tala eins og þeir viti raunverulega við hvern þeir eru að tala og segja að lokum: „jæja, vertu blessaður“. Ég er kannske alveg jafn nær: hef ekki hugmynd um það, hvei maður- inn var. Stund.im hringja menn og segja: „Halló, hver er það?“ í stað þess að byrja á því að kynna sig. Mér hefur stundum fundizt það líkast því að síma- kurteisi sé hégómamál í augum manna. Hvað finnst ykkur? Með kveðju og þökk fyrir skemmtilegt blað. Jón K. Benediktsson. -------— Við höfum eiginlega engu viff þetta bréf þitt að bæta Jón. Þaff er eins og þú sjálfsagt hefur tekiff eftir, aff umgengnis- menning er ekki hin sterka hlið menningarþjóffarinnar á íslandi. Þú veizt, að kurteisi er jafnvel líkt viff tepruskap. Þú spyrð, hvort VIKAN geti nokkuff gert til þess aff fá fólk til að nota sjálfsagffa kurteisi í síma. Þaff höfum viff þegar gert með því aff birta bréfiff þitt. Þátturinn viS kistuna ... Kæra Vika! Ég les stundum þennan dálk hjá ykkur „f fullri alvöru“ og líkar hann oft vel, nema þegar þið voruð að rífast út í þáttinn „Við kistuna". Ég vildi ekki fyrir nokkurn mun missa hann úr út- varpinu og hlusta alltaf á hann þegar ég get og græt meira að segja oft, þegar prestinum segist sérlega vel. Sælir að sinni. Guðfinna. ---------Ef þaff eru jarffarfar- irnar í útvarpinu, sem þú kallar þáttinn „Viff kistuna“ þá er þaff rétt, aff við vorum á móti honum í öllum atriffum. Við álítum, aff útvarpiff sé ekki vettvangur fyrir helgiathafnir. Þú verffur aff fara í kirkju til aff verffa þér úti um grát fyrst þaff er eftirsóknarvert og annaff verffur ekki skiliff af bréfi þínu. „Ég fæ hjartslátt.. .“ Kæra Vika! Mig langar til að koma á fram- færi dálítilli aðfinnslu, eða rétt- ara sagt tillögu við Ríkisútvarp- ið. Það er ekki mikið mál og auðelt að verða við ósk minni, sem vafalaust er ekkert eins- dæmi. Mig langar til að fara fram á að orðalagi verði aðeins breytt, þegar þulurinn byrjar að lesa upp fréttirnar í hádegisvitvarp- inu. Hann byrjar venjulega — eða raunar alltaf — svona: „Klukkan átta í morgun . . .“ og svo fer hann að segja frá því hvemig veðrið hefur verið þá. Það er alveg sama hvað ég heyri þetta oft. Ég get aldrei van- izt af því að hrökkva dálítið við í huganum og jafnvel fá hjart- slátt. Mér dettur alltaf í hug að nú hafi eitthvað agalegt skeð klukkan átta í morgun, bátur far- izt, stórhýsi brunnið eða eitthvað svoleiðis. Auðvitað á ég að venj- ast þessu og ekki láta þetta á mig fá, en reynslan er nú sú, að ég hrekk alltaf dálítið við, þótt ég átti mig að vísu á þessu broti úr sekúndu síðar. Viltu nú fara vinsamlega fram á það við útvarpið, að þessu verði breytt. Þeir geta byrjað setninguna einhvernveginn öðru- vísi sér að skaðlausu, eins og t.d.: „Veðrið kl.ikkan átta í morg- un: . . .