Vikan - 27.02.1964, Síða 32
ZANUSSI
Alg-jörlega sjálfvirk
þvottavél með suðu.
Tekur 5 kíló af
þurrum þvotti.
................ .. ...
B t'- f‘
S |
\ >ÓOO
| m
# 1
1
5 stærðir af
kæliskápum.
5 ára ábyrgð
á fyrstikerfj.
H © IS/I J\ ISI Isl
3 og 4 hellna elda-
vélar með sérlega
góðum ofni,
Góðir
greiðsluskilmálar.
II
4
'HHpnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Vikan verður skemmtileg og tilbreytingarík og allt
mun leika í lyndi. Vandamál, sem þú hefur glímt
við um tíma leysist á hinn farsælasta hátt. Þú skalt
nota þér þessa góðu afstöðu stjarnanna út í yztu
æsar og láttu ekkert happ úr hendi sleppa.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Einn fjölskyldumeðlima þinna þarfnast þess að
vera í nánari tengslum við þig en hingað til, reyndu
að bæta vanrækslu þína á þessu sviði. Vikan verð-
ur skemmtileg og ef til vill nokkuð rómantísk. Þú
ættir að halda kvöldboð fyrir kunningjana.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Taktu ekki nærri þér þótt persóna, sem þú bjóst
við stuðningi af reynist fráhverf. Þú skalt taka
þessu með heimspekilegri ró, því málin eiga eftir
að taka nýjar stefnur. Allar breytingar, á högum
þínum, eru heillavænlegar.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Gættu þín á allri óþarfa bjartsýni í fjármálum, því
hún er ótímabær. Það eru fremur erfiðir tímar
framundan á því sviði. Þú færð erfitt verkefni til
úrlausnar, sem þú þarft á öllu þínu að halda til
að leysa af hendi.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Viss persóna, gerizt helzt til nærgöngul og uppá-
þrengjandi, þú skalt ekki hika við að láta meiningu
þína í ljósi, áður en verra hlýzt af. Þú hefur trass-
að félagsstörf og kunningjana yfirleitt en því-hefð-
irðu gott af að kippa í lag.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Þetta verður fremur hversdagsleg vika en þó ýmis-
legt sem þú skalt vara þig á, og þá sérstaklega
það, að hafa ekki eftir neitt, sem þú hefur ekki
vissu fryir, jafnvel þó að gengið verði á þig. Farðu
út um helgina og skemmtu þér af hjartans lyst.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Sennilega þarftu að gera gömlum vini greiða, sem
þú, er öll kurl koma til grafar, hagnast fremur á
heldur en hitt. Upp úr þessum samskiptum ykkar
gæti svo sprottið verkefni, sem þið vinnið nokkuð
lengi að, en verður báðum ánægjulegt.
Drekamerkið (24. október — 22, nóvember):
Þú ættir að endurskoða helztu útgjaldaliði þína og
athuga hvort þú finnur ekki gat á bókhaldinu. Þú
átt í einhverjum vanda og skalt ekki draga leng-
ur að leita ráða. Þú aettir að auka þekkingu þína
á einhvern hátt.
©Bogamannsmerkið (23. nóvemþer —* 21. desember):
Það er hollt að minnast þess, að ekki er allt feng-
ið með veraldlegum gæðum. Þess verður að gæta,
að hin andlegu og tilfipningalegu verðmæti dragist
ekki aftur úr. Leggðu nú veraldleg kappsmál á hill-
una um hríð og ræktu með þér elsku og kærleika til manna
og málefna.
Steingeitarmerkið (22, desember — 20. janúar):
iáMHy Ýmislegt bendir til þess, að börn þessa merkis eigi
■tn ferðalag fyrir höndum, einkum þau, sem fædd eru
22.-25. desember. Ekki verður séð, hvort þser ferð-
ir eru langar eða skammar, en búast má við nokkr-
um óþægindum varðandi þær. Helgin lítur út fyrir að verða
einkar skemmtileg.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú hefur verið heldur heppinn upp á síðkastið og
allt hnígur í þá átt, að prófraun, sem þú verður að
undjrgangast á næstunni, muni ganga þér í haginn.
Mannneskja, sem þú umgengst nokkuð, hefur meira
álit á þér en þú hefur hingað til haldið. Farðu varlega með
peninga-
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Bíddu þess ekki alltaf, að aðrir eigi frumkvæðið.
Ef þú tekur ekki sjálf/ur rögg á þig, er hætt við að
ýmislegt mistakist. Um miðja vikuna er líklegt, að
þú hittir fólk, sem langt er síðan þú hefur séð. Fjár-
málin eru heldur óviss nú, en líkur til að úr rætist,
Snorrabraut 44 — Sími 16342.
32
— VIKAN 9. tbl.