Vikan - 27.02.1964, Side 33
I
helgar sigfegrun augnanna EINGÖNGU
Maybelline býður yður allt til augnfegrunar — gæðin óviðjafnan-
leg — við ótrúlega lágu verði .. . undursamlegt úrval lita
sem gæða augu yðar töfrabliki. Þess vegna er Maybelline
ómissandi sérhverri konu sem vill vera eins heillandj og henni
var ætlað. Sérgrein Maybelline er fegurð augnanna.
A - Sjálfyddur, sjálfvirkur augnabrúnalitari í
sjö litum.
B - Augnskuggakrem í 6 litum.
C - Vatnsekta „Magic Mascara“ með fjaðrabursta
í fjórum litum.
D - Sterk Mascara í 4 litum — litlar og meðal
stærðir.
E - Mascarakrem í 4 blæbrigðum — Jitlar o/
meðalstærðir.
F - Vatnsekta augnlínulitari í 8 litum.
G - Mjúkur augnskuggablýantur, sanséraður,
6 litum.
H - Lítill augnabrúnalitari í 8 litum.
I - Fullkominn augnháraliðari.
þess að minnast nema lítillega
á stjórnmál. Síðan var öllum
boðið að ganga að háborðinu og
taka í höndina á Rose Kennedy
og syni hennar.
Kaffiboðin þóttu hin bezta
skemmtun. Þangað komu konur,
sem höfðu ekki minnsta áhuga á
sjálfri kosningabarátttunni, nema
þegar tækifæri af þessu tagi gáf-
ust til að hitta frambjóðendur,
án þess að þurfa að hlýða á lang-
ar áróðursræður. Eftir þetta
myndu þær tæplega gleyma
Kennedy og nafni hans við kjör-
borðið. Þær myndu einnig segja
hverjum sem heyra vildi frá hinu
glæsilega og fjöruga kaffiboði, en
ef til vill var það meira virði
en nokkuð annað. Kaffiboðin
voru úrslitatilraunin.
Þegar atkvæðatölur tóku að
berast sat Kennedy ásamt all-
stórum hópi samstarfsmanna í
kosningaskrifstofu sinni. Óviss-
an„ sem áður hafði gert vart við
sig, óx með hverri klukkustund.
Snemma um nóttina var aug-
ljóst að Eisenhower mundi vinna
mikinn sigur og Lodge hafði
mörg atkvæði yfir Kennedy.
Fæstir bjuggust við sigri hins
fyrrnefnda, nema hann sjálfur.
Kennedy og vinur hans Mac-
donald, fengu sér stutta göngu-
ferð í nærliggjandi almennings-
garði.
„Hvað skyldi Lodge fá að gera
hjá Eisenhower eftir kosningarn-
ar“, sagði Kennedy við vin sinn.
Þrátt fyrir allt var hann sann-
færður um sigur sinn. Klukkan
sex um morguninn lýsti Lodge
yfir ósigri sínum og yfirgaf skrif-
stofur sínar. Kennedy hafði sigr-
að með 70 þúsund atkvæða meiri-
hluta, Eisenhower með nærri
209 þúsund atkvæðum. Paul
Dever tapaði naumlega í ríkis-
stjórakosningunum fyrir repu-
blikananum Herter, sem síðar
varð utanríkisráðherra í stjórn
Eishenhowers. John F. Kennedy
var orðinn valdamesti stjórn-
málamaðurinn í Massachusetts-
ríki.
Hann hafði í vissum skilningi
hefnt fyrir ósigur afa síns í fram-
boði hans gegn Henry Cabot
Lodge eldri, allmörgum árum
áður. I augum Kennedys var þó
engan veginn um hefnd að ræða.
Hér hafði átt sér stað sjálfstæð
barátta og nýjum áfranga að
æðstu metorðum var náð. Kenn-
edy hafði eins og í fyrsta fram-
boði sínu tekizt það sem menn
efuðust um að hann gæti. Sama
sagan átti eftir að endurtaka sig
í forsetakosningunum 1960. Skýr-
ingarinnar á þessum ótrúlegu
sigrum er fyrst og fremst að
leita í uppruna hans. Hinn írski
baráttuvilji stuðlaði öðru frem-
ur að sigri hans.
Kenndey kunni strax betur við
sig í öldugadeildinni en fulltrúa-
deildinni. Hér höfðu þeir menn
bandarískrar stjórnmálasögu,
sem hann þekkti bezt, starfað og
mótað söguna. Vald öldunga-
deildarþingmannsins var einnig
margfalt meira en fulltrúadeild-
arþingmannsins. Hann mundi nú
fá tækifæri til að gera meira
fyrir Massachusetts en nokkru
sinni fyrr.
