Vikan


Vikan - 05.03.1964, Side 14

Vikan - 05.03.1964, Side 14
VEIKINDIOG OSIGU llppruni og ævi Jlolm Fitzgerald Ke Á ÞESSU TÍMABILI ÞJÁÐIST HANN MJÖG í BAKI OG SKRIFAÐI AÐRA METSÖLUBÖK SÍNA, PROFILES IN COURAGE. HANN BEIÐ ÖSIGUR f KOSNINGUM UM VARAFORSETAEMBÆTTIÐ EN EFTIR ÞAÐ HAFÐI HANN EINKUM EITT MARKMIÐ í HUGA: FORSETA- EMBÆTTIÐ SJÁLFT. Innan veggja öldungadeildarinnar var Kennedy í essinu sínu. Hér var hátt til lofts og vítt til veggja. Viðir og veggir, þöglir vottar að glæsilegri sögu i sköpun. Hér höfðu starfað stjórnmálamennirnir sem Kennedy dáði mest, Daniel Webster, Henry Clay, John Calhoun, George Norris La Folletta, og hinir fjölmörgu aðrir afburðamenn bandarískra stjrónmála- sögu. Hér fékk John F. Kennedy tækifæri til að starfa með og blanda geði við ýmsa af voldugustu stjórnmálamönnum samtímans. Hér mátti sjá Robert Taft, hinn umdeilda en virta foringja republikana, hinn frjálslega en harðvítuga Lyndon B. Johnson, foringja demokrata, núverandi forseta Bandaríkjanna, hinn virðulega Walter George og eplafram- leiðandann Harry Byrd, en hinir tveir síðarnefndu höfðu á sínum tíma virt vilja Roosevelts að vettugi, barizt gegn hon- um og haldið velli, sannir fulltrúar Suðurríkjanna, tákn styrk- leika þeirra og þolgæðis. Þá mátti sjá Herbert Lehmann frá New York, Lester Hill frá Alabama, foringja frjálslyndra í deildinni, en meðal hinna róttæku var Joseph McCarthy, sem sat í sæti Roberts La Follette. Kennnedy fékk sæti við hlið hins mælska Hubert Humphrey frá Minnesota og í forsæti deildarinnar var Richard M. Nixon síðar varaforseti Banda- ríkjanna og andstæðingur Kennedys við forsetakosningarnar 1960. Þingmenn höfðu veitt Kennedy verðskuldaða athygli er hann gekk niður tröppur þingdeildarinnar til að undirrita eiðstaf sinn. Eftir hinn mikla sigur hans yfir Henry Cabot Lodge þóttust menn vita að hér væri á ferðinni hækkandi stjarna í bandarískum stjárnmálum. Kjósendur og blöð í Massachusetts fylgdust vel með gerð- um Kennnedys á þingi. Almennt voru menn ánægðir með störf hans í þágu efnahags- og atvinnulífs Massachusetts- ríkis. Náið samstarf var milli Kennedys og Leverett Salton- stall, sem var hinn öldungadeildarþingmaðurinn frá Massa- chusetts, en Salonstall er republikani. Þrátt fyrir flokks- böndin studdu þeir hvor annan þegar mikið lá við. Sam- vinna þeirra gekk jafnvel svo langt að Kennedy neitaði demokratanum Foster Furcolo, flokksbróður sínum, um opin- beran stuðning, þegar Furcolo bauð sig fram gegn Saltonstall árið 1954. Þeim fullyrðingum Furcolo að Saltonstall hefði gert iítið

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.