“ eða eitthvað svoleiðis. Ég er viss um að það er vanda- laust og að þeir hafa hreint ekki látið sér detta þann möguleika í hug að þetta orðalag, sem nú er viðhaft, geti skotið nokkrum heilbrigðum manni skelk í bringu . . . Með fyrirfram þakklæti. Kristófer Sveinsson. -----— Þú hlýtur aff vera eitt- hvaff slappur, Kristófer minn, ef þetta fer í viffhrökkiff á þér. En það er sama, þaff geta fleiri veriff slappir og kannski ennþá slapp- ari. Þess vegna finnst mér sjálf- sagt aff koma þessu hér meff á framfæri viff Ríkisútvarpiff, og vonast til aff það kosti enga erfiffleika að verffa viff ósk þinni, og kannske margra annarra. Það væri dálaglegt til afspurnar, effa hitt þá heldur, ef þú hrykkir upp af af viffhrökki. Kit, mál og karfa . . . Viltu nú fræða mig dálítið, kæri Póstur? Ég er vaskaekta landkrabbi og get varla sagt að ég hafi séð sjó, hvað þá á hann komið. Fyrir það skammast ég mín ekki og bið engan afsökunar. En vegna þessa ókunnugleika míns við sjóinn, þá skil ég ekki mikið af þeirri mál- lýzku, sem sjónum og sjómennsk- unni tilheyrir, en fréttamenn taka hreint ekkert tillit til þess. Þó langar mig lil að fylgjast með fréttum af afla, aflasölum o.s.frv., en mér er það ómögulegt því aflinn er mældur í svo mörgum óskyldum mælieiningum, að ég botna hvorki upp né niður í því. Hvað þýða t.d. þessi orð, og hvert er innbyrðis samræmi milli þessara mælieininga: Kit, karfa, mál, tunna, lest, skippund, tonn? Með þökk. Valdimar Guðmundsson. — — — Jú, sko, þetta er ákaf- lega einfalt, bara ef þú vilt setja þig inn i þaff. Ég hefi fengið upp- lýsingar um þetta allt hjá L.Í.Ú., og eins og ég segi — þetta er mjög einfalt. Til aff byrja með þá er karfan yfirleitt ekki notuff lengur, en þaff er eining, sem þýzkir tog- arar nota viff löndun þar. Ann- ar er karfan 50 kg. Kit er nákvæmlega 63,5 kg. Mál er 135 kg., og notaff um síld, sem á aff fara — effa hefur fariff — í bræffslu. Tunna er aftur á móti 100 kg., og notuff um síld, sem á að fara í söltun (í tunnur). Ef einhver bátur er t.d. með 1000 mál og tunnur, þá ræffur því hver sem vill, hvort hann reiknar meff 100 málum og 900 tunnum, effa 100 tunnum og 900 málum. Það hefur auffvitaff eitt- hvaff smávegis aff segja í sam- bandi viff viktina, — en hvaff varffar þig eiginlega um þaff . .. ? Og svo er þaff skippundiff. Ef þaff er nýr fiskur úr sjó (slæg'ffur og hausaffur) þá er skippundið 50 kíló. En aftur á móti ef talaff er um saltfisk, þurr- an effa blautan, þá er skippund- iff „eitthvaff minna“. Einfalt, ekki satt? Og svo náttúrulega þetta með tonniff og lestina. Venjulega er tonniff 1000 kg, og lestin eitthvaff svipaff. En hvort þaff er eins, ef átt er viff bSautfisk, —• þaff veit ég hreint ekki. Keðjur, dekk eða naglar . . . Geturðu frætt mig um það, Póstur góður, hvort það er ennþá skylda að hafa snjókeðjur á bíl í snjó og hálku, eða hvort nægi- legt er að vera með snjódekk, eða þessa nýju nagla, sem komnir eru á markaðinn. Bílstjóri. ---------Ég held aff lögin taki ekki tillit til/ neins, nema keffju. Ég á viff ef um árekstur effa slys er aff ræffa. Sennilegt er að þaff sé yfirleitt látliff afskiptalaust, þótt menn láti sér nægja snjó- dekk eða nagla, en til þess aff vera í ful/lum rétti ef eitthvaff kemur fyrir, þá eru keffjumar þaff eina, sem dugar. Lokunartíminn ... Hvernig var það með lokunar- tíma verzlana? Stóð ekki til að breyta honum núna um áramót- in, eða hvað? Mér er farið að leiðast að bíða eftir því. S. J. K. 6 VIKAN 9. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.