Vikan - 27.02.1964, Page 4
-O Það var margt þekkt fólk í Innsbruck,
meðan ó vetrarolympíuleikunum stóð. Meðal
þeirra var sænska söngkonan Lil Babs, og
hún taldi ekki eftir sér að skemmta öðrum,
um leið og hún skemmti sjólfri sér.
'Cí- Annar þekktur skemmtikraftur var Eddie
Fischer, fyrrverandi eiginmaður Liz Taylor með
meiru. Hann er ekki sagður í neinum vandræðum,
þótt Liz hafi þakkað honum fyrir samveruna —
kvenfólkið sækir í hann eins og flugur í ijós.
0 í þessari paradís vetrarsportsins stigu keisarahjón.
in frá Persíu sín fyrstu spor á skíðum. Það verður ekki
annað sagt, en að frú Farah sé klædd í stil við um-
hverfið.
Aga Khan var staddur í Innsbruck, bæði til þess 0
að horfa á aðra og ekki síður til þess að fara sjálfur á
skíði. Á Olympíuleikunum næstu á undan þessum var
hann meðal þátttakenda fyrir Bretlands hönd, en að
þessu sinni var hann fyrir eigin reikning.