Fyrstu tvö árin einbeitti hann
sér að því að skipuleggja skrif-
stofu sína í þinginu með það
fyrir augum að hún gæti sem
bezt greitt úr ýmsum vandamál-
um kjósenda. Hann lét starfs-
menn sína um að sinna öllum
smámálum og lagði áherzlu á að
starf þeirra gengi fljótt og ör-
ugglega. Skrifstofan fékk fljót-
lega orð á sig fyrir greið-
vikni og lipurð, líkt og hin fyrri
skrifstofa Kennedys í fulltrúa-
deildinni. Menn streymdu þang-
að í von um aðstoð til hverskyns
aðgerða. Einn vildi stofnsetja
fyrirtæki, annar bjarga syni sín-
um frá að verða rekinn úr Har-
ward, þann þriðja vantaði starf
o.s.frv. Reynt var að sjá svo um,
að menn færu ekki bónleiðir til
búðar.
En þegar frá leið kosningun-
um sneri Kennedy sér í ríkara
mæli að löggjafarstarfseminni og
varð skjótlega mikið ágengt,
enda var hann nú reyndari þing-
maður og virtari en nokkru
sinni fyrr. Flestir þóttust sjá í
honum mann framtíðarinnar.
Þrjátíu og sex ára gamall var
Kennedy enn ókvæntur. Slúður-
dálkahöfundar gerðu sér mat úr
hverju spori hans með ungum
jstúlkum, og höfðu margsinnis
boðað hjónaband á næsta leiti.
Blöðin vissu þó næsta lítið um
samband hans og Jacqueline Lee
Bouvier. Kennedy hafði kynnzt
henni þegar hún var tuttugu og
eins árs gömul og hann sat enn
í fulltrúardeildinni. Það var í
köldverðarboði. „Ég hallaði mér
yfir súpudiskinn og bauð henni
út“, sagði Kennedy síðar, Vin-
átta þeirra varð æ innilegri eftir
því sem leið á kynni þeirra, en
Kennnedy var ákveðinn í að
hraða sér ekki inn í hjónabandið,
Hann átti eftir að berjast við
Lodge. Að minnsta kosti einn
af vinum Kennnedys efast um að
hann hefði kvænzt ef sigur hefði
ekki unnizt í framboðinu gegn
Lodge.
Samband Kennedys og Jacque-
line var á tímabili slitrótt. Hún
fór til Evrópu og hann til kosn-
ingabaráttunnar. Næstu sex mán-
uði sáust þau ekki, en eftir það
fór hún í skóla og hann var að
langmestu leyti í Massachusetts.
„Þaðan hringdi hann í mig, þeg-
ar hann fékk tækifæri til þess,
oftast til að bjóða mér í bíó, þeg-
ar hann kæmi til Washington
næst“. Mánuðum saman heyrði
hún ekkert frá honum,
En þegar Kennedy kom til
Washington, nýkjörinn öldunga-
deildarþingmaður, var samband
þeirra Jaqueline endurnýjað.
Þau sáust alls staðar saman. í
stað þess að senda blóm og kon-
fekt gaf Kennedy, kærustunni,
sagnfræðibækur, hverja eftir
aðra, og til að verða ekki slegin
út, gaf Jacqueline í staðinn bæk-
ur með teikningum sínum. Eftir
tveggja ára slitrótta viðkynningu
bað Kennedy loks um hönd
stúlkunnar og hún tók bónorði
hans, Hjónavígslan fór fram 12.
september 1953. Vinur Kennedy-
fjölskyldunnar, Cushing kardi-
náli, framkvæmdi vígsluna og
flutti þlessunarorð páfans tjl
hinna ungu brúðhjóna, Tólf
hundruð gestir voru í brúðkaups-
veizlunni, meðal þeirra allir
þíngmenn öldungadeildarinnar,
sem gátu mætt, Þetta var brúðr
kaup árgins, sem þúsundjr ef
ekki milljónir manna fylgdust
með. Múgur og margmenni rauf
raðir lögregluþjóna við kirkjuna
og blöðin birtu risastórar mynd-
ir af brúðhjónunum.
Það er ekki laust við að Jacque-
line hafi þótt nóg um kynni sín
af hinni dugmiklu Kennedy-fjöl-
skyldu. Hún fótbraut sig í bolta-
leik með systkinunum og horfði
á yngstu börnin slást og rífast
af meiri hörku ep hún hafði átt
að venjast.
Vegna anna Kennedys gekk
hjónunum erfiðlega að aðlagast
á heimilinu. Þau höfðu keypt
hús í Virginíu en þar Jeiddist
Jacqueline. Giftingarárjð, gem
hefði átt að vera mikið hamingju-
ár, varð vegna fleiri en einnar
ástæðu dapurlegt tímabil í ævi
þeirra hjónanna.
Framhald í næsta blaði.
VIKAN 9. tbL — gg