Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 9

Vikan - 05.03.1964, Qupperneq 9
Ýmsir fræðimenn hafa orðið til að koma með getgátur um orsak- irnar fyrir illvirkjum Freydísar. Ein er sú, að hún hafi falað ann- an þeirra bræðra til ásta við sig, en hann ekki látið ginnast, en frávísanir af því tagi taka konur sér gjarnan nærri. Önnur er á þá leið, að Freydís hafi verið í tíðleikum við Finnboga og verið hrædd um, að konur í fylgdarliði hans kjöftuðu frá, þegar til Græn- lands kæmi, en víkingarnir gömlu höfðu lítið umburðarlyndi með lauslátum eiginkonum, enda þótt sjálfum þætti þeim ekkert tiltöku- mál að hafa með nokkrum griðkonum samhliða frúnni. Að lokum er svo skýring Bolands, og er hún mjög svo læknisfræðileg: Frey- dís hafi verið haldin geðtruflun, sem ef til vill hafi átt rót sína að rekja til atburðarins í Hópi, þegar menn Karlsefnis flýðu sem fætur toguðu og létu hana, vanheila og þungaða, eina eftir í hönd- um morðóðra villimanna. Nærri má geta, hve hræðileg sú stund hefur verið hinni verðandi móður. Ef til vill hefur þá kviknað hjá henni neisti brjálæðislegs haturs gegn þjóðbræðrum hennar, neisti er varð að báli við fyrsta hentugt tækifæri. Sérstaklega þó, ef nefnd- ur atburður hefur orsakað fósturlát, sem og ekki er ósennilegt. En hvað um það, hver sem var orsök blóðbaðsins að Leifsbúðum, þá er líklegt að áhrif þess hafi orðið næsta örlagarík. Má ætla, að þessi hroðalegi atburður hafi vakið með Grænlendingum hjátrú- arkenndan ugg gagnvart hinu auðuga landi í suðvestri, svo að eftir það hafi þá lítt fýst þangað að leita. Að minnsta kosti segir fátt af frekari ferðum þeirra til Vínlands, sízt til landnáms. í stað þess að verða frumkvöðlar evrópskrar byggðar í nýjum heimi, kusu frændur og fylgdarmenn Eiríks rauða að hírast áfram á eyðilegum heimskautahjara, þar sem niðjar þeirra vesluðust síðar upp við aðstæður, sem hverri menningarþjóð — í venjulegri merkingu þess orðs — hljóta að verða ofviða. Harmleikurinn að Leifsbúðum hefur því ef til vill orðið upphaf annars harmleiks, — eins hins mesta, sem saga norrænna manna kann frá að greina. 13. Eiríkur biskup Gnúpsson (1121). í borginni Newport í Rhode Island er steinturn ævaforn, sem orðið hefur fræðimönnum að miklu um- hugsunar- og deiluefni. Mjög er hann farinn að láta á sjá, enda orðið að þola sitt af hverju; þannig not- uðu Bretar hann sem púður- geymslu í bandaríska frelsisstríð- inu og reyndu að sprengja hann í loft upp að skilnaði. Turninn er tuttugu og sex fet að ummáli og um þrjátíu feta hár, borinn uppi af átta súlum. Bygg- ingarstíllinn er greinilega rómansk- ur og ber sem slíkur einkenni tólftu aldar. En mörgum bandarískum fræðimönnum er meinilla við þá tilhugsun, að nokkur hvítramannabyggð hafi þrifizt í landi þeirra fyrir daga Kólumbusar. Þeir hafa því margir hverjir hallazt að þeirri skýringu á tilvist Newportturnsins, að einn brezkur nýlendustjóri hafi hróflað honum upp einhverntíma síðla á seytjánu öld, í. því skyni að nota hann sem kornmyllu. En þar eð gúvernörinn hafi verið dálítið undarlegur í kollinum, hafi hann fundið upp á því að hafa þennan fornlega stíl á myllunni sinni. Aðrir spekingar engu óvitrari — og þá helzt þeir, er mest hafa kynnt sér Vínlandssiglingar norrænna manna — hafa bent á, að turninn minni mjög á norskan arkitektúr frá tólftu öld eða þar um bil. Og Boland er á þeirra máli: Turninn byggði Eiríkur Gnúps- son, sem sigldi til Vínlands árið 1121 og hvarf þar sporlaust, að því er álitið hefur verið. Hann var íslenzkur að kyni og er hans stuttlega getið í annálum okkar gömlu, og þess með, að hann hafi verið biskup á Grænlandi og farið til Vínlands. En sögu þá, er saman tengir þá turninn og Eirík, telur Boland vera þannig: Adam frá Brimum segir svo frá, að Haraldur harðráði, Noregs- konungur, hafi eitt sinn siglt yfir Atlantshaf norðanvert og þá komizt í mikla nauð vegna hafíss. í þessari ferð er allsennilegt (þótt Adam geti þess ekki), að konungur hafi komið við land í Norður-Ameríku og stofnað þar verzlunarnýlendu, er blómstrað hafi um langt skeið. Tilvist nýlendunnar hafi Haraldur svo haldið leyndri til að hindra, að fleiri en Norðmenn kæmust í kökuna. Nýlendan hafi verið þar sem Newport er nú, og Eiríkur hafi farið þangað að páfaboði til að lappa upp á kristni Norðmanna, sem vel gátu verið farnir að bila í trúnni eftir langt samneyti við hund- heiðna skrælingja. Turninn hafi Eiríkur svo látið byggja sem kirkju til handa söfnuði sínum. En ekki hefur hann haft erindi sem erfiði, því engan norskan söfnuð var að finna í Nýja Englandi, þegar hvítir menn komu þangað eftir daga Kólumbusar. En sæfari nokkur á þeim tíma, Verrazano að nafni, segir Indíánana þarna háa vexti og gervi- leéa, bronslita á hörund og suma þó ljósari. Holdið hefur því kannski farið sínu fram, þótt andanum yrði síður ágengt. Við mynni Jonesár, þar sem nú heitir Rocky Nook Point, skammt sunnan við þar sem Boston stendur nú, er talið, að Leifur heppni hafi haft vetursetu. Trúlega hefur landslagi þar verið svipað farið þá og nú, en ólíkt meira um mannamerki nú. Á Cape Cod — Þorskhöfða — er talið, að Leifur heppni hafi fyrst stigið fæti á ameríska grund. Meðfylgjandi mynd er einmitt frá Cape Cod, og hefur þelm stað lítið sem ekkert verið breytt af mannavöldum, siðan Leifur lenti þar. VIKAN 10. tbl. 9

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.