Vikan - 05.03.1964, Page 32
NýJar
barnagfolftreyjar
ÚR
ODELON
Stærðir: 0-2-4-6-8
AMA ÞÓRÐARDÓTTIR H.F.
PRJÓNASTOFA
Ármúla 5 — Sími 38172
*
II
4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
ÖHrútsmerkið (21. marz — 20. april):
Þú færð dágott tækifæri til að láta ljós þitt skína.
Reyndu að starfa sem mest sjálfstætt, leggðu allt
kapp á að þú getir orðið sjálfs þíns herra, og ef
til vill, að þú fáir umsjón með öðrum. Skapsmunir
þínir verða með bezta móti þrátt fyrir nokkuð mótlæti.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Láttu til skarar skríða og ljúktu af þeim verkefn-
um sem stöðugt hafa hlaðizt upp hjá þér. Þú þarft
að sýna meiri einbeittni til að koma óskum þínum
í framkvæmd. Láttu ekki undan núna þótt það
kunni að leiða til óþægilegra orðaskipta.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Láttu ekki telja þig af að koma 1 framkvæmd hug-
mynd, sem þú fékkst fyrir nokkru, þér mun að
öllum líkindum takast stórvel upp. Gerðu ekki of
háar kröfur til maka þíns, þú átt eftir að fá annan
skilning á hlutunum.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Láttu ekki ofsafengnar tilfinningar hlaupa með þig
í gönur, Forðastu allar deilur við samverkamenn
þína og ástvini. Það skeður margt á ýmsum sviðum,
svo vikan verður sannarlega ekki daufleg. Um
helgina muntu skemmta þér rækilega
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Spilltu ekki tækifærum þínum með óvarkárni eða
kæruleysi, vertu vel á verði# Þú hefur mikið að
starfa, sum verkefnin mjög skemmtileg og veiga-
mikil. Vertu sárlega aðgætinn í dómum þínum, þó
að gengið verði á þig að segja skoðanir þínar afdráttarlaust.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Sá eiginleiki þinn, hve þú átt auðvelt að lynda
við fólk, kemur nú í góðar þarfir. Þú munt taka
þátt í ýmsum skemmtunum. í ástarmálunum skaltu
cinu sinni láta tilfinningarnar ráða og ýttu frá
þór allri feimni og uppburðarleysi.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú átt í brösum í máli sem er mjög þýðingarmikið
fyrir þig. Ef þú forðast allan bægslagang og und-
irróður muntu bera hærri hlut. Áður en þú nærð
marki þínu verðurðu að telja ýmsa á þitt band,
en það ættirðu að geta með óvæginni rökfærslu.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú getur unnið þig upp á við í mannfélagsstiganum
með ástundun og samvizkusemi, árangurinn kemur
brátt í ljós ef þú lætur tímann ekki ganga þér
úr greipum. Þú þarft að leysa starf af hendi, sem
krefst nákvæmni og þolinmæði.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Sinntu vinum þínum meir en undanfarið. Grafðu
W þig ekki inni, njóttu lífsins, stundaðu félagsstörf
og gefðu þér tíma fyrir áhugamál þín. Varastu
drottnunargirni í samskiptum þínum við fjölskyld-
una. Láttu aðra njóta eigna þinna með þér.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Vinur þinn bendir þér á leið til að drýgja peninga
þína, þér er alveg óhætt að fara að ráðum hans
iqjgpr þótt þú sért fremur ragur til að byrja með. Kunn-
ingi þinn, sem þú hefur umgengizt lítið undan-
farið, gefur þér órækari sannanir en nokkru sinni fyrr um
ístöðuleysi sitt.
®Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú munt þurfa að sjá á bak vini þínum til fjar-
lægs staðar. í fjármálum skaltu gæta hófs á ör-
læti þínu, þú ættir að ráðgast við einhvern um
hvernig bezt væri að festa fjármunina. Þér verður
veitt upphefð á einhverju sviði#
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Þú munt eiga skemmtilegar stundir með vinum
og kunningjum. Einhverjar breytingar á högum
þínum gætu átt sér stað. Ást og rómantík setja
sinn svip á seinni hluta vikunnar. Vogaðu þér þó
ekki út á hálan ís í þeim sökum.
*
02 — VIKAN 10. tbl.