Vikan


Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 32

Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 32
NýJar barnagfolftreyjar ÚR ODELON Stærðir: 0-2-4-6-8 AMA ÞÓRÐARDÓTTIR H.F. PRJÓNASTOFA Ármúla 5 — Sími 38172 * II 4 Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. ÖHrútsmerkið (21. marz — 20. april): Þú færð dágott tækifæri til að láta ljós þitt skína. Reyndu að starfa sem mest sjálfstætt, leggðu allt kapp á að þú getir orðið sjálfs þíns herra, og ef til vill, að þú fáir umsjón með öðrum. Skapsmunir þínir verða með bezta móti þrátt fyrir nokkuð mótlæti. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Láttu til skarar skríða og ljúktu af þeim verkefn- um sem stöðugt hafa hlaðizt upp hjá þér. Þú þarft að sýna meiri einbeittni til að koma óskum þínum í framkvæmd. Láttu ekki undan núna þótt það kunni að leiða til óþægilegra orðaskipta. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Láttu ekki telja þig af að koma 1 framkvæmd hug- mynd, sem þú fékkst fyrir nokkru, þér mun að öllum líkindum takast stórvel upp. Gerðu ekki of háar kröfur til maka þíns, þú átt eftir að fá annan skilning á hlutunum. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Láttu ekki ofsafengnar tilfinningar hlaupa með þig í gönur, Forðastu allar deilur við samverkamenn þína og ástvini. Það skeður margt á ýmsum sviðum, svo vikan verður sannarlega ekki daufleg. Um helgina muntu skemmta þér rækilega Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Spilltu ekki tækifærum þínum með óvarkárni eða kæruleysi, vertu vel á verði# Þú hefur mikið að starfa, sum verkefnin mjög skemmtileg og veiga- mikil. Vertu sárlega aðgætinn í dómum þínum, þó að gengið verði á þig að segja skoðanir þínar afdráttarlaust. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Sá eiginleiki þinn, hve þú átt auðvelt að lynda við fólk, kemur nú í góðar þarfir. Þú munt taka þátt í ýmsum skemmtunum. í ástarmálunum skaltu cinu sinni láta tilfinningarnar ráða og ýttu frá þór allri feimni og uppburðarleysi. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Þú átt í brösum í máli sem er mjög þýðingarmikið fyrir þig. Ef þú forðast allan bægslagang og und- irróður muntu bera hærri hlut. Áður en þú nærð marki þínu verðurðu að telja ýmsa á þitt band, en það ættirðu að geta með óvæginni rökfærslu. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú getur unnið þig upp á við í mannfélagsstiganum með ástundun og samvizkusemi, árangurinn kemur brátt í ljós ef þú lætur tímann ekki ganga þér úr greipum. Þú þarft að leysa starf af hendi, sem krefst nákvæmni og þolinmæði. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Sinntu vinum þínum meir en undanfarið. Grafðu W þig ekki inni, njóttu lífsins, stundaðu félagsstörf og gefðu þér tíma fyrir áhugamál þín. Varastu drottnunargirni í samskiptum þínum við fjölskyld- una. Láttu aðra njóta eigna þinna með þér. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Vinur þinn bendir þér á leið til að drýgja peninga þína, þér er alveg óhætt að fara að ráðum hans iqjgpr þótt þú sért fremur ragur til að byrja með. Kunn- ingi þinn, sem þú hefur umgengizt lítið undan- farið, gefur þér órækari sannanir en nokkru sinni fyrr um ístöðuleysi sitt. ®Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þú munt þurfa að sjá á bak vini þínum til fjar- lægs staðar. í fjármálum skaltu gæta hófs á ör- læti þínu, þú ættir að ráðgast við einhvern um hvernig bezt væri að festa fjármunina. Þér verður veitt upphefð á einhverju sviði# ©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz): Þú munt eiga skemmtilegar stundir með vinum og kunningjum. Einhverjar breytingar á högum þínum gætu átt sér stað. Ást og rómantík setja sinn svip á seinni hluta vikunnar. Vogaðu þér þó ekki út á hálan ís í þeim sökum. * 02 — VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.