Vikan


Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 8

Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 8
Dagur Þorleifsson blaðamaður tók saman Síðari hluti f síðasta blaSi birtist fyrri hluti greinar um þá menn, sem sögur fara af, að hafi fundiS Ame- ríku á undan Kólumbusi, og eru þeir hreint ekkí svo fáir. Grein þessi er byggS á bók, sem ný- lega kom út um þetta efni í Bandaríkjunum, eft- ir þarlendan fræSimann, Charles Boland. fslend- ingum eru þaS engin ný vísindi, aS Kólumbus hafi veriS dálítiS seinn, til þess aS stíga fyrstur hvítra manna fæti á ameríska jörS, en allt fram til þessa tíma, hefur honum veriS eignaSur sá heiSur. Nú hefur hins vegar komiS fram tillaga í Bandaríkjaþingi þess efnis, aS löggilda Leif heppna sem fyrsta landnámsmann hvítra vest- an hafs, en Boland heldur því fram, aS enn aSr- ir hafi verið á undan honum. Samt mundi það nær sanni, að löggilda fremur Leif en Kólumbus. 12. Freydís (1014). Af söguhetjum þeim, er Boland tilfær- ir í riti sínu, er aðeins ein kona, en henn- ar þáttur er líka hvað blóðugastur og ógerðslegastur. Konan er Freydís, laun- dóttir Eiríks rauða. Hennar er þegar að nokkru getið í kaflanum um Þorfinn karlsefni. Freydís giftist manni þeim, er Þorvarð- ur hét, lítill skörungur að því er séð verður, enda sjáanlegt að hans betri helm- ingur hefur skjótt orðið jafnt bóndi sem húsfreyja á heimilinu. Sagan hermir, að hún hafi fengið tvo íslenzka farmenn, Helga og Finnboga, með sér til Vín- landsferðar, skömmu eftir að Karlsefni kom úr sinni. Höfðu þeir skip sér, en Freydís og maður hennar annað. Svo hafði samizt með þeim, að hvort um sig hefði þrjátíu vígra karla um borð, en Freydsí gekk á þann samning og leyndi fimm mönnum umfram. Leiðangurinn náði heilu og höldnu til Leifs- búða, og tók Freydís sér bólfestu í húsum Leifs, en þeir Helgi og Finnbogi —- sem voru bræður — byggðu sér annan skála þar í ná- lægð. Fljótt jókst sundurþykki milli þeirra og Freydísar, og er vandséð hvað olli. Svo var það einn morgun snemma, að Freydís reif bónda sinn upp úr rúminu og sagði honum sínar farir eigi sléttar; kvaðst hafa farið til skála þeirra bræðra í friðsamlegum erindagerðum, en þeir hefðu beitt hana ofurefli og leikið sár- lega. Væri bóndanum nú ráð að hefna smánar hennar og sinnar, ellegar segði hún skilið við hann. Við eggjan þessa spratt Þorvarður á fætur og kvaddi menn sína til vopna. Fóru þeir til skála þeirra bræðra og tóku þá höndum og menn þeirra; var það létt verk, því þeir voru allir í svefni. Að skipan Freydísar voru allir hinir íslenzku farmenn síðan leiddir út og höggnir. Sjálf þreif hún síðan öxi í hönd og banaði konum þeirra, fimm að tölu, því enginn manna hennar fékk sig til að vega að þeim. Freydís lét síðan ferma skip þeirra bræðra, sem var stærra, og sigldi aftur til Grænlands. Enda þótt hún hefði heitið hverjum þeim bana, er segði nokkuð frá stórvirkjum hennar, leið ekki á löngu áður en sagan yrði heyrinkunn í Grænlandi. Samkvæmt boði Leifs heppna varð almennt hatur og fyrirlitning hlutskipti þeirra, það sem þau áttu eftir ólifað — skelfilegasta refsing, sem hægt var að leggja á í litlu samfélagi sem hinu grænlenzka. g — VIKAN 10. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.