Vikan


Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 6

Vikan - 05.03.1964, Blaðsíða 6
r mt i mi MEÐ ÞVI AÐ AUGLVSA I TlMARITINU Úrval Alltaf er lofið gott... Kæra Vika! Ég vil byrja á því að þakka þér kærlega fyrir allt þitt fróð- lega og skemmtilega efni. Mér finnst meðal annars ákaflega mikið til um þá nýbreytni hjá þér, að birta svona „program“ af kvikmyndum. Ég ætla sem sagt ekki að kvarta neitt! Ég kaupi þig alltaf þótt ég sé ekki áskrifandi og bíð með mjög mikilli óþreyju eftir hverju blaði. Og svo að iokum — af því að ég er alveg viss um að þetta bréf er ekki vélritað, — hvernig er skriftin mín?! Með beztu kveðju. S. S. L. — •—- — Þakka þér fyrir góð orS. Alltaf er lofið gott. Jú, skriftin er óvenju falleg og nett, jöfn og áferðargóð. Mikið kemst í verk í draumi.. . Vika mín góð! Mér þótti slæmt að þú skyldir hætta við draumaráðningarnar. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á draumum og draumalífi og les allt um það, sem ég kemst yfir. Nú langar mig til að spyrja þig einnar spurningar sem ég hingað til hef fengið æði sundurleit svör við. Hún er svona: Hversu lang- an tíma tekur draumur? Tekur jafn langan tíma að dreyma til- tekinn atburð og það tæki að upplifa hann í vöku, eða skemmri tíma? Jón P. Halldórsson. --------Það hafa ýmsar kenn- ingar verið uppi um þetta, Jón, en nú munu flestir vísindamenn hallast að því, að það taki að- eins örstuttan tíma, jafnvel nokk- ur sekúndúbrot að dreyma draum, sem virðist langur. Það er skilmerkilega sagt frá þessu í bók Almenna Bókafélhgsins, Furður sálarlífsins eftir Harald Schelderup. Hann segir frá því að þessi tilraun var gerð: Kona ein var dáleidd og dávaldurinn sagði henni, að við ákveðið merki mundi hana byrja að dreyma langan og merkilegan draum, sem hún mundi munu greiniiega þegar hann vekti hana. Hann gaf síðan merkið og konan virtist sofa eðlilegum svefni. Eftir svo sem eina mín- útu vakti hann hana og þá mundi hún draum sinn greinilega. Það var löng saga og henni fannst hún hafa dreymt í ' óratíma. Á tveim mínútum var önnur kona látin sofa upp úr dásvefni og sagt, að hana mundi dreyma heila mannsævi. Það stóð heima: Henni fannst hún hafa átt heima í Kína og mundi alla ævi sína harla vet; skrifaði jafnvel bók um hana. Konan hafði aldrei komið til Kína, en frásögn hennar kom vel heim við það, að hún hefði lifað þar. Kvikmyndaeftirlit . . . Kæra Vika! í 4. tbl. 1964 var í Póstinum bréf frá „áhyggjufullri mömmn“, sem fór á bannaða mynd og sagði að allt hefði úð og grúð af börn- um allt niður í 10 ára gömul. Sjálfur er ég 15 ára en mjög lítill og hef margoft þurft að sýna vegabréf til þess að komast inn á myndir sem bannaðar eru fyrir börn innan 14 ára aldurs. Á því sést að ekki fer allt eftir stærð- inni. En hvernig er með barnasýn- ingar eins og Roy Rogers og þess háttar? Fær ekki kvikmyndaeftir- litið að sjá þessar myndir, sem eru lítið annað en slagsmál og þar fram eftir götum? Þetta er handa börnunum, ekki aðeins 12 eða 14 ára, heldur allar götur nið- ur í 5 og 6 ára. Þetta finnst mömmunni alveg sjálfsagt, er það ekki? Mér er spum. c. Q. W. Surtsey... Kæri Póstur! Mig langar til að spyrja nokk- urra spurninga í sambandi við Surtsey, og ég veit engan færari til að svara þeim, en þig, kæri Póstur. í fyrsta lagi langar mig til að vita hvort þetta gos hafi yfirleitt vakið athygli í heiminum, eða hvort fslendingar séu þeir einu, sem hafa einvhern áhuga á þessu náttúrufyrirbæri. í öðru lagi er spurning í sam- bandi við landhelgina. Hefur hún víkkað út vegna gossins, og mundi hún þá halda áfram að stækka, ef gosið færðist æ fjær landi, eða ef annað gos hæfist innan þeirrar landhelgi, sem Surtsey hefur nú skapað? Og í þriðja lagi -— hefur gos-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.