Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 2
cvu sokkar eru m. a.
með sóla úr Helanca crepþræði,
sem gerir þá sterkari, mýkri
og hlýrri. Þeir eru framleiddir í
nýjustu tízkulitum og snið þeirra,
sérstaklega lagað eftir fætinum.
VJV LXsokkareru netofnir
og fylgir þeim ábyrgðarseðill.
Reynið eitt par og þér munuð
sannfærast um gæði þeirra.
evu nylonsokkar fást
í flestum verzlunum.
V Ll nylonsokkar eru
framleiddir úr ítölskum DELFION
nylonþræði í fullkomnustu vélum,
sem til eru á heimsmarkaðinum.
Erlendir sérfræðingar munu annast
eftirlit með framleiðslunni,sem he-
fur staðist gæðamat INTERNA-
TIONAL COMITÉ D'ELEGANCE
DU BAS sem FIRST QUALITY.
SOKKAVERKSMIÐIANe'Va.
Akranesi h.f.
V* jgji cva f <&e^íorv. py.ýy.yyy. mtlom yaan
I fullri alvöru:
Vandfundin
listaverk
Nýlega kom maður að máli við
Vikuna og sagðist hafa þurft á
því að halda að gefa vini sínum
afmœlisgjöf. Vinurinn var sex-
tugur, merkisborgari með smekk
fyrir fagra hluti og góða list.
Það hafði verið ákveðið að gefa
honum málverk eftir einhvern
kunnan og viðurkenndan lista-
mann. „Ég fór á stúfana“, sagði
maðurinn, „og leitaði fyrir mér
i þeim verzlunum bæjarins, sem
ég helzt gat búizt við að seldu
verk eftir listamenn okkar. En
það er skemmst frá að segja, að
ekki eitt einasta verk eftir kunn-
an listamann var til sölu. Aftur á
móti var nóg til af lélegustu teg-
und af landslagsafskræmingum
eftir einhverja fúskara, sem ég
man ekki einu sinni hvað hétu.
Enda var það allt eins, þó nöfn-
in væru mismunandi; virtist gert
eftir einhverri samþykktri form-
úlu þessháttar fúskara. Ég spurði
um verk eftir Jóhann Briem,
Sverri Haraldsson, Einar Bald-
vinsson, Jóhannes Kjarval, Gunn-
laug Sciheving, Kára Eiriksson og
einhverja nefndi óg fleiri. En því
miður, það var ekki neitt til
eftir þá. Eftir allmikinn eltinga-
leik tókst mér samt að ná í einn
af þessum fyrrnefndu listamönn-
um heima hjá sér og þar tókust
kaupin“.
Það rikir lofsverður áhugi fyr-
ir góðri myndlist, en margir
munu hafa rekið sig á það sama
og frásagnarmaður minn hér að
framan; það kostar allt of milda
fyrirhöfn að ná sambandi við
þessa háttvirtu listamenn og ætti
sannarlega að vera óþarft. Hvers
vegna í ósköpunum tekur ekki
einhver góður maður sig til og
setur upp listaverkabúð, þar sem
einungis yrðu hoðin til kaups
verk viðurkenndra listamanna?
Það mundi örva áhuga á góðri
myndlist og bæta margfaldlega
afkomu myndlistarmanna, sem er
i sumum tilvikum ekki alltof góð.
Mig undrar það, að þeir skuli
ekki hafa hrint jjessu í fram-
kvæmd sjálfir. Eiginlega er hér
um svo mikið menningaratriði
að ræða, að ríkið ætti að styrkja
listamenn með iþvi að sjá um
rekstur verzlunarinnar. Það
mundi þó að minnsta kosti tryggja
Framhald á bls. 50.